Breiðablik - 01.04.1909, Síða 15

Breiðablik - 01.04.1909, Síða 15
BREIÐABLIK 175 þjóðum. Hugmyndir biblíunnar eru grundvöll- ur að hugsanalífi mannanna. Ósjálírátt snyst andlegt líí þeirra um þær hugmyndir, sem þar eru mergur málsins. iiigi stendur því á sama, hvernig orðalag biblíumálsins er. hver ný bibl- íuþýðing, sern út helir komið, hefir ávalt vakið megnan mótþróa og andblástur íhaldsamra rnanna og þröngsýnna, er álíta að öllum kristin- dómi se kollvarpað við hverja smá tilbreyting, sem gjörð er, eins þó það sé bersýnileg lagíær- ing á röngum skilningi til rétts. Húast má við, að örlög þessarrar nýju þýðingar verði eitthvað svipuð örlöguin eldri systra hennar. Biblíulélag- ið brezka, sein af velvild hljóp undir bagga með útgáfu kostnaðjhefir þegar fengið smjörþefinn af þeim andblástri úr tveim áttum, sem er þó eigin- lega sú sama. Átti hvorki meira né minna en koma í veg fyrir, að þessi biblíuþýðing fengi að birtast, af því einhverir voru hræddir um, að hún kynni að hrófla eitthvað við þeim kreddunum sem þeim er annast um. Svo römm getur ljós- fælnin orðið. En andi biblíunnar, sem er andi Jesú Krists, hefir ráðið, og nú kemst hún öllum í hendur, er hafa vilja. Vona eg þeir verði marg- ir, sem lesa hana með fögnuði og áfergju. Gamla testamentið verður nú í augum margra svo girnilegt, að það biður að lesa sig. Aðal- kosturinn sá, að það mikla mál kemur mönn- um svo miklu nær en áður Öllum verður aug- Ijóst, að hér eru bókmentir eins og hverjar aðrar bókmentir, glæsilegar bókmentir þar sem fjallað er um helgustu viðfangsefni mannsandans og þeim lyft upp í æðra veldi en í nokkurri bók ann- arri. Menn sjá hér fyrir sér mannaverk með öll- um mannlegum einkennum, en finna guðs anda blása á móti sér með vaxanda afli eftir því sem lengur er lesið og betur atbugað. Hafi fyrri biblíuþýðingar haft stórvægileg á- hrif á trúarhuginyndir manna, er enginn efi á að þessi hefir það, þó eigi komi það þegar í Ijós. Hún gefur þeim trúarhugmyndum öllum byr und- ir vængi, sem á næstliðnum tímum hafa verið að láta flugfjaðrir vaxa. En hún kippir að sama skapi fótum undan þeirri biblíudýrkan, sem gjört heflr ritninguna að jarli guðs hér á jörðu, — páfa jafn-hættulegum þeim, sem mótmælendur eitt sinn brutust undan. Það er mikið ætlunarverk að gjöra grein fyrir, á hvern hátt og í hverjum at- riðum þessi nýja þýðing brýtur bág við eldri og úreltar trúarhugmyndir og verður eigi gjört nema smám saman og með löngum tíma. Hver athugall lesari mun verða þess var, áður hann hefir lesið lengi, í nýja testamentinu eigi sízt. I gamla test. vekur það eigi sízt eftirtekt, að guðsnafnið er breytt. Par sem áðurstóð Jehóva eða drottinn, stendur alstaðar J a h v e* Svo nefndu Gyðingar (Israelsmenn og Hebrear), þann guð, er þeir trúðu á, eftir því, sem menn halda. Fullri vissu vita menn eigi, hvort sú mynd nafnsins er rétt eða eigi. Af hjátrúar- fullri lotningu var guðs nafnið eigi lesið eða framborið á seinni tímum með Gyðingum, en annað orð, a d o n a i, sem þýðir drottinn eða herra, nefnt í stað þess þegar lesið var, svo hin rétta orðmynd gleymdist, en að eins samhljóðar eftir í textanum, sem enginn vissi, hvernig átti fram að bera. Voru þá hljóðstafir teknir úr orð- inu a d o n a i og settir inn á milli samhljóða hins gleymda orðs. A þann hátt myndaðist J e h ó v a, sem vitaskuld er tilbúningur út í hött. Jahve er hið réttasta,sem fullkomnasta þekking hebreskr- ar tungu hefir komist að. Blessunaroi ðin (4M6 22—26) hljóða nú svo : Jahve blessi þig og varðveiti þig ! Jahve láti sína ásjónu lýsa yfir þig og sé þér náðugur ! Jahve upplyfti sínu augliti yfir þig og gefi þér frið. Þeim mönnum öllum, er að þýðing þessarri hafa unnið, og þjóð vorri, sem hennar á að njóta, árna eg allrar blessunar af starfinu. Eg vona, að biblían verði henni til meiri andlegrar auð- legðar nú en nokkuru sinni áður. Að hún finni í henni himneskan föður sinn og frelsara eftir því betur sem hún betur lætur sér lánast að gjöra greinarmun þess, er varanlegt gildi hefir, og hins, sem ófullkomnum skilningi manna er um að kenna. Ráð fíflsins. Eftir JUHANI AHO, vellinum milli ráðhússins og kirkjunnar hafði alls konar pyndingarfærum verið safn- að saman — g-apastokkum, þumalskrúfum,gaddastólum, g'addatunnum og eldheitum töngum. Á vellinum miðjum var köstur- inn og píslarstaurinn,hvortveggja albúið, að taka við trúvillingnum, ef hanti skyldi þverskallast að játa villu sins vegar, tifneita með eiði trúarvillu sinni og varpa sér í fang kaþólskrar kirkju, sem ein hefir hjálpræði að bjóða, Þeir hengja hann á höndum upp um bita og láta hann hanga þar með þungum lóðum, bundnum við fætur honum. En hann æpti að eins : ,,Eg gjöri enga játningu ! Eg vinn engan neitunareið ! Eg skal ekki gef- akt upp ! “ Þeir fara með hann að gaddastólnum, en mótmæli hans hljóma að eins hærra í eyrum kvalaranna og mannfjöldans, sem safnast hefir sarnan á vellinum, í stræt- unum, á húsþökunum og í gluggunum. Þeir klípa hann glóðheitum töngum, þangað til hörundið sviðnar—en árang- urslaust. Hann játar ekkert, afneitar engu, gefst ekki upp. Trúvilludómstjórinn—kardínálinn, sem komið hafði eftir skipan páfa frá hinni miklu Rómaborg til að bæla villitrúna niður—hefir enga hugmynd um, hvernig hann á að fara með þenna þráláta mann. Að hann játi sök sína, að hann afneiti

x

Breiðablik

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.