Breiðablik - 01.04.1909, Qupperneq 7

Breiðablik - 01.04.1909, Qupperneq 7
BREIÐABLIK 167 er borg á miðju þess svæðis, sem ísraels- menn setjast að á, og er í höndutn Kana- anmanna alla dómaratíðina á enda (Dómgi), og Abímelek þar konungur. Bardaginn við Merómvötn sýnir, hvernig viðburðir hafa ruglast í hugum seinni tíma rithöfunda. Sigurinn,sem Jósúa er látinn vinna, er að mestu leyti eins og sigur, sem þau vinna Debóra og Barak á dómaraöldinni á sléttlendinu mikla. For- ingi óvinanna á báðum stöðum, er Jabin, Hasorskonungur. í bæði skiftin hafa Kanverjar ógrynni hervagna og í bæði skifti er sigur ísraelsmanna algjcr. Sag- an um sigur Jósúa hefir myndast út af sögunni um sigur Baraks. Jósúabók er ekki eiginleg saga, heldur hugleiðing út af sögulegum viðburðum, rituð lesendum til trúarstyrkingar. Hún hvílir að vísu á sögulegum grundvelli, en aðal-ætlunarverk hennar er að gjöra dýrð Jahve mikla. Alt margfaldast í huga höfundarins og verður að yfirnátt- úrlegum kraftaverkum. Múrveggir Jerí- kóborgar hrynja sjálfkrafa við yfirnáttúr- lega jartegn, í stað þess að ísraelsmönn- um er hleypt inn um eitthvert hliðið af Rahab með prettum, þegar borgarbúar halda þeim sé óhætt, umsátrið sé leikur einn af hálfu eyðimerkurbúa, sem engu fái til leiðar komið, þó þeir vildi. Blóðbaðið óskaplega á Kanaanlandi, sem drottinn á sjálfur að hafa skipað og komið til leiðarmeð stöðugum jartegnum, hefir því aldrei átt sér stað, en er hugar- burður seinni alda. Smáhreður, sem forfeðurnir hafa átt í, verða að geysi- miklum orustum milli tveggja stórvelda, þar sem Jahve ávalt lætur sína menn bera sigur úr býtum. Kraftaverkið á sólu og tungli kennir fram við misskilning. Ut af sigri Baraks og Debóru, mörgum kynslóðum eftir dauða Jósúa, myndast Debóru-ljóð (Dóm 52—31). Þau eru eitt af allra-elztu drög- um tii bókmenta ísraels. Þar er bar- daganum lýst með þeim skáldlegu um- mælum, að sól og tungl hafi staðið kyr, svo dagurinn entist betur til að vinna á óvinunum. En það er að eins skáld- skapur. Höfundur Jósúabókar tekur orðin úr þessum Debóruljóðum og leggur þau Jósúa í munn og segir út af þeim sögu um, að kraftaverkið hafi gjörst, að líkindum eins og sagan hefir spunnist út af líkingunni í alþýðumunni. í ljóðun- um eru orðin skáldleg og skiljanleg. í huga söguritarans verður líkingamál skáldsins að verulegum viðburði, sem látinn er fara fram löngu áður en ljóðin verða til. Jósúabók er rituð í anda höfundar 5. Mósebókar og kemur fram með öðrum sögulegum ritum á tímabilinu 600—56o. Hún er ritin í guðrækilegum tilgangi, til að styrkja guðstrú fólksins og hefir ef til vill gjört það á þeirri tíð. Þess vegna er það látið fara fram á fám vikum, sem var að gjörast smátn saman og hægfara, frá því kring um 1200 og fram á daga Saló- mós. En vorri guðshugmynd ruglar þessi frásögn og þess vegna vitum vér, að hún getur ekki verið sönn. Hún slær skugga á drottin vorn og frelsara Jes- úm Krist, því hún gjörir þann guð, er hann kendi oss að þekkja, að harðstjóra, hörðum og grimmum. Það er því heilög skylda voraðleita oss upplýsinga,þangað til vér komumst að hinu sanna og fáum skýrt söguna fyrir oss á annan hátt. Nið- urstaðan verður hér eins og ávalt sú, að mönnum einum er um þenna skugga að kenna, en dýrð guðs verður þeim mun mun meiri, þegar skugginn er horfinn. Grimdarverk hafa verið framin lík þeim, seæ sagt er frá, þó stórkostlega sé ýkt. Þau voru tíð á þeim dögum, sem ekkier svo mikil furða. En aldrei hafa þau ver- ið skipuð af drotni, föður vorum og föður frelsarans. Sumpart hafa menn í fá- kænsku að eins ímyndað sér það, sum- part afsakað grimd sína með því. Óteljandi eru þær skýringar, sem mönnum hafa hugkvæmst til að samrýna

x

Breiðablik

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.