Birkibeinar - 01.03.1912, Blaðsíða 7
BIRKIBEINAR
23
Hún segir hann skuli vita, hvað hann sé duglegur og
geti náð yfir margar fjalir:
Stígur hann og stígur hann,
stígur hann með snilli,
Fjórar heíir hann fjalirnar
* fóta sinna á milli.
Nonni eldist, og nú getur mamma farið til vinn-
unnar; nú er hann orðinn heilmikill karlmaður;
Litli Jón er þarfur þjón,
þiggur lítinn greiða.
Farinn er hann fyrir nón
fiðrildin að veiða.
Þessar örfáu línur, þetta lauslega hrafl, — aðeins
til að menn sjái, hvað eg á við, þegar eg minni
menn á að láta ekki fagrar og einkennilegar alþýðu-
vísur glatast.
Kaupmannahöfn 1912
Guðmundur Kamban.
Tvö smákvæöi.
Eftir Stefán frá Hvitadal.
Klðkkvi.
Um brúnir geislar breiðast
á báruföldum leiðast.
Þá allra götur greiðast
jeg geng með veikum burðum
á eggjagrjóti í urðum;
og harma sárt in horfnu jól
mjer heilsar grátnum vorsins sól.
Man jeg æsku-árin
yndisbros og tárin
gleði og sviða-sárin
sól og daga langa.
Vinarhönd á vanga.
Nú græt jeg sárt um sólarlag
þau sumarbros og liðinn dag.
Lífsins dagar líða
langar nætur bíða.
Hjarta sárin svíða
svelia tár á vöngum.
Leiðist mjer löngum.
Þegar hallar hausti að
hefi jeg engan griðastað.
Er haustar að jeg heyri
harmaraddir fleiri
engu framar eiri
alstaðar má kenna
að farið er að fenna.
— Gleymdu ekki að gá að þjer
gangan var svo örðug mjer.
Það kveldar.
Hreggbylur hrækir
á hélaðan gluggann.
Jeg get ekki gleymt því
en gref mig í skuggann.
Jeg get ekki gleymt því
þó glepur mig fleira
því minningar margar
mæla í eyra.
Um æskunnar yndi
og ástir við tölum
— en hjarta mitt hljóðar
af helvítis kvölum.
Um kveljandi kulda
í klökkvandi ljóði
um minkandi málmhljóð
í minninga sjóði.
Um ókomið yndi
frá æskunnar brautum.
Svo opnast heil eilífð
af allskonar þrautum.
— Hver gleði er grafin
en grátið og kvartað
er lágnættið líður
með ljóðstafi í hjartað.
Gleðin er gengin
og gullið á þrotum.
Það kveldar — jeg kvíði
og kvæðið í brotum.
Um ísland, framför þess og stjórnmálasögu,
ritar prófessor I. H. Raymond í janúar-hefti enska
tímaritsins „The Twentieth Century“. Þar er og einkar
góð mynd af Jóni Sigurðssyni forseta, og lýsing á
starfi hans.