Baldur - 15.08.1906, Blaðsíða 2
2
BALDUR, 15. ÁGtfST 1906.
ER GEFINN tÍT Á
GIMLI, ----- MANITOBA
OHAÐ YIKUBLAÐ.
KOSTAR $1 UM ÁRIð.
HORGIST FYRIRFRAM
ÍÍTGEFENDUR :
THE GIMLI PRINTING &
PUBLISHING COMPANY
LIMITED.
UTANÁSKRIFT TIL BLAðSINS :
G-XTÆILI,
XÆVYXT.
Vetðástnáum »ug!ýsiogum er 25 cent
fyrir þuinlung dáikslengdar. Afsláttur er
gefinn á stœrri auglýsingum, sem birtast í
blaðinu yfir lengri tfma. Vðvíkjandi
■líkum afslœtti ng öðfum fjármálum bl»ðs
íns, eru menn beðnir að sLÚa sjer að ráð»
manninum.
€
MIðVIKUDAGINN, 15. ÁGÚST. 1906
Fjarstæða.
í all-lilngum og að rnörgu leyti
fróðlegum ritgjörðarkafla um Kfna,
scm birtist f 27. númeri Liigrjettu,
oger cftir Dr. Steingrím Matthias-
son, segist höfundinum á pessa
leið :
„Óbreyttir kínverskir vinnu-
menn—Kúlfar, sem kallaðireru,—
hafa á seinni árum farið hópum
saman til Ameríku og enskra ný-
lenda. Þeir gjiira sig ánægða mcð
langtum lægra kaup en nokkrir
aðrir, þess vegria erþeim tekið
tveim höndum af öllum vinnuveit-
endum, en mjiig amast við þeim
af þarlendum vinnulýð, semtreý’st-
ir sjcr ekki að vinna fyrir jafnlágt
vinnukaup, og missir þessvcgna
alla atvinnu. Verkamannaflokk-
urinn bæði f Ameríku og öllum
hinum Enskutalandi heimi hefir
þ\’f svarið sig saman gegn þessum
gulu keppinautum, og hefir fengið
þvf framgengt hjá þingi og stjórn,
bæði f Ameriku og á Englandi, að
allhörð lagaákvæði hafa verið gefin
út, sem hefta innfiutning alls kfn-
versks vinnulýðs. Útal' þcssu
hefir sem auðvitað er, risið hin
megnasta óánægja meðal Kínverja,
og hefir það skarað eld að hatuts-
glóðuin þeim sem stöðugt lifir f
gegn hvftum mönnum f Kína.
Er nokkur sanngirni f þvf.að veita
öllum öðrum þjóðum opinn að-
gang en Kfnverjum, vegna þess, \
að þeir cru gulir á hörundslit og1
cru nægjusamari og duglegri en j
hinir? Vinnan, sem þcir afkasta, I
1
er jafngóð, og jafnvcl bctri en!
hinna, og ,,af verkunum skuluð!
þjer þakkja þá,“ en þar á ofan
heimta þeir langtum, langtum j
lægra kaup. Lrá fyrstu morgun-1
skfmu fram á dimma nótt vinna
þeir í sveita sfns andlitis og eru
ánægðir mcð hrfsgrjón í stað
brauðs, til þess að fylla soltinn
maga, og máske 25 aura i dag-
kauj>. Þessir 25 aurar fullnægja
daglegum þiirfum stórrar fjöl-
skyldu. Jeg dáðist að þcssum
gulu grjótpálum, þegar jeg bar þá
saman við hinn heimtufreka verka-
mannalýð hjá Vesturþjóðunum.—
Voru þeir ekki f rauninni miklu
ágætari en þeir? Jeg sá báða
vinna að svipaðri vinnu við upp-
skipun og annað, kfnverska vinnu-
menn eystra, en franska, enska,
sænska og danska verkamenn!
vestra.—Evrópisku vinnumenn- j
irnir vilja hélzt ekki vinna lengurj
en 8 klukkustundir til þess að geta
sofið aðrar 8, en slæpst hinar 8
sem eftir eru; þeir heimta tífallt
og þaðan af mcira kaujj á við Kfn-
verjann, til þcss að geta keypt
sjer áfengi til heilsuspillis, svallað
og skemmt sjer og gengið með
flibba og mansjettur“.
Maður getur ekki að þvf gjört,
að verða í meira lagi hissa við að
sjá cinn af hinum ungu mennta og
gáfumönnum Islands skrifa svona
gálauslega. Maður skyldi ætla, að
cinhver samvizkulaus auðkýfingur
hefði skrifað þennan grcinarkafia
—-einhver,sem ekki getursjeð ann-
að en það, að hið æðsta hlutverk
alþýðumannsins sje : að þræla sem
mest, svelta eins lengi og hann
getur,
og sofa sem minnst svo
hann geti framleitt sem mest og
unnið sem inest fyrir húsbónda
sinn.
Vi 11 ekki doktorinn gjöra sjálfan
sig að daglaunamanni.í líkingu við
kfnverska Kúlfa,svo sem mánaðar-
tíma, og segja mönnum svo hvaða
skoðun hann hefir á þvf, að fá 25
aura fyrir að vinna ,,frá fyrstu
morgunskfmu,fram ádimma nótt“?
Ætli þcssi Ijettúðarlega og gálausa
hagfræði hans yrði þá ekki farin að
verða töturleg ?
Það er allsendis ótrúlegt að Dr.
Stgr. Matthiasson skilji sjálfurhvað
hann er að kenna f þessum boð-
skap sfnum. Ef hann hefir nokk-
uð erft af mannúð og tilfinninga-
semi þeírri, sem gengur f gegnum
ljóð og lífsferil föður hans, cins og
margt af þvf, scm hann hefir skrif-
að virðist benda á, þá erómögu legt
að ætla honum það, að það sje í
samræmi við hans innsta eðli, að
sjá suma af meðbræðrum sínum
þræla dag og nótt fyrir litlu kaupi,
til þess að þeir ríku skuli verða rík-
ari,og til þess að fjöldi manria skuli
inissa atvinnu. Það er sýnilega
hugsanaleysi, en ekki eðlisfar, sem
veldur þvf, að greinarhöfundurinn
lætur aðrar eins skoðanir útf rá sjer
ganga eins og hjer birtast. Ef
geinarhöfundurinn hefði verið’kapf-
talisti“, eða cf hann hcfði verið
þckktur að harðýðgi og ásælni, þá
hefðu þessar sljoðanir hans verið f
alla staði cðliiegar, cn af þvf hann
er að ætlun vorri hvorki ’kapítal-
isti‘ nje harðýðgisfullur maður, þá
vcrða þcssar skoðanir hans að álítast
fjarstæðasprottinafþekkingarskorti
og gáleysi, Það erallt annað að fást
við læknisstörf óg náttúiuvísindi
en að fástvið verkmannamál og hag-
fræði; og vjer viljum ráðleggja Dr.
Stgr. Matthíassyni að athuga það
næst frá mannúðarinnar sjónarmiði,
en ekki einvörðungu frá sjónarmiði
vinnuveitandans, sem safnar auð
mcð þvf að fá mikla vinnu fyrirlít-
ið kaup, hvort dálæti hans á þess-
um kfnvcrsku ,,grjótjválum“ sje
ckki fremur fljótræðishajal, en lofs-
verð viðurkenning.
Það er ótrúlegt, að Dr. S. M.
hafi þá skoðun,að það eigi að fórn-
færa öllum lífsnautnum meiri hluta
mannkynsins á altari sparseminnar
í heimí, sem getur framleitt,
og framlciðir meira cn nóg fyrir
alla jarðarbúa. Óhóf er löstur, og
sparsemi sú, scm rænir menn 1/fs-
nautnum þeirra, er lfka löstur, ef
hún er ekki blátt afram afleiðing af
fátækt. En sje hún aflciðing af
fátækt, og sprottin af ágengni
og kúgun, þá cr hún aðeins neyð-
arúrræði, sem bezt væri að þurfa
sem sjaldnast að brúka.
Það er aðeins nokkur hluti fólks-
ins í heiminum sem vinnur, og
þessi hluti fólksins framleiðir í
mörgum greinum meira en heim-
urinn þarf við, bæði lyrir þá scm
vinna og þá sem ekki vinna, en sá
hlutinn vinnur lfka oft meiri hlut-
ann af sólarhringnum, eins og Dr.
S. M. segir að Kínverjarnir gjöri.
Hvers vegna vinna menn svona
langan tfma fyrir litlu kaupi? Er
það af þvf,að það sje svo mikil lífs-
nautn í því? Nci, nei. Það er
ekki einu sinni lffsnautn í því fyr-
ir Kfnverjann. Orsökin er sú, að
menn eru nauðbeygðir til þass, af
því útbýtingin og vinnuskiftingin
er röng. Kínverjinn er ckki enn
farinn að kannast við að hún sje
röng, en Vcsturlandaþjóðirnar sjá
það og skilja, að meiri hlutinn af
vinnandi fólki í heiminum er að
framleiða auð handa fáeinum hús-
bændum eða auðsöfnunarstofnun-
um, sem geta aðeins fengið sinn
auð með þvf að ræna þá sfnu
rjettmæta kaupi scm hjá þeim
vinna, og sem geta aðeins rænt
þá sem hjá þcim vinna mcð þvf,
að láta þá vinna svo lengi á sólar-
hringnum, að það komist ekki
nema sumir af þeim að vinnunni
scm þurfa að fá hana, svo allt af
sje nóg af iðjulausum mönnum,
sem bjóði sig fyrir hvaða kaup
sem boðið er og vinna hvaða
tfma sem bcðið er um.
Spurningin fyrir vestrænu þjóð-
unum, verkalýðnum eins og öðrum,
erað verðasú,að skapa lífsþægindi
með vinnunni, en ekki að skapa
hauga af auðæfum á einum stað og
örbyrgð á öðrum, og þcss vegna
krefjast vestrænu verkamennirnir
þess, að vinnutfminn sje styttur,
svo aí allir fái vinnu, og að frnm-
leiðslan sje ekki látin að mestu
leyti ganga til auðsöfnunarstofnan-
anna, heldur sje ágóðanum deilt
milli þeirra, scm skajia ágóðann
með vinnu sinni. Þetta finnst Dr.
S. M. víst öðruvísi en það á að
vera. Það cr hræðilegt.að óbrot-
inn vcrkamaður skuli gjöra kröfu
til þess að mega gánga með „flibba
og mansjettur“ og þurfa ekki að
vinnafrá„fyrstu morgunskímu fram
á dimma nótt“! Það er hatramlegt
að þeir skuli ekki gjöra sig ánægða
með það, að fæðast, lifa og deyja
scm akncyti og áburðarjálkar
vissra stjetta eða vissra flokka 1
Þeir ættu þó sannarlega að vera
ánægðir með að fá að lifa á jörð-
unni, cf þeir mcga sofa f sex
klukkustundir á hverjum sólar-
hring og fá 25 aura í kaup fyrir
hina átján.
Það hefir mörgum auðkýfingi
gengið illa að skilja ástæðuna
fyrir óánægju verkamannanna
yfir svona glæsilegum(l) lífskjör-
um. Það cr samt til ein óyggjandi
leiðsögn í þvf að skilja það mál, og
þá leiðsögn skulum vjer gefa Dr.
S. M. hjer, eða hverjum öðrum
sem á henni þarf að halda. Hún
er sú—að gjörast verkamaður með
25 aura kaup á dag, og 18 klukku-
stunda vinnutíma. Ef sú lexía
dugar ekki, þá er nemandinn ann-
aðhvort Kínverji eða uxi.
E. Ó.
,,Jeg vil að þeir
þekki mig eins
. °g jeg er“.
—:o: —
Þessi orð fjcllu af vörum Johns
D. Rockefcllcr þegar hann steig á
land í Nev York. fyrir nokkrum
dögum. Þau eru eftirtektaverð
f mesta máta þcssi orð. Fyrir
nokkrum vikum flúði hinn aldraði
miljónacigandi til Evrópu, um það
bil sem verið var að hefja ákæru
gegn horium fyrir að mynda sam-
særi, til þess að fá jámbrautarfje-
lög til að gefa sjer leynilega og
lögum andstætt afslátt á flutnings-
gjaldi.
Málinu var haldið áfram þó
Rockefeller færi úr landi, og nú
þegar hann kemurtil baka, til þess
að gangafram fyrir dómstól þjóðar-
innar, sem hann hefir fjeflctt af
öllum mætti, og með öllum hugsan-
legum brögðum, cr eins og hann
verði þess var, að hann hafi keyjjt
miljónirnar sfnar ofdýru verði. Og
svo segir hann um leið og hann
stfgur fæti á fósturjörð sfna : ,,Jeg
vil komast nær meðbræðrum míri-
um; eg vil að þeir þekki mig eins
og eg er“.
Þó Rockefeller hafi haft 6otil8o
miljónir manns f kringum sig, þá
hcfir hann aldrei komizt nálægt
meðbræðrum sínum.—Ekki kom-
izt nálægt meðbræ’ðrum sínum ?
og þó hefir hann haft hendurnar í
vösum þessara 60 t: 1 80 miljóna
oftar en nokkur annar maður. Jú,
nálægt þeim hefir hann komizt, þó
hann hafi aldrei komizt að hjarta
þeirra. Að hjarta þcirra gat
hann ekki komizt, þvf miljónirnar,
scm hann hefir rænt með laga-
brotum og yfirgangi eru á milli
hans og þeirra. Hann kaus sjer
eitt, og hann hefir eignast annað f
aukagetu—hann kaus sjer miljónir
og hann hcfir fcngið að auki fyrir-
litningu. Með rniljónunum getur
hann ekki keypt til baka það sem
hann hefir fyrir þær goldið, og
svo stendur hinn aldraði þræll
auragirndarinnar einmana og nið-
urheygður á meðal 80 iniljóna
mcðbræðra sinna, sem hann finn-
ur að fyrirlfta sfnar gráu hærur,
og segir : „Jcg vil komast
nær meðbræðium mfnum; jeg
vil að þeir þekki mig cins og jcg
cr“. A meðan hann var að læsa
greipum um lífsskilyrði þjóðar sinn-
ar bað hann ekki uni að menn
þekktu sig. Það var á leyriistfg-
um lævísninnar að hann læddist
þá, eins og fleiri, scm hafa fyrst
ætlað að verða rfkismt nn og svo
MENN. Og þegar hann svo finn-
ur, að ríkidæmið hans f einu til-
liti er fátækt í öðru tilliti, þá virð-
ist hann í fyrsta skifti finna til
þess, að Iffinu hefir verið illa variö,
og að hann er orðinn fyrirlitinn
útlægi í heimi, sem hann hjclt að
hann ætti að tniklu leyti sjálfur.
Það ætti óneitanlega að vera
lexfa í þessu fyrir alla, sem hafa
hugsað sjer að þræða sömu götu
til farsældarinnar eins og John D.
Rockcfeller, en það væri samt
glópska að hugsa, að svona lexfa
væri nægilegtil þess að vemda þjóð-
lffið fyrir yfirgangi einstaklinga
af sama tagi. Sú eina vernd sem
dugar gegn þvf, eru lagaskorður,
og bein yfirráð þjóðarinnar yfir sfn-
um yfirgripsmeiri atvinnuvcgu m.
Það eru fleiri en J. D. Rocke-
fellcr sem hafa orðið þess varir að
þeir hafi goldið of mikið fyrir
auðinn sinn, cn þcir hafa sjaldnast
fundið til þcss fyr en Elli bauð
þeim tíl glfmu og kom þeim á
knje. Og þó John D. Rockofell-
cr* sjái nú glópsku sfna, þá koma
aðrir á eftir,scm ekki skeyta um að
komast nálægt meðbræðrum sín-
um fyr en þeir sjálfir standa ein
manameð afbrotsín meðal miljóna
samborgara sinna, eftir að hafa
unnið þeim óútreiknanlegt tjón.
E. Ó.
í Wilkisbarre vildi það til sem
vfðar, að maður nokkur úngur og
upprennandi girntist dóttur rfks
nágranna sfns. Þegar honum
fannst tími til kominn, fór hann á
fund föður stúlkunnar, til að ráðg-
ast við hann um þetta áhugamál
sitt. ,,Nú rjctt erþað“, rumdi í
gamla manninum, ,,enþað sem mig
langar mest til að vita er, hvað þú
hefiir hugsað fyrir framtíðinni“.
,,Ó“, hrópaði tengdasonurinn til-
vonandi, ,.,eg tilheyri Presbytera
kyrkjunni, en ef þú vilt heldur að
tilheyri annari kyrkju, þá er cg
reiðubúinn að breyta til“
Jón: ,,Þú ert á glötunarvegi".
Árni: ,,Vegna hvers? Iívað
hcfi jeg gjört ?
Jón: ,,Þú kallaðir hann Björn
bróðir þinn guðleysingja þcgar
hann var búinn að halda van-
trúarræðuna í gærkvöldi".
Arni: „Enþað var þó alveg satt“.
Jón: ,,Þú ert jafn sekur fyrir
því. Biblían bannar það“.
*John D. Rockefeller er aðal-
maðurinn f Standard Oil-fje-
lagittu, sem áður hefir verið
minnst f þcssu blaði í sam-
bandi við $4000 árságóða til
jafnaðar af hverjum manni,
sem það hefir f slrini þjón-
ustu, og sem fjel. geldur að
jafnaði svo sem $360 til $400
í árskaup.