Breiðablik - 01.08.1909, Page 3

Breiðablik - 01.08.1909, Page 3
BREIÐABLIK 35 uðust,svo þeir sæi,hvílíku ólífissári og- holund málefni kristindómsins er slegið með slíku fádæma um- burðarleysi ? Hvað annað geta þeir gjört, sem fyrirdæmdu skoðanirnar hafa og réttlausu ? Þeim er t.d. sagt, þeir megi alls eigi fara eftir trúarvitund sinni í sáluhjálparefnum. Trúarvitundin erfyrirdæmd. Hingaðtil hefir'þeim skilist, að mönnum vera gefin tvö ljós til að ganga við, —ljós skyn- seminnar og ljós trúarinnar, sem vitaskuld renna saman í sálu mannsins. Þetta tvent, trú og skynsemi,— skynsemi helguð aftrú, hafa menn skírt einu nafni og kallað trúarvit- und. I metum svo miklum hafa menn þetta hugtak,að menn segja: Sá sem það hefir, hefir heilagan anda — guðs anda — anda Jesú Krists. En að hafa heilagan anda, er að hafa guð sjálfan í sálu sinni, ef það er annað en marklaust hjal. Rétt-trúnaðurinn hefir ávalt haldið því fram, að með trúnni öðlist maðurinn heilagan anda. Helzta starf hans er upplýsing- in í trúarefnum—sjónaukinn, sem maðurinn fær, þegar hann horfir út yfir landamæri blákaldrar skyn- semi og inn á land trúarinnar. Nú er þessi sjónauki—þessi ein- ing trúar og skynsemí—tekin af manninum, —þeim, sem í kirkju- félaginu eru að minsta kosti. Trú- arvitund sinni verður það fólk alt að stinga undir stól, þegar það les ritninguna, samkvæmt yfirlýs- ingunni frá kirkjuþingi. Það má e"kki velja og hafna. Trúarvitund þess hefir alls ekkert úrskurðar- vald. Hugsum oss einhvern aumingja kristinn mann,sjúkan á sálu. Eins og sá, sem sjúkur er, leitar lækn- is, leitar hann til ritningarinnar og hygst þar að fá meinabót. Nú fer honum líkt og sjúkling, sem fær margs konar lyf við líkamleg- um sjúknaði. Reynslan segir hon- um: Af þessu verður mér ilt; það gjörir mig enn sjúkari en eg áður var. Eg hafna því. Enafhinu lyfinu verður mér gott. Eg verð betur og betur var við lækniskraft þess; það færi eg mér sem bezt í nyt. Eins fer andlega sjúkum. í ritningunni finnur hann ef til vill ótal margt, sem gjörir hann enn sjúkari á sálu en hann hefir verið, svo birtan af augliti guðs ætlar að hverfa honum með öllu. Haldi hann áfram að hugsa þessar hugs- anir, finnur hann, að hann muni glata allri guðstrú og þeirri hugg- un, sem sú trú hefir veitt honum. Hann hrekkur frá með hryllingi og segir: Þetta hefir dauðann í för með sér. Þessu hafna eg. Svo leitar hann, hvort ekki sé annað,—leitar og finnur. Hann les og les með áfergju. Sól skín í huga hans. Hann les um kær- leika og fyrirgefning. Hann les um föður, sem gengur til móts við glataðan son. Þeim föður fellur

x

Breiðablik

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.