Breiðablik - 01.04.1909, Page 4
164
BREIÐABLIK
r^JE^3T^3£^2^3^2^3!^3i^3r^3r^3í^3^J^r^3
BLÓÐBAÐIÐ Á KANAANLANDI.
^^ftíVAÐ eftir annað er biblíu-
rannsókn þessarra tíma bor-
iS á brýn, að hún svifti
kristna menn ritning'unni,
gjöri hana ónýta, kippi
grundvellinum undan trú
þeirra. En þetta er fjarstæða ein og mis-
sýning. BiblíurannsÓknin er engin árás
á biblíuna, því síður á trúna og grund-
völi hennar. En hún kennir mönnum að
lesa ritninguna í þekkingarljósi vorra
tíma. Hið eina, sem hún brýtur bág við
og leitast við að burtrýma, er misskiln-
ingur fyrri tíma. Guðshugmyndin og
allur grundvöllur trúarinnar stendurfast-
ari fótum eftir en áður. Biblíurannsókn-
in fær kristnum mönnum betri vopn í
hendur til að verja með ritningunaog trú
sína,enþeir nokkuru sinni áður hafa haft.
Eitt torveldasta viðfangsefni gamla
testamentisins er guðshugmyndin. Sá
guð, sem þar er lýst á svo ótal mörgum
stöðum,virðist gjör-ólíkur þeim kærleiks-
ríka föður, sem Jesús Kristur boðar.
Álíti menn, eins og títt hefir verið, að
guð sé að lýsa sjálfum sér í gamta testa-
mentinu, hafa menn ávalt verið í vand-
ræðum með að gjöra grein fvrir, hví sú
lýsing skuli í mörgum efnum þveröfug
þeirri, er frelsari mannanna gaf. Þau
vandræði hafa svift margan mann trúnni.
Lesi menn aftur með þeirri sannfær-
ingu, að hér sé menn á frumlegu þroska-
stigi að lýsa hugmynd sinni um guðdóm-
inn, fellur alt í ljúfa löð. Oss furðar þá
eigi lengur, þó hugmyndir um guðdóm-
inn sé þá á elztu tímum álíka frumlegar
og barnalegar og aðrar hugmyndir í
sambandi við lífið og tilveruna.
Gamalt og óviðráðanlegt ásteytingar-
efni öllum hugsandi mönnum, sem lesið
hafa ritninguna í Ijósi gamallar guðfræði,
er frásagan í Jósúabók um, hvernig ísra-
elsmenn unnu Kanaanland herskildi.
Þar virðist langmesta grimdarverk vera
framið, sem dæmi eru til í mannkynssög-
unni. í tíu kapítulum (3—12) er sagt
frá, hvernig herför þessarri hafi verið
farið, landið hafi verið unnið á fám vikum,
hvert mannsbarn höggið niður,karlmenn,
konur og börn og kvikfénaðurinn líka,
frá einum landsenda til annars, alt eftir
fyrirsögtt og skipan drottins, sem aðstoð-
aði Jósúa í öllu þessu (62?). Þó á land-
ið að hafa verið fjölbygt, með víggirtum
borgum og fjölda fólks, herliði velbúnu
að vopnum og vögnum, og gamalli
ntenningu. En aðsóknarherinn hálfviltir
eyðimerkurbúar (Bedúínar), sem alt
hlaut að bresta, er til hernaðar þurfti.
Frásögnin byrjar með förinni yfir Jór-
dan. Þar verður það stórkostlega tákn,
að vatnið, sent að ofan kom, stóð kyrt og
hóf sig sem veggur mjög iangt frá, en
það, sem rann niður til vatnsins, rann alt
til þurðar; og lýðurinn fór yfir um getigt
Jeríkó (316), þurrum fótum. Þegar ísra-
elsmenn eru komnir yfir um Jórdan,fellur
felmtur yfir landið og fólkinu félst hugur
(S1), og hliðum Jeríkó-borgar er læst (61);
hún er girt háum og rambyggilegum múr-
veggjum. ísraelsmenn ganga einu sinni
á dag hringinn í kring um múrana með
allan her sinn í sex daga samfleytt án
þess að gjöra nokkurt áhlaup. En er
þeir sjöunda daginn höfðu gengið sjö
sinnum kring um múrana, verður sú
stórkostlega jartegn, að þeir hrynja öld-
ungis sjálfkrafa um leið og blásið er í
lúðrana (62°). Þá steypa ísraelsmenn sér
inn yfir borgarlýðinn, lýsa banniyfir öllu,
sem í borginni er, menn, konur, unga og
gamla, naut, sauði og asna, og drepa
það alt,nema portkonuna Rahab og fylgi-
lið hennar. Hún fær að njóta þess, að
hún svíkur þjóð sína og borg með því að
leyna tveim njósnarmönnum, er sendir