Dagsbrún - 16.04.1916, Side 3
DAGS3RÚN
57
fara frani úr liðugri hálfri mill-
]ón króna, (en járnbraut víst
tífalt meira). Þar að auki gætu
175 vélbátar hafst við í Þor-
lákshöfn og þeir einir geta
samkv. útreikningi hr. G. E.
borið hafnarkostnaðinn, og
kosnað við járnbraut upp að
Ölfusárbrú. Eins og skiljanlegt
er, kjósa bændur eystra heldur
þennan kostinn og hafa gert
miklar ráðstafanir til að koma
verkinu x framkvæmd. Hvaða-
næva af landinu fagna menn
þessum tíðindum, og þá ekki
síst Alþýðuflokksmenn, sem
allra síst hefðu viljað bæta á
sig nýjum, þungum sköttum til
að þóknast járnbrautarklíkunni
i Reykjavík. Er nú sem stendur
líkast til að járnbrautarráðagerð
Jóns Þorlákssonar sé að engu
orðin.
Pórir.
--- '■ ■ — ----
Bannlögin.
Athugasemd við grein'óbreytts liðs-
manns í l3rtölubllaði~Dagsbrúnar.
Herra ritstjóri!
Eg er ekki minna þakklátur
blaði yðar en »óbreyttur liðs-
maður« sem eg hér á eftir leyfi
már að kalla liðsm. — til hægð-
arauka, — fyrir þess góðu und-
irtektir undir áhugamál vor
hannvinna og ýmsar fréttir og
smágreinar, sem og þessi frá
liðsm, stefna í rétta átt.
Eg er samt ekki alveg sam-
mála liðsm. eða ánægður með
i-itverk hans, svo að eg finn
ástæðu til að gera athuganir við
það, því eg tel hann hafa farið
i sumu of langt, en öðru helsti
skamt.
Það er rétt að alment yfir-
borðsskraf og gaspur fram og
aftur um lögbrot og hneyxli er
handónýtt vopn í baráttunni
gegn Bakkusi og liði hans, and-
banningum á þeim vigvelli sem
nú er barist á. Þeir sem utan
við leikinn slanda eru alls
ófróðir um framgöngu liðs-
mannanna og um vopnaviðskift-
in, nema gegnum froðuhjal og
kviksöður sem bæði »hyste-
riskir« bannvinir og »útspeku-
leraðir« andbanningar keppast
um að útbreiða og sem alt ber
að sama brunni, sem sé, að
ófrægja þá dánumenn sem gera
það sem gert er, og gert hefir
verið í þeim efnum, að veit§
Bakkusi og berserkjum hans
viðnám.
Það mundi reynast mun
gagnlegra vopn að skýra al-
menningi í útbreiddu blaði satt
og rétt frá því sem hefir gerst á
vígvellinum, frá hverri kæru
sem leiðir til sektar og afplán-
unar, með nauðsynlegum skýr-
ingum, og líka frá þeim til-
raunum sem ekki bera ákjós-
anlegan árangur, og um leið
hverju um er að kenna. Slík
aðferð mundi styðja þá sem
eitthvað geta og vilja gera, og
hún mundi laða ýmsa til hjálp-
ar móti Bakkusi, en á hinn bóg-
inn fáa til að skipa sér undir
merki hans. Það vita bannfjend-
ur vel, og því sporna þeir á
allan hátt við því að nema sem
allra minst breiðist út um ó-
sigra sinna manna, eða slóða-
skap, og það, sem er máski
verra — af hálfu lögregluliðs-
ins og dómaranna; því ef slíkt
yrði almenningi nægilega kunn-
ugt, eiga þeir á hættu, að hér
skapist almenningsálit er gœti
orðið öllu þeirra leynimakki og
lögfræðisvafningamoldviðri, yfir-
sterkara.
Eg er nú svo gerður, að mér
finst að hver ,sem hefir þessu
líka skoðun á því hvað gera
þurfi frá blaðamenskunnar hálfu,
eigi fyrst og fremst að beina
skeytum sínum til »Templars«,
hins opinbera málgagns G. T.
Reglunnar. Ætti það ?kki að
ríða á vaðið, og beita sér fyrir
því, að gera menn sannfróða
um þessa hluti? Hverjum stend-
ur þetta nær? Mundu ekki
þessar sögur fremur afla því
útbrelðslu og vinsælda, heldur
en þýddur reyfari sem enginn
les, vegna þess hve dræmt hann
kemur,?
Framh.
Good-Templar.
Bjðrgunarskip.
Sveinbjörn Egilsson ritstjóri
»Ægis« ritar eftirtektarverða
grein í Lögréttu B/+, um að timi
muni vera komin til þess, að
við förum að eignast björgun-
arskip. Vill hann láta það
fylgja flotanum, og vera jafn-
framt spítalaskip, og hafa lækni
innanborðs.
Margur sjómaðurinn hefir
beðið bana af því að hann hefir
ekki komist nógu snemma undir
læknishendur, og feykna mikið
tap hafa bæði hásetar og út-
gerðarmenn beðið á þvi, þegar
þurft hefir orðið að sigla með
veika menn til lands, frá ágæt-
um afla.
Málið er þess vert, að því sé
gaumur gefinn.
/
Ur eigin herbúðum.
—V—
Yerkam.fél., Framsókn
Stykkishólmi.
Meðlimatala félagsins var um
nýár 109. Stjórnin: formaður
Baldvin Bárðdal, ritari Guð-
mundur Jónsson frá Narfeyri;
ijármálaritari Benedikt Björns-
son, féhirðir Magnús Jónsson.
Félegið var stofnað 12. jan. í
fyrra.
Nafnbreyting.
Einar Indriöason bankaritari hefir
látið lögskrá sér ættarnafniö Viðar,
og heitir pví hér eftir Einar Viðar.
Til Páskanna.
Hveiti 3 teg. 18, 20, 22 aura pr. 72 kgr- St. Melis pr.
72 kgr. 29 aura. Rúsínur, sveskjur, kúrennur, þurk.
epli, þurk. aprikosur, kirseber, sukat. Niöursoðnir
ávextir: Perur, jarðarber, ananas, epli o. íl. Sírop í
72 kgr. dósum. »Hafnia« öl, ýmsar tegundir. Ávaxta-
mauk: Jarðarberja og blandað. Vindlar og vindlingar
margar tegundir.
A lt uýjai* og góðar vörur.
Verðið hvergi lægra.
„Vonkk LaiP. 55.
t Hveiti - Haframjöl - Mais.
Þrátt fyrir það þó hveiti hækki nú í verði dag frá degi,
þá selur nú Liverpool samt eftirfarandi tegundir með mjög
vægu verði:
(frá 34 aura kgr.)
etorliveitl »Pill»bury«
»Alexandra« »VikíntjK
»Docabo« »Red Ðog-«
á
Haíramjöl, besta tegund
— Pokinn ÍO krónnr —
Maísmjöl, ásætt, hreint og oblandaö.
— Fokinn kr. 14,40. —
Uaís heíll, ágætur mun ódýrari.
llveiti M 2 (Red Dog) ágætt i brauð.
Sparið tíma og.peninga og ' I :i/r.rrxrvr.l
komið beint 1 LlYOipUUL
—• Sími 43 zzz
Cfiía Sapfiyr úCálslin
margar teg nýkomnar
sparar peninga — sparar þvottl
Ætíð nýtl.
Einnig mikið af Slanfnm og hvit-
um, svörtum og mislitum. Fjölbreytt úrval.
Engin verðhækkun í Klæðaverzl.
Gruðm. Siourðsisoimr.
Matj urtaíræ. Blómsturfræ.
Begoniulaukar
og fleiri tegundir nýkomnar. Mesta tirvai: Alt fræ frá
f. á. selt með hálfvirði í Klæðaverzlun Guðm. Sigurðssonar.
Svanl. lienidiktsdóttir
Amerlkuvörurnar
eru komnar í kaupfélag verkamanna. Þeir sem hafa pantað vörur
hjá félaginu, ættu að vitja þeirra sem fyrst.