Fréttir

Issue

Fréttir - 31.12.1915, Page 3

Fréttir - 31.12.1915, Page 3
31. d««.]. FRÉTTIR 369 sem fyrst. Er hann sá fyrsti af þegnum Miðveldanna, sem hefir sett þá skoðun fram á prenti. Þessi grein hans vakti því auðvitað afarmikla athygli og — fögnuð. Kveðst þessi danski blaðamaður hafa séð hjá honum bunka af bréfum frá fólki af ýmsum stéttum, þar sem honum er tjáð þakklæti fyrir þessa grein. Blaðamaðurinn heíir þau ummæli eftir Singer, að hingað til hafi hvorugur ófriðar- aðilinn þorað að nefna frið á nafn, vegna þess að þeir hafl óttast að það mundi verða skoðað sem staðfesting þess, að þeir stæðu illa að vígi. »En nú þorum vér paða, sagði hann, »því að nú, eftir að ófriðurinn hefir staðið í 15 mánuði, hafa Miðveldin engan bilbug látið á sér finna og aðstaða þeirra er nú betri en nokkru sinni áður. Þess vegna getum vér boðið óvinum vor- um frið og vér munum eigi gera svo ljar- stæðar kröfur, að það þurfi að standa I vegi fyrir samkomulagk. Singer hugsar sér leiðina til friðarsamn- inga helst þá, að einhver hlutlaus vísinda- maður eða stjórnmálamaður boði blaða- menn ófriðarþjóðanna saman til fundar í hlutlausu landi, þar sem þeir reyni að koma sér saman um friðarskilmálana, til þess svo að leggja þá fyrir stjórnir ófriðar- þjóðanna. Það er auðsætt af þessu, að Bandamenn og þeir, sem þeim eru mest fylgjandi, vaða reyk, er þeir ætla að friðarhreyfing sú, sem gert hefir vart við sig innan Miðveld- anna, eigí rót sína að rekja til þess að þau séu nú farin að sjá sitt óvænna, hvað úr- slit ófriðarins snertir. IJau eru hvergi hrædd hjörs I þrá, en eigi að síður vilja þau vinna að því með öðrum góðum mönnum, að létta bölvun ófriðarins sem fyrst af þjóð- unum. —n Brúin á íbar. Nú hefir Kraljevó verið tekin, en ekki er friðlegt þar enn. Serbar fara þar um alt eins og maurar i þúfu. Yæri líklegt að Þjóverjar næmu þarna staðar í hinum breiða Mórava dal, því að kvikfjárhjarðir eru á víð og dreif þar í þorpunum, en þeir bíða þangað til að vagnalestir koma með skot- færi, brauð, skófatnað og «nnað því líkt, enda stendur þeim hálfgerður stuggur af hinum ógreiðfæru og hrjóstrugu fjöllum. En það er ekki um neina dvöl að ræða þarna eins og stendur, því að þeir ætla sér að komast til íbar og eitthvað upp með henni. Öll slrætin í Kraljevó eru full af mönnum og skepnum, en serbisku sjúkratjöldin, sem likjast norðurfjöllum Serbíu að lit og lög- un þótt í smáum stíl sé, standa enn þá við járnbrautarstöðina og á grassléttunni. Sjást heypokar og stangadýnur, sem særðu hermennirnir hafa hvílt á, ef litið er inn i tjöldin, en loftið i þeim er svækjulegt og Blómið blóðrauða. Eftir Jóh. Linnankosky. 4. Feðgarnir. Dögurði var lokið. Fólkið ílýtti sér út. »Bíddu við, ÓIafur!« sagði faðir hans í öndveginu. »Jeg þarf að tala við þig!« Ólafur sótroðnaði. Hann vissi yfir hverju karlinn bjó, og hafði við þessu búist allan morguninn. Þau voru þrjú saman inni. Húsfreyja stóð úti hjá arni. »Seztu!« sagði bóndi hryssingslega. Ólafur gerði svo. Stundarkorn heyrðist ekkert, nema letilegt ganghljóðið í klukk- unni. »Jeg veit hvert hún mamma þín fór í nótt. — Kantu ekki að skammast þin?« Ólafur draup höfði. »Það væri maklegast að gefa þér utan undir, og þú skalt ekki heldur vera viss urn, að þú fáir það ekki!« Ólafur þorði ekki að líta upp, en hann heyrði á rómnum, hve reiður faðir hans var. »Hvað ætlarðu eiginlega að hafast að?« tók karl aftur til máls. »Eiga krakka með hverri stelpu, er ekki svo?« »Pabbi!« heyrðist sagt lágt utan frá arn- inum. Auðséð var á svip gömlu konunnar, að hún bjóst við því versta. Kalt og biturt var augnaráðið, sem karl beindi að arninum úr öndveginu. »— Og koma með þá heim og lála for- eldrana þína ala önn fyrir þeim?« Ólafur blánaði og þrútnaði af reiði. Var þetta faðir hans, sem sat þarna og mælti til hans slíkum orðum? Var það ekki öllu heldur einhver ókunnur, hranalegur aðkomu- maður, sem brotist hafði inn í bæinn? Og í sömu svipan greip hann ný kend, 233 liggja þar inni einhver sokkaplögg og annar fatnaður af þeim, sem látist hafa. Þar ligg- ur líka dauður Serbi i brúnum kufli og vafinn i brúnan dúk, svo að ilt er að koma auga á hann, • en nú verða teknar grafir milli trjánna fyrir framan brautarstöðina og ér hermaður einn að mála þessi átak- anlegu orð á trékross, sem hann ætlar að reisa félaga sínum: »Vegfarandi! Stattu við og bið þú fyrir mér. Á morgun kemur einhver annar og biður fyj-ir þér«. Vinstra megin við tjöldin er raðað 139 byssum, sem teknar hafa verið og standa þýzkir hermenn þar hjá þeim og eru að virða þær fyrir sér ogtaka ljósmyndir afþeim. Margir þeirra þukla um hlaupin, en aðrir gagnskoða þær af mikilli þekkingu og lýsa byggingu þeirra fyrir öðrum áheyrendum. Er dátunum herfang þetta sigurmerki eins og fánarnir þeim sem heima sitja. Bak við brautarstöðina er raðað ótal kössum full- um af sprengikúlum og púðri. Það er hið alræmda frakkneska B-púður. og er það auðvitað, að Frakkar hafa komið því til Serba i tæka tíð. Túlkur einn les merkin á kössunum og eru þeir svo opn- aðir. Eg berst nú með mannþyrpingunni á- leiðis til fljótsins alt þangað til eg er kom- einhver ofsatrylling. Hann gat ekki gert sér hana ljósa. En hún jók honum ásmegin og altók hann. Hann leit upp og bjóst til and- mæla, en stóð upp, eins og einhver hefði tekið í hönd hans, og sneri til dyra. »Hvert ætlarðu?« »Út á akra!« »Nú, einmitt það? —«. Svo var sem rödd- in einsaman gripi fyrir kverkai honum. »Þú ferð ekki fótmál fyrri en þú svarar og það þegar í stað! Ætlarðu til hennar?« Hik kom á Ólaf. Áðan hafði hann blygð- ast sín og verið fús á að slaka til, en í einu vetfangi var honum snúinn hugur. Nú fann hann, að hann varð að bera af sér, berjast til þrautar fyrir því, er seinustu dagana hafði beitt hann kynlegu, dulrænu ofurvaldi. Hann snerist skjótt á hæli, bar höfuðið hátt og svaraði einbeittur: »Já, jeg ætla að ganga að eiga hana!« Karlinn setti upp fyrirlitningar- og háðs- svip. En þegar hann sá framan í son sinn, hnykti honum við nokkuð og vissi ekki gerla, hvernig nú skyldi seglum haga. »Ganga að eiga hana'Ui spurði hann og laut fram, eins og honum hefði misheyrst. »Já!« kvað nú við skýrar en áður utan frá dyrunum. Ólafi fanst sér skylt og sjálfsagt, að hefna svívirðu þeirrar, er bæði hann sjálfur og stúlkan hafði verið beitt, og snjallast væri þá að beita því vopninu, er hann hafði séð bíta best og særa dýpst. »Jeg ætla mér að eiga hana!« Orðin voru svo hvöss og hvell, sem hurðu væri skelt í lás. »Hundspottið þitt!« Og karlinn þaut sem ljón til dyra, þreif gólfsóflinn á sprettinum, tók í hnakkadramb- ið á Ólafi og slengdi honum á gólfið, svo af varð dynkur mikill. Þetta skifti engum togum. (Frh.). 234 inn á bakka þess og horfi út á það í sól- skininu. Vatnið i því er skolbrúnt enn þá eftir rigninguna síðustu dagana og flæðir upp í pílviðartrén. Breidd þess er eitthvað um 80 metra og það er ákaflega straum- hart, eins og fjalla-ár eru vanar að vera. Griðarstórir flotar af trjám og runnum hafa borist með straumnum ofan að varnarstólp- unum, sem liggja út frá brúnni. íbarfljótið kemur upp í fjöllunum í Montenegro og fellur um þröngt skarð, sem er beint á móti, og þar er straumhraðinn afarmikill. Hafa Serbar mjög mikið dálæti á fljótinu, því að það rennur um marga þá staði, sem frægir eru í sögu Serba og hafa þeir átt vopnaviðskifti víða fram með því. Eg sezt nú niður í grastó eina, en það er nú farið að minka um grasblettina. Það er búið að sparka það alt niður og bæla af mönnum og skepnum. Er allsstaðar fult af hálmi, skyrtum, sokkum, einkennisföt- um, stigvélum, pokum og öðru rusli svo sem hálfbrunnu heyi og hálfrifnum sendi- bréfum, hænsnafiðri og hræjum. Þarna er ógrynni hræfugla, er safnast að þessu rusli og þarna voru herbúðir Serba. Það er hægt að ímynda sér hvei'nig þarna hafi litið út þegar þýzku sprengikúlurnar þeytt- ust um staðinn sólarhring áður en búist var við, óp og fyrirskipanir hinna serb-

x

Fréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.