Baldur - 07.08.1909, Qupperneq 4
■R A L D U R, VII. ár, nr. 3.
HEIMAFRJETTIR.
¥
Norðan úr Geysirbyggð frjettist,
að þar hafi á mánudaginn brunnið
hús ogfjós hjá hr. Hróbjarti Helga-
syni. Sagt er að nokkru af inn-
anstokksmunum hafi verið bjargað.
Hr. Ólafur Bjarnason og Feldfs
kona hans, scm búa hjer á Gim!i
misstu nýlega ungt barn; og ensk
kona, Mrs. Hcpkins, andaðist
einnig hjer í bænum í sfðastliðríum
mánuði.
Hinn 27. júlí sfðastl. andaðist
Bjarni Jónsson,
hjer á heimili tengdasonar sfns,
hr. Guðm. B. Jónssonar, og Mar-
grjctar konu hans. Bjarni heitinn
var nálega hálfnfræður, og orðinn
ellihrumur fyrir all-löngum tíma.
Bjarni sál. var sonur Jóns Jóns-
sonar læknis Einarssonar í ísa-
fjarðarsýslu, og Kristfnar Ásgeirs-
dóttur frá Rauðamýri á Langadals-
strönd, föðursystur Ásgeirs Ás-
geirssonar stórkaupmanns á ísa-
firði og f Kaupn.annahöfn.
Bjarni sál. bjó lengi á Víðivöll-
um við Steingrímsfjörð í Stranda-
sýslu, en kom til Amerfku sumarið
1 888, og hefir sfðan verið hjá fyr-
nefndri dóttur sinni og manni
hcnnar.
Sagt er að Bjarni sál. hafi verið
hinn mesti atorkuinaður og fram-
úrskarandi hjálpsamur við fátæka
meðan efni leyfðu.
Þau hjónin, hr. G. B. Jónsson
og kona haus, hafa beðið Baldur að
flytja sitt innilegasta þakklæti öíl-
um þeim, sem veittu Bjarna sál.
liðsinni í hans langvinna ellilas-
leika, og einnig þeim sem heiðruðu
útför hans með nærveru sinni.
Mesti fjöldi af ensku fólki er nú
loksins kominn f skilnjng um það,
að fallcgra sje hjcr á Gimli heldur
en víðast annarstaðar f nánd við
Winnipegborg, enda flykkist það
nú hingað, til að njóta sumarfrí-
stunda sintia. Á Lai<eview hótel-
inu er nú alveg húsfyllir af þessu
fólki, enda setti hr. J. G. Christie
alla hluti svo f lag hjá sjer f vor,
vatnsverk og Ijósaútbúnað o. fl.,
að þetta gistihús hjer á vatnsbakk-
anum, scm kalla má sanna bæjar-
prýði, stendur ekki nú orðið f
ne;nu verulegu stórborgahótelum
neitt á baki.
Þeir íslendingar f öðrum byggð-
arlögum, sem hafa tök á að veita
sjer það, að fá sjar dáhtla frfstund
sjer til up.plyftingar, gcta naumastl
fundið ákjósanlegri stað til þess:
heldur en nú cr orð.nn hjer á Gimji. i
Það gengur að vissu ieyti næst |
þvf að breftða sjer heim til gam a
landsins, —en kostar minna.
Þjcðhálfðarhald fór hjer fram 2.1
ágúst eins og til stóð. Miðað við
reynsiu undanfarinna ára tókst það
mikiu betur en nokkur bjóst við,
og vcrður það að líkindum til þcss,
að trenn vcigrí sjer ekki við því
1
framvegis, að kjósa kvennfólk í
þjóðhátfðarnefndina. , Þótt nfu
manns væri f nefndinni í fyrstu,
olli heilsuleysi og önnur forföll því,
að tveir og tvær þeirra, sem f
nefndinni voru, urðu að bera lang-
mest af áhyggjunum. Auk þess
sem nefndin á þannig þakkir skilið
fyrir sína fiammistcðu, megum við
Gimhbúar kutina fólki víðsvegar að
ynnilegustu þakkir fyrir þcss hlut-
töku. Þegar á allt er litið var það
gestunum, — af öllu svæðinu
“sunnan frá Læk og norður að
Fljóti,” — langmest að þakka
hvað hátíðarhaliið varð að þessu
sinni ánægjulegt öllum, sern þar
voru saman komnir.
Beztu þökk og heiður bæði
nefnd og almenningi, sem nú
sýndi, í þessum eina fslenzka bæ í
Vesturheimi, — þjóðrækni sfns
eigin hugarfars svo verðugan sóma!
Og heilar óskir fyrir hin ó-
komnu ár!
Þrjár allfjölmennar skemmtifarir
hafa verið hingað í sumar, bind-
indismannafurin, bandalagsfiirin,
og bjórgjörðarmannaförin, /5ðru
nafni “Drewry’s Pikknikkið.” í
hinu sfðastnefnda munu íslending-
ar-lítinn eða engan þátt hafa tekið,
en langmest fjölmenni hafði þar
verið saman komið, og að sögn er
það þeirri skemmtun til frægðar að
telja, að þar hafði.bjór verið veitt-
ur ókeypis hverjum sem hafa
vildi; en vafalaust hefir það frerr.ur
verið gjört í auglýsingarkynjuðum
tilgangi heidur cn til þess að efla
svall 'f samkvæminu. Hinar
skemmtifari-nar voru sama sem
alísienzkar, og fór bindindismanna-
skemmtunin eins vel fram eins og
• • # '
venjulega gjörist, var vel stjórnað
og virtist að öllu leyti sæmilega
góð. Hin skemmtunin aftur á
rnóti sú ljelegasta, sem hjer hefir
verið, og inun sönnu næst, að þar
hafi um enga stjórn og lftið pró-
gramm verið að ræða eftir að út f
garðinn var komið. Það þarf end-
ilcga næsta ár að verða betur le/it
af hendi, og ekki er á þetta minnst
’njer af neinni kyrkjuiegri úlfúð,
heldur af þvf, að ef þeim, scm
“helztir eru haldnir” finnst það
fuilgott að kasta höndunum til
verka sinna, þá er hætt við að
þcir vandi sig miður á eftir, sem
síður þykjast til þess kallaðír, að
vera fólksins fyrinríynd.
Eirinig skal það tekið fram, að
ekki væri sanngjarnt að kenna
foritiiðurnönnum fararinnar um
það, þótt það slys yrði þenna dag,
að eiriri Gimlipilturinn, Sveinbjörn
K. Valgarðson, beinbrotnaði. Að
fara að gjöra yfirlýsingu uin það í
blöðunum, eins og gjört er f síð-
ustu Hkr., að viss sifnuður hafi
ckki átt nokkurn tíma hiut að
ináli, þar sem siysfarir hafi orö;ð,
er le.ðiniega sjálfsrjettiætingarfullt'
Það rifjar upp ummælin um turn-
inn f Sfióam, og virðist svo scm
það ætti einmitt að sitja mjög illa
á þcirri kyrkju, sem verið er í
þessu sambandi að eigna hina
sjerstöku 'guðs náð. ’
UMBODSMADUR FYRIR
LONDON MUTUAL Fire Insurance Co.
MONTREAL-CANADA Fire Insurance Co.
ANGLO-AMERICAN Fire Insurance Co.
EQUITY Fire Insurance Co.
*
* *
Tryggið hús og eignir yðar gegn eldsvoða, í einhverju af þess-
um fjelögum, sem eru sterk og áreiðanleg.
Þegar yður vantar sleða, vagna, sláttuvjelar, hrífur og önnur
jarðyrkjuverkfæri, þá sjáið mig því viðvíkjandi.
Verkfærin eru góð.
Verðið sanngjarnt.
Skilmálar fyrirtak.
G. P. MAGNUSOSN.
GIMLI. MAN.
FINNIÐ
UMBOÐSMANN MINN A GIMLI.
grggSJSfSL’LJ L —!!5!I!JJ!li!!^i J.. JJU! UMIll ,L — ■■AftT ■»7ir*,Jljnw'1MJIII-llllll I Hl .1
/ '
Hann er ætfð reiðubúinn til að taka á móti yður og afgreiða þarfir
yðar. —'Hann hefir nú allar tegundir af líkkistum og öllu þar að lút-
andi. Sömuieiðis hefir hann sbánnýja blómkransa, — til að láta
ramma — með sanngjörnu verði.
Finnið umboðsmann minn á Gimli, hr. Elis G. Thomsen.
A. S. BAEDAL,
UTFARARSTJORI.
121 Nena St. Winnipeg. .
TALSÍ AIAK: — Skifstofa 306. Ileimili 304.
THE GIMLI
TZE^JJDIJ^TQ- C°.
GIMLI. MAN.
- • ,
Seiur cftirfylgjandi vörur með miklum afsiætti yfir marzmánuð
meðan þær endast:
Karlmanna snjósokka
, Drengja snjósokka.
Leðurvetlinga.
Stakar buxur.
F irlmanna nærfatnað.
Karlmanna peysur.
Drcngja péysur.
Þykkar karlrnanna skyrtur.
Stök vesti.
Drengja nærfatnaður.
Þykk blankctt.
Einnig birgðir af eftirfyigjandi vörum, sem að við scljum m
eins lágu verði eins og fíægt cr, fyrir borgun út í hönd :
Groceries. Trjefötur.
Patent meðul, Álnavörur.
Leirvöru. Stífskyrtur.
Axarsköft Overalls.
Brooms. Skófatnað.
Og margt fleira.
GIMLI. TRADING C°.
Bonnar, Trueman & Thornburn.
BARRISTERS &.
Telefón: 766. P. O. B0X158.
WINNIPEG, — MAN.
Mr. Bonnar er langmesti málafærslumaðurinn í fylkinu.
' /.
HESTAR
TIL SOLU.
HÆFIR FYRIR
ÞUNGAN DRATT OG
ALGENGA VINNU.
Finnið
THOS. REID
SELKTEK.
ÁGRIP AF HEIMILISRJETT-
ARREGLUGJÖRÐ FYRIR
CANADA-NORÐVESTUR-
LANDIÐ.
Sjerhver manneskja, sem fjöl-
skyldu" hefir fyrir að sjá, og sjer-
hver karlmaður scm orðinn er 18
ára gamall, hefir heimilisrjett til •
ferhyrningsmílufjórðungs af hverju
óföstnuðu stjórnarlandi, sem til er
f Manitoba, Saskatchewan og A1
berta. Umsækjandinn verður að
bera sig fram sjálfur á landskrif-
stofu eða undirskrifstofu hjeraðs-
ins, Með vissum skilyrðum má fað-
ir, móðir, sonur, dóttir, bróðir,
eða systir umsækjandans sækja uin
landið fyrir hans hönd.
SKYLDUR. — Sex mátiaða ábúð'
á ári og ræktun á landinu í þrjú ár.
Landtakandi má þó búa á bújörð,
sem ekki er smærri en 80 ekrur,
og sem er eign sjálfs hans, eða
föður, móður, sonar, dóttur, bróð-
ur, eða systur lians.
í vissum hjcruðum hefir land-
takandinn forkaupsrjett að annari
bújörð áfastri við sfna, fyrir $3.00
hverja ekru. Þá lengist ábúðar-
tfminn upp f sex úr og 50 ekrum
meiia vcrða þá að rækta.
Landleitandi, sem hcfir eytt
heimilisrjetti sfnum og kemur ekki
foi kaup.srjettinum við, getur fengið
land keypt f vissum hjeruðum
fyrir $3.00 hverja ekru. Þá verð
ur hann að búaálandinu sex mán-
uði á ári hverju f þrjú ár, rækta 50
ekrur og byggja $300.00 hús.
W. W. CORY,
Deputy of tha Minister of the Interior
60 YEARS'
EXPERIENCE
Trade Mar«S
Designs
COPYRIGHTS &C.
Anrono sonrtlng a nketcb and dosciiptlon may
qnlckly /iscortain onr oplnion free whother an
iuvention la prchably patentabíe. Commqrnlca*
tlonBntrlctlyconfldontlal. HANDBOOK onPatent*
eent free. Uldest agenc/ for securing patents.
Patents takcn throuch Munn & Co. rocelve
8vecial notice» without charf/e, in thð
A handsomoly iliustrated weekly. Larprest cir-
cuíation of any soientlflc Joiirnal. Tertns for
Canada, |3.75 a year, poatage prepald. 8old b>
all newsdealers.
<|0QB3e*Bro?«dway,(
Brancb Offico, 626 F 8t., Waohington, D.C.''
KAUPENDUR
BALDURS.
Gicymið ekki að gjöra aðvart
þegar þið hafið bústaðaskifti.