Breiðablik - 01.04.1909, Side 12

Breiðablik - 01.04.1909, Side 12
I?2 B R E I ÐA B L I K Sanni þeir framburö sinn í þessu tnáli, vilji þeir heita beiöviröir menn, eða láti bann alg'jörlegfa niður falla. Síra Rúnólfur talar mikið um dular- blæju og ýmist gefur í skyn eÖa segár blátt áfram, að eg fari svo dult með ágreiningsefnin, að enginn skilji hvert eg sé að fara. Grein hans ber helzt með sér, að hann hafi annaðhvort mjög lítið lesið af því ritmáli, sem hann er um að að dæma, eða hann hefir lesið afturábak. Eg er alveg sannfærður um, að flestum meðallagi skýrum leikmönnum, sem lesið hafa Breiðablik, finst þetta tal síra Run- ólfs bull, eða sönnun þess, að hann hafi hvorki reynt að skilja né viljað. Hvað rétt-trúað sem Nýja-Island kann að vera orðið fyrirhans tilverknað, á eg bágt með að trúa,að þar sé ekki einhverirí hópi lút. leikmanna,sem skilja mál mitt og skiljavel, Skilningsleysið er eigi sprottið af neinu öðru en viljaleysi til að skilja. f>að hefir verið talað svo ljóst og greinilega, að hverjum manni með fullum mjalla er unt að skilja út í æsar, ef hann vill og reynir. Þokati er ennþá sem komið er öll bræðra minna megin. Og hún er fólgin í þessu : Þeir hafa bitið sig fasta í þá hugsan, að eg sé úr.ítar. Meðan eg kannast ekki við það, finst þeim alt á huldu. En vildi eg við það kannast, hefði blessuð sóliti alt í einu runnið upp og þeir gæti farið að bjarga heyi sínu. Máveraþeimtakist,aðkomafiamáform- um sínum 1 minn garð, svo þeir sé sjálfir ánægðir með. En eg fagna þá yfir því, að hópurinn, sem eg lendi í, verður stór og göfugur. í honum verða lang-flestir lúterskir menn í heiminum. I honum verður fósturjörð mín og andlegir leiðtog- ar allir, biskupar,prestaskólakennarar og allir helztu menn íslenzkrar prestastéttar. Um leið og eg verð dæmdur, verða þeir og öll þjóðin mín dæmd, með sárfáum undantekningum. Því alt sem mér er nú til foráttu fundið, má þeim til foráttu finna með sanni jafn-miklum. Og út í deiluna hefi eg að all-miklu leyti dregist vegna þess, að eg gat eigi þolað, að þeir væri brennimerktir. En þegar eg las grein síra Rúnólfs, gat eg eigi varist að brosa, þó mér væri eiginlega ekki hlátur í hug. Mér duttu í hug tveir drengir, sem voru að glíma. Annan þeirra langaði skelfing til að fella hinn, en gat ekki. ,,Stattu nú kyr, grevið, meðan eg kem á þig hælkrók !“ sagði hann. Við mig er sagt : ,,Tala þú nú svo. að við getum sýnt öllum fram á, að þú sért únítar. Þá er leikurinn unninn. Annars getutn við þetta ekki !“ EFTIRTEKTARVERD YFIRLÚSING. PPÞOT heilmikið varð alveg nýlega í kirkjudeild Meþódista hér í Kanada út af ummælum prests einsí Toronto, sem ekki alls fyrir löngu er kominn hingað til latids frá Skotlandi og hefir á- lit á sér svo mikið fyrir þekkingu, að hann hefir verið kallaður til kennara-em- bættis í guðfræði við Victoria College, setn stendur í sambandi við Toronto-há- skólann. Ummæli þau, sem uppþotinu komu á stað, voru út af ellefu fyrstu kapítulum i.Móseb. Hann hafði haft eforð allmik- ið um, að vér þar höfum fyrir oss sann- sögulega viðburði í eiginlegum skilningi. Útafþeim ummælum stökk prestaöld- ungur einn, sem nú er æðsti maður me- þódistakirkjunnar í Kanada (superinten- dent) og beitir Dr.Carman, upp á nef sér, bálvondur, fór hinum óvirðulegustu orð- um um George Jackson, prestinn sem hér átti hlut að máli, sagði hann hefði borað sér inn niu bak dyr hjá kirkjudeild Meþódista, nýkominn frá Editiburgh á Skotlandi, en að eins fengið lítil- fjörlega stöðu sem aðstoðarprestur við kirkju eina í Toronto. Það gæti ekki u

x

Breiðablik

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.