Baldur - 14.09.1903, Qupperneq 1
BALDUE.
I. ÁR.
GIMLI, MANITOBA, 14. SEPTEMBER 1903.
Nr. 35.
Nafnfrœg kona.
Florence Nightingale,
hin nafnkunna hjúkrunarkona, lifir
enn og á heima f West End í Lund-
únum. í sfðastliðnum maímánuði
var hún 80 ára giJmul, og þann dag
streymdu til hennar lukkuóskir í
þúsundatali, þar á meðal frá Alex-
öndru drottningu í eiginhandar
rituðu brjefi. Ýmsir aðrir af kon-
ungbornu fólki í Norðurálfunni
vottuðu henni virðingu sfna við
þctta tækifæri.
Miss Nightingale er há vexti
og nú orðin nokkuð feit, með grátt
hár og góðlegt andlit og hrcinskiln-
islegt. Enda þótt hún nú sje orð-
in heilsuveíl, og verði oft að þola
lfkamlegar þjáningar, cr ávallt gott
að finna hana fyrir veikar mann-
eskjur, og cins cf það cru hjúkrun-
arkonur, sem þurfa leiðbeiningar,
en að öðru leyti hatar hún að sýna
sig scm nokkurskonar merkisper-
sónu.
Miss Nightingale er fædd í FIo-
rence 1823, og varð fyrst nafn-
kunn fyrir tilraunir sfnar við að
bœtaheilbrigðisásigkomulagbre/:ka
hersins. Sfðar heimsótti hún og
kynnti sjer bæði almenn sjúkrahús
og hermanna-sjúkrahús um alla
Norðurálfuna. Kynnti sjer hjúkr-
unaraðferðina og sjúkrahúsafyrir-
komulagið f Parfs, og gekk á líkn-
arkvennaskóla í Kaiservvorth við
Rín árið 1851, til þess að nema
hjúkrunarfrœði. Þegar hún kom
til Englands aftur, gjörði hún víð-
tæka umbót á heilnæmisskóla, sem
stóð í sambandi við heilbrigðis-
stofnunina f Lundúnum. Tfu ár
var hún að læra og búa sig undir
lífsstarf sitt.
Þegar Krímstrfðið stóð yfir 1854,
bauðst hún til að fara til orustu-
stöðvanna og láta reisa hjúkrunar-
hús við Scutari. 20. sept. var bar-
daginn við Alma, og voru hinir
særðu sendir á sjúkrahús, sem
byggð voru í snatri við Bosforus-
sæinn, en brátt fylltust þau hús,
og sökum þess að þar dóu miklu
fleiri heidur en fjellu á vfgvellinum,
sáu mcnn að eitthvað hlaut að vera
f ólagi. Til þess að frelsa herinn
úr þessari hœttu, bauð Miss Night-
ingale stjórninni aðstoð sfna, sem
var með gleði þegin, og áður en
vika var liðin fór hún á stað mcð
aðstoðarkonur sínar. Hún kom til
Konstantínópel 4. nóv., daginn
áður cn orustan við Inkerman fór
fram, nógu snemma til að taka á
móti hinum særðu f hermanna-
skýlin, scm áður voru offyllt með
sem svarar 2—3 hundruð manns.
Umhyggja hennar fyrir hinum
þjáðu gleymist aldrei. Ilún vann
stundum hvíldarlaust í 20 stundir
við að sjá um að hver og einn
fengi þá hjúkrun sem hann þarfn-
aðist. Hún sá strax hvað að var f
sjúkráskálunum, er olli dauða svo
margra manna, og vann að þvf með
aiefli að útrýma þeim göllum.
Mcðan hún starfaði að því vorið
1855, veiktist hún af of mikilli á-
reynzlu og vökum, en vildi samt
sem áður ekki yfirgefa stöðu sfna,
og cftir að henni batnaði aftur,
var hún kyr í Scutari þangað til
brczki herinn fór úr Tyrklandi 28.
júlf 1856.
Ilún, sem svo margir hermenn
eiga lff sitt að launa, eyddi sinni
eigin heilsu í þeirra þarfir.
Þrátt fyrir heilsuleysi sitt hefir
Miss Nightingale skrifað nokkur
ágæt rit, og eru þessi helzt: ,,No-
tes on Hospitals“, ,,Notes on
Nursing“, ,,Life and Death in
India“, og ,,The Training of Mid-
vives and midvifery Nursing“,
sem öll eru mikilhæf, hafa komið
miklu góðu til leiðar og sýna, að
hugur hennar dvelur enn aðallega
við hjúkrun veikra og heilbrigðis-
ásigkomulag mannkynsins.
Flestar cða allar verksmiðjur í
Bandarfkjunum, sem lcggja það
fyrir, sig, að smfða 1 f k k i s t u r,
standa saman í gróðabragðaflokki
(trust). Þessi fjclagsskapur hjelt
fyrir stuttu fund í borginni Indiana-
polis, og samþykkti á þeim fundi
að hækka verðið á lfkkistunum,
vegna þess, að gróðinn á þeirri
varningstegund væri ekki viðunan-
lega mikill. Þetta cr hinn úthalds-
bezti gróðabragðaflokkur mannfje-
lagsins. Aðrir flokkar flá eignir
manna af þeim lifandi. Þessi flokk-
ur fylgir nánum í gröfina.
Prestar og grafarar gætu ugg-
laust komið ár sinni eins vel fyrir
borð, ef þeir mynduðu jafn vfð-
tæka fjelagsheild.
Dr. Robinson, 63 West 3Sth
Street, New York, auglýsti það,
að hann vildi kaupa nefbrodd
fyrir $50, ,,handa ríkisfrú, sem
hcfði skaðað sig“. Það cr altíttað
læknar græða blett af lifandi hör-
undi við annað hörund þcgar þess
gjörist þiirf. Viti menn. Læknir-
inn fjckk úr ýmsum áttum tilboð
um að fullnægja þessari beiðni.
Slfkt og þvflfkt er gott sanninda-
merki um það, á hversu háu stigi
vellfðunin cr í hinni mestu verzl-
unarborg Vesturálfunnar. Ekkert
annað en hungursneyð gæti komið
nokkrum kvennmanni til þess, að
leggja fram slíka fórn, en f þeim
kringumstæðum er það vcl skiljan-
legt örþrifsúrræði t. d. af móður,
sem með slíkum hætti gæti afstýrt
dauða barna sinna.
I sömu borginni, sem þetta skeð-
ur f, er hið alrœmda Wall Street,
þar sem ein hin argasta fjárglæfra-
manna samkunda hefir aðsetur sitt.
Þar eru iðuglega saman komnir
ýmsir hinna ríkustu manna heims-
ins til þess, að veðja um það hvern-
ig þessu og þessu gróðabragðinu
muni reiða af. Þenna fjelagsskap
nefna menn ,,Stock Exchange",
og vegna þess, hversu afarríkir
menn taka þátt í þessum fjelags-
skap, lfta allir smærri auðkýfingar
upp þangað með svo óútmálanlegri
lotningu, að lotning þeirra fyrir
guði er ekki berandi saman við
hana. Skýrslur þessa fjelags eru
nokkurskonar hitamælir alls verzl-
unarlífs f landinu, og frækleiki auð-
söfnunarmanna er fólginn í þeirri
skarpskyggni, sem þeir hafa til
þess, að lesa rjett á þann mælir.
Sá erfiðleiki liggur f því, að hinir
ríkustu fjárglæfragarpar eru slungn-
astir og bolmagnsmestir til þess,
að breyta kringumstæðunum allt f
einu svo, að þeir vinni veðmál sín,
en það þýðir ævinlega hrun eða
eyðileggingu fyrir fjölda þeirra,
sem eru lítilsigldari. Til þess, að
koma af stað slfkum breytingum,
og svo til þess, að halda almenn-
ingi í skefjum á meðan hann er að
sætta sig við breytingarnar, er öll-
um vopnum beitt, — kosninga-
mútum, brennivfnsaustri, lög-
mannahrekkjum, svæfandi trúmála-
kenningum, lögregluaðhaldi, og
herliðsofbeldi, og jafnvel undir-
róðri tilþess, að koma af stað verk-
föllum heima fyrir — af því að
dauði eins verkgefanda er annars
líf —, og uppreistum erlendis —
af þvi að veiklun einnar þjóðar er
efling annarar og aukning á gróða-
tækifærum fyrir hennar auðkýf-
inga. —
Ljósmyndasmiðir sýna aldrei
nema brjóstið á myndum sínum,
en horfi maður á auglýsingar verzl-
unarsamkundunnar í New York,
sem brjóstmynd af mannlífinu, þá
þarf ekki annað en lfta á auglýs-
ingu Dr. Robinson’s <il þess, að fá
hugmynd um bakið.
Sannarlega eru fjelög mammons-
dýrkendanna og allar þeirra stofn-
anir enn þá eins og ,,kalkaðar
grafir“.