Dagskrá II - 07.09.1901, Blaðsíða 1
Verð 50 cents. DAGSKRÁ II. íaugardag.
... ........ II I ■■ I ■ ..... III I _U-11_U_IHIIIM.I IHJ) Hl II I——
7. BL. 7. 8EFTEMBE1Í 1901 I. ár.
BLÆJULAUS SANNLEIKUR.
Sumum þykir ég vera harðorður
þegar ög tala um drykkjuskap og
bindindi. Eg skal segja ykkur
hvernig á því sténdur, vinir mínir.
Ástæðurnar eru þessar. Drykkju-
skapurinn hefir drepið hana móður
mína — — elskulegustu konuna,
sem ég hefi þekt — drykkjuskapur-
inn hefir eyðilagt hann föður minn,
sem var gáfaður, efnilegur og góður
maður; drykkjuskapurinn hefir
skapað mér og systkinum mínum
mörg þung spor, rnarga sólskins-
íausa daga, margar langar andvök-
unætur. Þetta er sö reynzla, sem ég
hefi af drykkjuskapnum persónu-
lega, og samt hefi ég aldrei verið
drykkjumaður sjálfur. Þá sem ó-
gæfan hefir leitt sjálfá út í það líka,
hafa um enn þá dýpri sár að binda,
Þegar ég hefi nú sagt ykkur þetta,
— og sagt það alt satt — þá vona
ég að þið skiljið það, vinir mínir, að
ég hefi ástæðu til að taka nokkuð
djúpt I árinni. Já, ég liefi svarið vín-
sö/unni, sem er móðir víndrykkjunn-
ar æfilangt stríð, guð geft mér
drengskap til að efna það lieit! Þör
drykkjumenn og allir sem líðið
vegna vínsölunnar, ég aumkva yð-
ur og með guðs hjálp langar mig til
að vinna ykkur gagn; en þér, vín-
salar, vínsölustjórnendur og þör allir
hinir mörgu, sem með orði eða at-
kvæði stuðlið að áframhaldi vínsöl-
unnar, ykkur ákæri ég í nafni drott-
ins hins réttláta, ykkur ákæri ég
um morð um hundraðfalt manndráp;
ykkur ákæri ég sein verstu glæpa
menn heimsins. Ef nokkurt líf er til
eftir þetta líf, ef nokkur réttlætis-
dómur á sér stað, ef nokkur kær-
leiksríkur og réttlátur guð er til þá
skuluð þér verða frammi fyrir hon-
um að svara fyrir öli tárin hennar
móður minnar og þúsunda annara.
ógæfusamra kvenna sem þér hafið
myrt! Þá skuluð þér fá að svara
fyrir sorgarsporin hans föður míns
og annara drykkjumanna! Já, þér
hugsunarlausu gárungar, ég ákæri
yður fyrir alt þetta; fyrir dóm-
stóli drottins skal það verða dæmt;
að öðrum kosti neita ég að hann té
nokkur til. Af þessum ástæðum hefi
ég svarið ykkur æfilangt stríð ogég
ætla að efna það. I guðs nafni hett
ég byrjað það og í hans nafni skaL
ég halda því áfram. Þér getið hlegið
að mér, ég er ekki spöhræddur; þér
getið talið mig geggjaðann, ég firtist
ekki af því; þér getið fundið upp
hvers konar illyrði, sem ykkur lfk-
ar £ rninn garðég er ekki hörunds-
sár. Eg ákæri ykkur urn morð!
morð! manndráp! manndráp! glæpi!
glæpi! Guð veri ykkur miskunsam-
ur! athugið í hans nafni hvað þér
eruð að gjöra! Þegar ég nú hefi sagt
ykkur ástæðurnar fyrir þv£ að mör