Breiðablik - 01.04.1909, Blaðsíða 8

Breiðablik - 01.04.1909, Blaðsíða 8
i68 BREIÐABLIK þessa lýsingf réttri guðshugmynd. Það hefir veriö álitin næg skýring, að Kana- anmenn hafi verið svo spiltir, að drott- inn hafi notað ísraelsmenn eins og böðla í hendi sér,til að framkvæma réttlátan af- tökudóm. En það verður undarlegur dómur, sem eins er látinn ganga yfir sak- laus börn og skynlausar skepnur. Drott- inn er jafnvel látinn skipa að beita grimd við dýrin og skera sundur hásinar hest- anna, eins og bent var á. Sú guðshug- mynd, sem Jesús Kristur hefir gefið oss, hrindir slíkri skýringu frá sér sem óhæfi- legri og skaðlegri. Hún ruglar hug- myndum kristinna manna um hið guð- lega réttlæti sjálft. En réttlætishug- myndin er ein af grundvallar-hugmynd- um lífsins og má sízt af öllu raskast. Hér getur því hver sem vill rekið sig úr skugga um, að biblíurannsóknin er að verja og halda hlífiskildi yfir helgustu óðulum trúar vorrar. Hún rífur alls ekki niður, heldur reisir við málefni sannleik- ans. Hún haggar að eins og hrekur mannlegan misskilning í sambandi við ritninguna frá eldri og yngri tímum. En hún gjörir það til þess sannleikurinn sjálfur birtist mönnunum,dýrlegri og feg- urri en áður. Einkum leitast hún við að fægja af flekkina, sem eru á guðshug- mynd mannanna, svo vér glötum eigi því aftur, sem Jesús Kristur gaf oss. UMMÆLI LÚTERS UM BIBLÍUNA. UÐFRÆÐINGURINN þýzki, Karl Friedrich August Kahnis, dáinn 1888, var einn í hópi merkustu og íhaldsöm- ustu guðfræðinga áÞýzkalandi á 19. öld og er hafður í miklum heiðri hvarvetna í lút. kirkju. Hann reit trú- frœfti, mikið verk í þrem bindum, sem út komu á árunum 1861-68 (Dogmatik, historisch genctisch dargestelt). í þriðja hindi þess merkilega ritverks (bls. 142 n n) gjörir hann grein fyrir skoðunum Lúters á biblíunni og mun enginn gruna hann um, að hann hafi þar hallað máli, jafn vel lút. maður og hann var, enda gjörir hann það ávalt með orðum Lúters sjálfs. í umræðunum um ritninguna ætti öllum að þykja fróðlegt að heyra, hvernig sá maður, er kirkja vor kennir sig við og bar lút. siðbótar hreyfinguna á herðum sér, dæmir um biblíuna. Kahnis farast orð á þessa leið : „Sjónarmið Lúters er frjálsmannlegt. Það er jafn-ósamrýmilegt framburði sögunnar og það er óréttlátt að kenna hin djörfu orðatiltæki Lúters glappyrðum gáfumannsins. Einungis sá, sem orðinn er ritningunni svo innlífaður, að lífs- reynslan er orðin honum mælikvarði hinna ólíku andlegu sjónarmiða, er þar verða á vegi vorum, hefir rétt og köllun til að kveða upp jafn-sterkan og sannan dóm, eins og talaði hann um jafningja sinn. OIl ummæli hans stj'ðjast við sömu sannfæringuogOrigenes hafði, að heilagur andi hafi eigi blásið hinum helgu rithöf- undum í brjóst efni og orðum á einhvern útvortis hátt, heldur miklu heldur tekið mannlegar gáfur þeirra í frjálsa þjónustu. Lúter hefir því eigi rifið ræður spámanna og postula úr sambandi við rit þeirra, en haldið því fram,að þeir hafi ritað með lík- um hætti og þeir töluðu. Um leið og hann gjörir þenna greinarmun guðlegs og mannlegs fær hann fastan völl undir fótum til að tala um ritninguna frá tvenns konar sjónarmiði: Þó hann nefni bækur Móse rit heilags anda, er það þó sann- færing hans, að Móse hafi að mestu leyti lagað löggjöf sína eftir siðvenjum feðr- anna. Um spámennina segir hann, að þeir hafi sjálfir rannsakað Móse og fyrir- rennara sína og hafi eigi ávalt bygt ofan á grundvöll þeirra úr gulli og silfri, held- ur líka úr heyi, hálmi og tré. Um sagna- ritanina heldur hann því fram, að þar sé möguleikar fyrir sögulegri ónákvæmni og þversögli. Jóhannesar guðspjall nefnir G 1 /

x

Breiðablik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.