Birkibeinar - 01.02.1913, Qupperneq 10

Birkibeinar - 01.02.1913, Qupperneq 10
18 BIRKIBEINAR an.ul) Hefði íslendingar áttt farminn mundu þeir eigi hafa selt vonina, en Austmenn urðu að halda á brott aftur og gátu eigi beðið þess, að tryppið fynd- ist. Fleiri dæmi þarf eigi að nefna, því að þau eru á hverju strái í sögunum. Þótti landsmönnum þetta minni hætta, eða hugsuðu síður um þá hlið málsins fyrir þá sök, að þá var engin greining þjóðanna orðin. Þetta varð nú í fyrsta lagi orsök þess, að menn gættu ver skipastólsins en ella mundi. Sum skipin stóðu uppi árum saman og fúnuðu. Má og vera að sum hafi verið rifin og gerðir úr smærri bátar til róðra og flutninga, þótt eigi sé þess getið. Runnu og margar aðrar orsakir undir svo sem skipbrot. Þau hafa verið alltíð og stundum stórfeld. Eigi þarf langt að leita dæmanna. Því að með berum orðum er sagt frá skipbroti tíu landnámsmanna, og er þeirra getið hér að framan. Um Sleitu-Helga er það sagt, að „þeir Helgi létu út enn sama dag ok týndust allir á Helgaskeri fyrir Skriðnesenni"* 2). Þessir voruAust- menn, en Islendingar brutu skip sín eigi síður en þeir. Enn eitt dæmi úr landnámu: „Nokkru síðar braut Guðlaugr, bróðir Gils skeiðarnefs, skip sitt út við höfða þann er nú heitir Guðlaugshöfði" 3) I Harðar- sögu getur um skipbrot á Vikarsskeiði, þarsemUnn- ur djúpúðga braut.4) í viðbæti við landnámu úr Skarðsárbók er Ijóst dæmi þess, að veðurlag var eigi betra hér á landi þá en nú er, og eigi síður hins, hve stórvirkir þeir voru stundum, sjórinn og vindur- inn, og skaðvænir skipum og mönnum. Þar stend- ur: „Á því ári, er Gizurr byskup Isleifsson andað- ist gerði hallæri mikit á íslandi; þá kom hríð svo mikil á dymbildögum at menn máttu eigi veita tíðir í kirkjum á sumum stöðum ok heruðum fyrir norðan land. Föstudag hinn langa tók upp knör undir Eyja- fjöllum ok snöri á lofti ok kom hvalfandi niðr; hann var sex rúm ok tuttugu. Páskadaginn fyrsta máttu fáir menn tíðir sækja at taka þjónustu, en sumir urðu úti dauðir. Annat illviðri kom um sumarit eftir and- lát hans, þann dag er menn riðu á þing; þá braut kirkju á Þingvelli, þá er Haraldr konungr Sigurðsson lét höggva viðinn til; þat sumar fóru fjórir tigir skipa út hingat, ok braut mörg við land, enn sum týndust i hafi ok leysti sundr undir mönnum, en átta ein kvámust brott, með þeim er áðr váru hér . . .“5). 1) Ldn. F„ 189, 8. 2) Ldn. F., 1802. s) Ldn. F., 17621 4) Harðars. S. K., 41,,. ») Ldn. S. K. 233,,—2 H,. Eigi verður vitað, hve mörg voru íslenzk af þessum skipum, en sjálfsagt hafa þau verið allmörg. Þessí dæmi nægja til þess að sýna, að sjór og vindr muni oft hafa höggvið eigi alllítið skarð í skipastól forfeðra vorra. En fleira varð þó til. Því að stundum brendu menn skipin og stundum grófu þeir þau í jörð, Snorri goði brendi skip í Salteyrarósi fyrir Þórarni i Mávahlíð og Alfgeiri er hann hafði seka gert L) Þetta skip var raunar eign Austmanna, en vera má að þetta hafi oftar verið gert, þvi að þetta er hægt ráð til þess að banna mönnum utanför og koma fram hefndum. Víða er þess getið að menn voru heygðir í skipi Ásmundr Atlason, Valasonar ens sterka „var heygðr í Ásmundarleiði ok lagðr í skip“.2) Geirmundr heljar- skinn „andaðist á Geirmundarstöðum ok er hann lagðr i skip þar út í skóginn frá garði“.8) Fundur Grænlands varð og drjúgur tii fækkunar á skipum Is- lendinga. Set eg hér frásögn landnámu um það: „Svá segja fróðir menn at þat sumar fóru XXV skipa til Grænlands ór Breiðafirði ok Borgarfirði. En XIIII komust út. Sum rak aptr en sum týndust".4) I öðru lagi urðu kaupferðir Austmanna til þess, að menn létu sér síður ant um að endurnýja skipa stólinn jafnóðum. Var þó nokkuð gert til þess að halda honum við, bæði reist skip innanlands og utan og þó miklu oftar keypt. „Maðr hét Ávangr írskr at kyui; hann byggði fyrst í Botni, þar var þá svá stórr skógr, at hann gerði þar af hafskip".5) Annað dæmi er í kristnisögu, þar sem sagt er frá sekt Hjalta Skeggjasonar: „ . . . var Hjalti dæmdr sekr fjörbaugs- maðr um goðgá. Þat sumar fór hann utan, á því skipi er hann hafði sjálfr gera látið heima þar í Þjórs- árdal, ok færði eftir Rangá enni vestri til sjóvar skip- it“.°) Enn eru dæmi þess að gert var við skip, er brotnaði: „ . . . FIosi er bjó í vík, þá er austmenn brutu þar skip sitt ok gerðu úr hrænum skip þat, er þeir kölluðu Trékylli".7) Þá eru og þess dæmi, að menn létu gera skip erlendis. Sonarsonur Böðólfs landnámsmanns var Þórir farmaðr: „Hann lét gera knör í Sogni. Þann vígði Sigurðr byskup. Af þeim kneri eru brandar veðrspáir fyrir durum í Mikla- garði“.8) Svo seint sem 1374 er þess enn getið að ‘) Ldn. F., 15081. Ldn, F., 148,. 8) Ldn. F., 16320. 4) Ldn. F., 156,0. ») Ldn- F„ 13684 85, ») Bisk. I„ 17,0 12. D Ldn. F., 17585 8,.

x

Birkibeinar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birkibeinar
https://timarit.is/publication/166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.