Birkibeinar - 01.02.1913, Blaðsíða 15

Birkibeinar - 01.02.1913, Blaðsíða 15
BIRKIBEIN AR 23 mæli; peninga fái menn ekki nema með mikilli ofaná- gjöf, en óþarfa vöru sé neytt upp á menn bæði til kaups og láns. Þá kvarta þeir yfir að kaupmenn geti ekki tekið við nærri allri vöru þeirri, sem bjóðist frá landsmönnum, og í góðu ári varla nema helmiug henn- ar, og kefji þetta alla atvinnu landsmanna. Þeir geta og þess með mikilli óánægju, að kaupmenn dragi allan ábata sinn úr landinu og eyði honum eða verji Danmörku til gagns einni saman, og helzt Kaup- mannahöfn, en afræki allar borgaraligar skyldur sin- ar við ísland“ 2). Sést á þessu að ónægar skipagöng- ur þykja mönnum þá einna verstar. Að hinum at- riðunum verður síðar vikið. Óðar en verslunin varð hóti frjálsari ukust og skipagöngur, þótt enn væri sá gallinn á, að þær voru bundnar við eitt land. Síðan 1787 hafa þær verið sem hér segir2): Ár Tala Tala Af hundraði skipa smálesta frá Danmörku 1787—1800 mt. 55 4366 100 1801—1810 — 42 3531 100 1811 — 1820 — 33 2665 100 1821—1830 — 54 4489 100 1831—1840 — 82 6529 100 1841—1850 — 104 7664 100 1851-1860 — 133 11388 til 54 100 ’55’-60 81 1861—1870 — 146 13991 65.3 1871-1880 — 195 20716 51 1881—1890 — 207 41324 41.s 1891-1900 — 349 62392 28.9 1901-1905 — 385 92101 30.8 1906 . . . . 401 116901 27.4 1907 . . . . 496 163717 40 1908 . . . . 379 139273 35 1909 . . . . 318 116493 30 1910 . . . . 327 125155 23.2 Á þessum skijialista má sjá, að fram til 1854 er nákvæmlega eins háttað öllum samgöngum vorum sem var fyrir 1788, neina hvað afarkostirnir voru Iít- ið eitt mýkri en á verstu tímum einokunarinnar. 011 einkenni úr bænarskránni 1795 eru skýr og auðsæ fram til 1854. En þá mátti nú vænta að frjáls verzl- un kæmi einnig lagi á skipagöngur. Hefir það og orðið svo, því að þá hefst sigling hingað frá ýmsum löndum og helst nokkuð í hendur við það vörumagn, l) Jón Siguiðsson: Yerzlun Islans.Ný félagsrit IIIár,58—59. 5) Indriði Einarsson, verzlunarskýrslur íslands 1910, IV. sem þangað flytst og þaðan kemur1) En Danmörk: heldur þó meiru af skipagöngunum en því, sem sam- svarar því vörumagni, er þaðan flytst. Er þess þó einkum gætanda, að minnst flytst þaðan af dönskum vörum, heldur eru það að miklum hluta vörur frá Þýzkalandi og annarstaðar að, sem þangað verða að fara fyrst fyrir þá sök að verzlunarvegir Islands lengj- ast og skekkjast, af því að endastöð verzlunarinnar og yfirráð siglinganna hefir verið og er enn að miklu leyti i Kaupmannahöfn. Margir kaupmenn fara enn með ágóða sinn þangað, og toga því í þann endann, er síður skyldi. Þetta er vafalaust mesta íjónið af því, að skipa- göngur sé í annara höndum, að öll verzlun verður oss erfiðari og óhagstæðari og miklu dýrari. En það verður engurn tölum talið. Því að fyrst og fremst er erfitt að leiða getum um það, hversu mikiu hag- stæðari hún yrði, ef vér ættim sjálfir skipin, og i öðru lagi verður eigi metið til peninga, að þetta er haft á tramtakssemi og áhuga vor sjálfra og sviftir vora menn heilli og mikilsverðri atvinnugrein. Hitt mætti reikna í peningum, hversu mikið fjártjón það er fyrir oss, að alt er útborinn eyrir, sem goldið er fyrir mannflutninga og vöruflutninga. Árið 1911 fekk „Thore“ 920000 kr. í flutningsgjöldum. Hafi nú hitt félagið fengið jafnmikið, þá höfum vér borgað Dönum það ár 1840000 krónur fyrir flutning. Þá hefir og Björgvinjarfélagið fengið eitthvað. Þótt því talan hér að framan væri heldur há, þá er þó ekki hátt farið að telja þeim öllum 2000000 kr. Betur væri þessir peningar komnir í vasa landa vorra, en þar mundu þeir lenda, ef vér hefðim skipagöngurnar í vorum höndum. Reikna má og í peningum hinn beina skaða af verri kjörum í samanburði við skárri kjör. I Birki- beinum, II. ári, bls. 69—70 hefi eg gert það og bygf á skýrslum frá Þórarni Tuliniusi. Sá reikningur er láuslega svo, að 10000000 króna liggja ofborgaðar í vasa „sameinaða félagsins“ komnar úr vasa vor Is- lendinga. Og næði það félag sömu tökum aftur og tíu ára samningi, þá mundum vér á þeim tíma skaðast um hálfa sjöundu millión samanborið við kjör síðustu ára. ísland er ennþá skipalaust land til verzlunar, þótt fiskifloti þess sé nokkur og vaxi. Enda hefir það sýnt sig á þeim kjörum, sein vér höfum átt við að búa. Þessvegna er nú brýn þörf að athuga hvert stefnir. Ættum vér nú ekki að þurfa fleiri alda reynzlu til þess að vita að skipalaust eyland er ánauðugt land. 3) Bjarni Jónsson frá Vogi: Viðskifti Islendinga við aðr- ar þjóðir bls. 9.

x

Birkibeinar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birkibeinar
https://timarit.is/publication/166

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.