Breiðablik - 01.08.1909, Blaðsíða 9

Breiðablik - 01.08.1909, Blaðsíða 9
BREIÐABLIK 41 tilvitnanir úr g. t. í hinu nýja. Af þeim er að eins 5i,eða tæplega '/6, heimfærðar með nafni, sem sýnir, hve litla þj'ngd það hatði í hug-a n.t. höfundanna. Þeir vitna til orðanna efnisins vegna, af því þeim finst þar tekin frarn einhver sannindi, sem allir fallist á, og hafi varanlegt gildi. Það er oft gjört lauslega og með tölu- verðri ónákvæmni, sem sýnir glögt, að Kristur o g postularnir hugsuðu um andann einungis, «n hirtu eigi um bók- stafinn. Stundum er farið rangt með nöfn, eins og þegar spámanninum Jere- mía er eignað orð eftir Sakaría spámann af Matteusi (279). Tala þeirra, er létust í plágunni, sem féll yfir ísraelslýö fyrir hjáguðadýrkan og hórdóm, er Móabítar leiddu þáútí,er í g.t.24 þúsundir(4M 259). Pállpostuli segir,að það hafi verið að eins 23 þúsundir (íKorio8). Presturinn, sem gaf Davíð brauðin helgu, heitir í g.t. Ahimelek (iS^i'þen í n.t. er hann nefnd- ur Abíatar (Mk226) og það, þar sem ræð- an er lögð frelsaranum í munn. í g.t. stendur hallærið, sem upp kom í ísrael á ríkisárum Akabs, á þriðja ár (1K18'), en í n. t. hálft fjórða ár (Lk42-5). Sakaria Jójadason (2Kr242°) er í n.t. kallaður Barakíason (Mt2335) af því honum er ruglað saman við spámanninn Sakaría (i1), sem var miklu frægari maður. Á þessu ætti öllum að vera augljóst, sem á annað borð vilja sjá, að það sannar býsna Iítið, þótt eitthvað í g.t. sé nefnt á nafn í hinu nýja. Ekkert af ummælum Krists um g.t. né nokkurra n.t. höfunda getur því komið í veg fyrir frjálsa, sögulega rannsókn, né hamlað hemni frá að komast að þeirri niðurstöðu, sem fullkomnasta þekking hverrar tíðar bendir henni til. Þótt hann eða þeir nefni einhvern mann í sambandi við eitthvað, sem vitnað er í, er það alls engin sönnun þess, hver höfundur sé. Þegar hann vitnar til einhverrar sögu, eins og t.d. sögunnar um konu Lots eða sögunnar um Jónas spámann, sannar það alls ekki, að sagan hafi farið frarn ná- kvæmlega ineð þeim hætti, sem frá er sagt, heldur að eins að hún sé til með ákveðinni mynd í bókmentum Gyðinga og hafi þá andlegu merkingu, sem hann bendir á; af henni sé hægt að draga þenna andlega Iærdóm. Kristur kennir ekkert, sem vísindaleg rannsókn ber á móti. Hann kennir hvorki mannkynssögu né bókmentasögu. Hann neitar einmitt að sinna þeim hlut- um, sem komu frelsisverki hans ekkert við (Lki2’4). Hann talaði ekkert orð, sem kemur í veg fyrir vísindalega rann- sókn eða hamlar henni frá að komast að þeirri niðurstöðu, sem hún finnur rök liggja til. UNDIRBÚNINGSMENTAN PRESTA. EITT af málum þeim, sem presta- stefnan á Þlngvelli hafði til með- ferðar, var undirbúningsmentan presta. Þeim er orðið ant um það á fósturjörðu vorri,aðhún sé í svo góðu lagi,að prestar verði sínu vandasama starfi vaxnir, þeg- ar þeir taka við því. Þeir hugsa ekki um að snöggsjóða eins og við hér, heldur láta undirbúninginn verða sem allra-ræki- legastan. Prestaskólinn í Reykjavík er nú ólíkt tullkomnari mentastofnan presta- skólunum lútersku hér í landi, og nær væri það miklu, að ungir menn, sem hugsuðu sér að gjörast prestar með Vest- ur-íslendingum, leituðu þangað og lærðu guðfræði sína þar, hetdi r en hér. Þeir myndi þá eigi þurfa að óttast, að söfnuð- irnir ræki þá af höndum sér eftir skamm- an tíma, sökum þess þeir væri að troða að þeim kristindómi gagnólíkum þeim, er vér höfum flutt með oss af fósturjörðu vorri sem þjóðernislegan arf. Þar myndi þeir fá ágætt tækifæri til að nema tungu vora til hlítar. Þar fengi þeir að kynn-

x

Breiðablik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.