Baldur - 11.10.1905, Page 2
2
BALDUR, ii. ocT(5b. 1905.
I
' ’TF
-
U
ER GEFINN t?T Á
GJMLI, ----- MANITOBA
ÓHAÐ VIKUBLAÐ-
KOSTAR $1 UM ÁRIð.
BORGIST FYRIRFRAM
ÚTGEFENDUR:
THE GIMLI PRINTING &
PUBLISHING COMPANY
LIMITED.
RITSTJÓRI:
Magnús J. Skaýtason.
RÁÐSMAÐUR:
Gísli P. Magnússon.
UTANÁSKRIFT TIL BLAöSINS :
B-AIjDXJE.;,
GIMLI,
V«rð i •miutn *nglýgingum er 25 cent
íyrir þumlung dálkslengdar. Afslittur er
gafinn í atcsrri auglýsingum, i«m birtast í
blaðínu yfir lengri tíma. Vu'víkjandi
al(kum afilsetti og öfirum fjármálum bl»ð«-
i»», eru menn beðuir að anúa »jor »d láðv
manninum.
miðvikudaginn, i i.octób. 1905.
S k ó 1 a r
f NÝJA ÍSLANDI.
Lengi hcfir það vcrið haft á
orði, að Islendingar væru ein
hin námfúsasta þjóð. Einu sinni
hjeidu þeir uppi mentun Norður-
landa. Þeir voru skáldin, sem
sungu Ijóð og kváðu drápur um
afreksverk konunganna. Þeir voru
ætíð velkomnir gestir f híillurn
þeirra Oft voru þeir stallbræðurj
og kærustu vinir þcirra. Seinnaj
hjeldu þeir upp sagnfræði Norð- j
urlanda. Goðfræðina færðu þeir
í Ijóð og fluttu kvæði síii höll úr
hiillu.
Á hinum lörgu vetrarkvöld
um skemtu skáldin með siigum
og kvæðum. Af konungum og
jörlum þáðu þeir nafnbætur og
gjafir. Og það var einmitt þá,
þegar myrkt var í hinum andlega
heimi Norðurlanda, þegar kvæðin
hefðu gleymst og sögurnar tapast,
ef að þeir hefðu ekki verið.
Um fleiri aldir hefir því Jand-
inn verið stoltur af þessari ment-
un, þessum fróðleik, sem annars
hcfði forgörðum farið. Og alt til
skams tfma hefir þvf verið haldið
fram, að hvergi hefði alþýða staðið
á jafnháu mentunarstigi og þeir,
því að hjá þeim kynni hvcrt barn-
ið 8—9 ára að lesa og skrifa; fjöldi
þeirra vœru skáld og hjá þeim
hefðu, f seinni tfð, fleiri menn
náð hárrj mentun, en hjá nokk-
urri annari þjóð.
Þcssi orðrómur gekk á undan
I þeim, er þeir komu f land þrtta.
j Þjóðin enska var svo ofur stolt af
| þvf, að fá þessa menn inn í þjóð-
fjelag sitt. Það hefir verið biásið
j.um þetta í enskum blöðum og f
íslenskum ár fra ári og einlægt
hefir brúnin hækkað á iandanum
og brosið leikur á vörum hans; það
hefir rjetst úr hinum bognu bök-
um og augun litið hva'-slegar til
skýjanna upp úr hinum djúpu
skurðum, þvf að þ a ð vissu þó
allir, að dropinn, dropinn góði
var á lei.ðinni í hinn amerfkanska
menningarsjó!
Vjer vitum að það er margt í
þessu, enda er sá aumur, sem
ekkert hefir að hæla sjer af. En
nú, þegar hjer kom, fengu þeir
tætófærið. Ágætir skólar stóðu
þeim opnir og margir hafa notað
þá vel og sómasamlcga. Um
sveitir og bæji má segja, að fjenu
sje ausið f hendur þeirra til að
menta sig af, og margur maður-
inn heldur, að þcir haldi fram
sama strikinu og forfeður þeirra á
landinu í norðursænum við ísabrot
og cldþrungnar gjár.
En—ekki er alt gull sem glóir.
Mentamálastjórn Manitoba kvart-
ar um, að skólarnir sjeu illa sóttir.
Ný-Islcndingar, hinir eldri, kvarta
margir um, að landar sjeu ættlerar
að verða, skólakennararnir kvarta
um, að börnin sæki ekki skólana,
skólanefndirnar kvarta um, að
hvað sem þær reyni að gjöra for-
eldrunum til hæfis, þá fáist þeir
ekki til að láta börnin ganga á
skólana.
Og skýrslur stjórnarinnai um
skólagöngu í Nýja Islandi, eru svo
átakanlegar, að mestu furðu sætir,
og hið sorglegasta er það, að þess-
ar skýrslur er ekki hægt að
rengja.
Þær taka svo voðaiega f hrygg-
inn á öllu raupinu og guminu, á
þessari leiðinda sjálfshælni, að
menn standa orðlausir af undrun
og gremju. Þær sýna ástand lfk-
ast þvf sem væri f hinu barbar-
íska Rússlandi, eða hjá bálfviltum
Indíánum f hafsbotnum norður.
Skýrslur þcssar um skóla í Ný-
ja Islandi, höfum vjer fengið frá
mentamálasíjórn Manitoba og
koma þær í næsta blaði, svo að
menn geti sjcð það svart á hvftu,
hvernig málin standa, og mun
ekki fagurt þykja.
I'ramhald.
New-Zealand.
Nú á dögum má nærri segja,
að ekki gangi á öðru f þessum
framfaramesta hluta hins kristna
heims, en morðum, ránum, mút-
um, fjárstuldi ljóst og leynt; það
eru ekki smámennin sem stela,
heldur milliónerarnir, brautastjór-
arnir, þingmennirnir, embættis-
mennirnir. En, ef að vjer rekum
nú höfuðið Iftið eitt upp úr þessu
syndanna hafi, og horfum f kring
um oss, þá sjáum vjer langt í
fjarska, litla eyju cða eyjarT þar
sem það gengur alt öðruvísi. Það
er í New Zeaiand sem það er.
Fyrir einum 12—14 árum fór
stjórnmálamönnum þar, að koma
það til hugar, að vera kynni að
orsökin til glæpanna og syndanna,
væri nú ekki eins mikið afleiðing
af falli Adams, eins og af ástœð-
um manna Og fyrirkomulagi þvf
öllu, sem þeir ættu að búa við.
Svo tóku þcir sig til og sömdu
lög, ólfk öllum öðrum lögum, sem
nokkurntíma hafa áður verið sam-
in f heiminum. Og nú viður-
kendu allir viturleik þessara laga-
manna og laga þeirra, er þeir
siimdu.
Vfsindakona ein, Helen Gougar,
fór þangað að kynna sjer fólk
þetta og hefir haidið um það fyrir
lestra sfðan, og cr þetta innihald
þeirra hið helsta:
Þar á stjórnin, og lætur vinna
f: járnbrautirnar, telegraf, telefón,
vatnsleiðslu, kolanámur, lffsá—
byrgð, sláturhús, kjötmarkaði,
bakarí, niðursuðuhús og margan
iðnað annan. Á hverju ári er
einni eður annari grein bætt við.
Stjórnin lánar peninga fyrir
pr. c. Hún leigir möhnum land
fyrir 4 prósent af upprunaverði
þess. Stjórnin hjálpar mönnum
til að byggja húsin, að kaupa
verkfæri öll og sjer bændum fyrir
útsæði. Börnin cru flutt frftt á
skólana á járnbrautunum, verka-
mennirnir ti) vinnu sinnar og
bændurnir á markaðinn fyrir e i 11
ccnt á míluna. (Dálítið billegra
en f Nýja íslandi.) Börnin nátt-
úrlega frítt. Ef að deila rfs milli
verkveitanda og verkþiggjanda,
þá er málinu þegar skipað í gjörð.
Kýs verkveitandi e*nn manninn’
vcrkamaðurinn annan, en hinn
þriðji er yfirdómari hins æðsta
rjettar. P'Ieiri eru gjörðarmenn
ekki. Hið minsta lögboðið kaup,
er þar 25 cents á tfmann. Með-
alkaup er þar $2.50 á dag fyrir
8 tfma vinnu.
Enn þá er þar leyft einstöku
mönnum að eignast land, en þó
engum meira en 640 ekrur af ak-
ur og engjalandi, en hálfu meira,
sje landið að eins haft til beitar.
Ekki þekkja menn þar atkvæða-
kaup cða pólitfskar mútur og ekki
láta embættismenn þar múta sjer.
Frú Gougar segir ennfremur:
,,Þar er hvorki millióneri, eða
trust, eða fátækrahús eða fanga-
hús hvar scm farið er um það
rfki. Menn eru þar, að jafnaði,
rfkari en í nokkru öðru landi Og
þar eru færri fáfróðir asnar og
færri glæj-amenn, en nokkursstað-
ar annarsstaðar tiltölulega. Árs-
laun, sem cllistyrkur, eru veitt
körlum og konum yfir 65 ára að
aldri, þetta frá $100—250 á ári
hverju og eru þcir ekki álitnirþurfa-
menn, heldur að þeir hafi verð-
skuldað það með heiðarlegri vinuu
og lifnaði.
Frægur dómari Clarke, að nafni,
segist víða hafa farið um lönd, og
hvergi fundið menn jafn ánægða,
eins og f New Zealand. Það land
er ekki fyrir auðmeun sem lifa á
svita annara, heldur fyrir dugandi
menn sem vilja látahendur standa
fram úr ermum.
Hvar er nú New Zealand?
1
Leitið að þvf f kortinu drengir.
Skyldu þcir fara þar til vftis
allir?
Ja, hver veit?
Dr. E 1 i 0 t.
Hálfskrítið er það, þegar svein-
staular, í mentalegu tilliti, fara að
ráðast á þann mann, sem viður-
kendur er hinn mesti mentamaður
f Ameríku, forseta Harward há-
skólans, dr. Eliot, og reyna að
telja mönnum trú um, að hann
sje græningi einn.
Þetta er þvf lakara, sem grein
þessi: ,,Unitara vantrúin" í Sam-
einingunni, ág. 1905, er á köflum
skarplega skrifuð, og er nokkurs
konar tálbeita soltinna þyrsklinga
f trúarefnum.
Jeg sá dr. Eliot f hinu afar-
mikla Fremont Hall f Boston og
flutti hann þar fyrirlestur um sögu
Unitara. Áheyrcndur voru um
4.000 Þegar Eliot kom fram á
pallirvn, fanst mjer sem sæji jeg
gamlan vin, sem clskaður var og
virtur af öllum Norðlendingum.
Það var Gautlanda Jón, gráhærð-
ur, fjörugur, brosandi, keskinn. | heitið.
ef þau hvorki skaða sig nje aðra.
Það eru hafðar gætur á þeim,
en ekki lögð hörð höft á þau.
í stuttu máli að segja, þá er þeim
lofeð að vera svo hrekkjóttum, að
japanskt máltæki eitt segir: ,,Jafn-
vel holurnar við veginn hata jap-
anska drenginn 7 eða 8 ára gaml-
an“.
Þeim er ekki hegnt nema ð-
mögulegt sje hjá þvf að komast.
En, sje þeim refsað á annað borð,
þá safnast alt heimilisfólkið saman,
ungt og gamalt, og allir biðja hin-
um seka vægðar. Hinir litlu
bræður hans og systur bjóðast
tll að taka á sig refsinguna f hans
stað. Börnin eru aklrei hrædd
með hámæltum, hranalegum orð-
um, eða reiðum svip og ygldum
brúnum. Refsingin fer fram,
með svo mikilli ró og stillingu,
sem mögulegt er, og hóglátum
áminningum á meðan refsingin
stendur yfir. Þykir það rudda-
skapur hinn mesti, að slá f höfuð
barnanna. Það er óvanalegt, að
refsa börnum mcð þvf, að banna
þeim að lcika sjer eða neita þeim
um að borða, eða um nokkra
skemtun, sem þau hafa vanist.
Siðferðislögmál Japana heimtar að
þeim í öllu sje sýnd hin mcsta
þolinmæði.
í skólunum byrjar hinn regln-
legi barnaagi, en f fyrstu er bann
mjög Ijcttur og getur valla agi
Höfuðið var hvftt af hærum,
skeggið bar hann alveg eins og
Jón og hvatleikurinn öllu meiri,
þó að Jón væri fjörugur. Á vöxt
voru þeir mjög lfkir og f öllum
látbrögðum, nema hvað Eliot var
nokkuð hærri og þrcknari.
Hann talaði hátt og snjalt og
þúsundirnar sem á hann hlustuðu,
eins og drukku f sig hvert einasta
orð, það var eins og menn hjeldu
niðri í sjer andanum; þeir vildu
ekki tapa af einu einasti orði eða
einni setningu, en þó gátu þeir
ekki stilt sig stundum og braust
þá út eins og kvika mikil af
,,Bravó“ hljóðum og veltist yfir
höfuð þúsundanna og bergmálaði
f hinum háu hvelfingum, en svo
varð dauða þögn aftur, þvf að
menn vildu hlusta. Og það var
ekki skrfll þarna inni, heldur hinn
mentaðri hluti Bostonborgar og
erindrekar úr öllum áttum heims.
Enginn spámaður hefir nokkurn
tíma talað snjalfara máli. Eng-
inn spámaður hefir haft meira
sannfærandi afl f ræðu sinni, Já,
þegar smámennin í Sameiningunni
Kennarinn kemur ekki fram
sem herra barnanna, heldur sem
eldri bróðir þeirra og refsingar
ekki aðrar, en opinberar áminn-
ingar. Aðhald það, sem börnin
hafa, er aðallega álit sambekkinga
þeirra og góður kennari getur
jafnan ráðið hvaða stefnu það
tekur.
Hverjum bekk stjórna tveir
litlir foringjar (Captains), sem
kosnir eru fyrir staðfestu sfna og
vitsmuni; og þegar framkvæma
þarf eitthvert óþægilegt boð, þá er
það falið á hcndur hinum litla for-
ingja. í hærri bekkjunum harðn-
ar aðhaldið, og í æðri skólunum,
er það álit sambekkinganna sem
ræður, en ekki einstaklings vilji
kennarans.
Lffi sambekkinganna stjórnar
aldrei hald einstaklingsins yfir
fjöldanum; heldur æfinlega vilji
fjöldans. Og þetta vald cr ákaf-
lega sterkt. Hver nemandi, sem
brýtur á móti vilja og tilfinningum
sambekkinga sinna, er einangrað-
ur. Enginn vill tala við hann,
enginn læst sjá hann eða vill hafa
fara að rjetta hendur í höfuð dr. j nokkur afskifti af honum, jafnvel
Eliot, þá firist manni skörin vcra i ekki utanskóla, þangað til hann
farin að stfgji upp f bekkinn.
Japanskur agi.
—:0:—
Skólaár japanskra barna byrja
vanalega við 7 ára aldur eða rjctt
þar yfir og njóta þau allan þann
tfma meira frclsis og sjálfræðis, en
önnur Austurlanda-börn. Hinn
nafnkunni rithöfundur Lafcadio
Hearn segir, að börnunum sje
leyft að gjöra alt hvað þau vilji,
er búinn að biðja opinberlega
fyrirgefningar, og er það þá kom-
ið undir meiri hluta atkvæða.
Álit stjörnufræðinga
UM
Aldur heims.
*
Ef að ekkert slys kemur fyrir
jörðu þesa, þá ætla stjörnufræð-
Framh. á 4. síðu.