Fréttir

Eksemplar

Fréttir - 17.05.1918, Side 2

Fréttir - 17.05.1918, Side 2
2 FRÉTTIR íslenzku símamennirnir. Eftir H. de Vere Stacpoole. (Frh.) En hann gat ekkert við þessu gert, og ekki náð til hennar aftur, því að »Ceres« hafði nú létt akkerum, og tók stefnu til Stykkishólms. Svala sakleysinginn, sem áleit hverja hans ósk eins og eitthvert lögmáls-boðorð, og sem hann áleit, að væri einhver dýrmætasti hlutur- inn í eigu sinni — hún hafði látið sér þessi orð um munn fara, og gefið í skyn, að hún hefði sjálfstæðar skoðanir, sem auk þess voru gagnstæðar hans skoðunum. Það var ótrúlegt, en satt var það samt. Skyldi hún vera gengin af vitinu? Nei — ó, nei! Hún var alheilbrigð, en hafði að eins haft hann fyrir leikfifl. Hann var seinn til reiði, og skifti mjög sjaldan skapi, enda var það meðal annars þessúm kostum að þakka, hvað hann hafði komizt vel áfram. En nú varð hann verulega reiður. Geðs- munir hans komust allir í æsingu vegna stúlku þessarar, sem forsmáði hann. Honum tókst þó að stilla sig, og láta sem ekkert væri, enda þekti hann flesta farþegana. Hann fór ekki í land í Stykkishólmi, en sat kyr i salnum og drakk öl með verzlunaF- mönnum nokkrum, sem vóru á leið til Reykjavíkur. Þangað komu þeir morguninn eftir, og gekk hann þá beint til skrifstofu Helga Stefáns- sonar. Helgi var að vísu ekki lögmaður hans, en gamall kunningi og þekti vel til konumál- anna. En auk þess var hann heiðvirður maður, sem óhætt var að treysta, og Ólafur virti lífsreynslu hans inikils. »Já —já! Hvað er nú að frétta frá Breiða- firði?« spurði Helgi. Spurning þessi ýtti undir Ólaf, og sagði hann Helga nú alt af raunum sínum. »Hún mintist ekki á þetta einu orði fyr en við vorum komin út á skipið, og það var að létta akkerum. Hún beið þangað til eg hafði ekkert undanfæri, og þá — en eg er búinn að segja yður það alt saman«. »Það er sízt fyrir að synja, hvað kvenfólk- inu getur dottið í hug«, sagði Helgi, »en þetta er nú samt all-kynlegt. Hafði ykkur borið nokkuð á milli?« • »Borið á m'illi! Nei, síður en svo! Hvað hefði það svo sem átt að vera?« »Nú — fyrst ykkur hefur ekki borið neitt á milli, og hún fer samt svona að ráði sínu«, sagði Helgi, »þá er engum blöðum um það að fletta, að »einhver annar« er kominn í spilið«. »Einhver annar?« »Já — það er einhver annar, sem ætlar sér að ná í hana. Eg skal nú segja yður nokkuð, af því að eg er kunningi yðar. Þegar Magnús kom hingað á leið sinni vestur, sagði eg honum frá trúlofup Svölu, og eg sá, að hann tók sér þá fregn mjög nærri. Svo var helzt að sjá sem að hann hefði sjálfur felt hug til hennar«. »Lubbinn sá!« »Hann er nú frændi hennar engu að síður!« »Nei — það kemur ekki til nokkurra mála, það er ekki hann«, sagði Ólafur, sem fór nú að renna grun í, hvernig á öllu stæði. »Það kann að vera, að það sé ekki hann«, sagði Helgi. »En hver er það þá?« Ólafur hafði verið Svölu svo sárreiður fyrir tiltæki hennar, að lionum höfðu alt að þessu ekki komið neinir keppinautar í hug, en nú sá hann alt í einu og eins og ósjálfrátt hvernig i öllu þessu lá. Það var auðvitað Eiríkur, sem hafði náð Svölu á sitt vald og alstaðar verið honum Þrándur í Götu. Það var hann, sem hafði gint hann til þess að leigja húsið, krækt í bát GíslaJ og vinnu. þeirra feðga, ónýtt til- raunir hans til þess áð leggja undir sig benzín-verzlunina, og verið alt að þessu undarlega hundheppinn með sjávarútveginn. Hann vissi, að þau höfðu farið saman út að hafís-jakanum, og að þau vóru orðin mestu mátar — og nú varð honum það líka skyndilega ljóst, að Eiríkur mundi standa sér framar, þegar um kvennamál væri að ræða, og þurfti ekki að nefna annað til þess, en líkams-yfirburði hans. Ólafur hefði nú orðið hugsjúkur út af þessu, ef hann hefði ekki haft jafnmikið álit á sjálfum sér og hann hafði. Hann hafði alt að þessu ekki litið á Eirík öðruvísi en sem hvern annan sjómann, og ekki komið til hugar, að Svala mundi líta við honum. En þegár hún hafði nú afneitað honum sjálfum, þá fór myndin af keppinaút hans að verða æ skýrari fyrir honum — eins og liann sæi hann í spegli. Því lengur sem hann velti þessu fyrir sér, því sannfærðari varð hann um, að Helgi hefði haft rélt fyrir sér með tilgátu sina, og honum blandaðist ekki hugur um, að hér ætti Eiríkur hlut að máli. Hann hypjaði sig burtu af skrifstofu Helga og gekk til veitingahúss Zoega. frá báðum þessum stórmálum ó- unnum eða hálf-unnum. Margir halda þetta koma af á- hugaleysi almennings. En það er misskilningur. — Ahuginn sýður niðri í mönnuin, það vellur og sýður niðri í mönnum reiðin, ef þeir fá nokkurn minsta grun um, að þingið ætli að vanrækja eitt- hvað af stórmálunum. En þeir þykjast eigi þurfa að ámálga slíka hluti, svo sjálfsagða telja þeir þá. Þessi er ástæðan til þagnarinnar. Áreiðanlega víst er það, að hér þarf engi strokumaður að leita kosninga síðarmeir. flvað ætlar jtisgíð að gera? Fátt gerðist sögulegt á þingi i fyrra dag og voru þó 7 mál á dagskrá í Ed. og 11 i Nd. En það var eins og þingmenn hefðu of- reynt sig á umræðunum um dýr- tíðarlagafrv. stjórnarinnar daginn áður, þvi að sárfáir tóku til máls. Eða hvort er ferðahugurinn orðinn svo rnikill í þingmönnum, að þeir geti nú ei lengur um annað hugs- að, en heimföriha? Það er haft fyrir satt, að heimþrá hafi gripið suma þeirra og það svo, að þeir geti ekki á heilum sér tekið fyrir þessum »F’eber«, þó að öll þjóðin bíði þess nú með eflirvæntingu, að þingið sé á verði bæði inn á við og út á við, — ekki sízt í sjálf- stæðismálinu. — Ekkert er enn farið að gera í fánamálinu og þó var þingíð kallað saman til þess fyrst og fremst að leiða það mál til lykta. Að minsta kosti mun þjóðin hafa litið svo á, að það yrði aðalhlutverk þessa þings, og því að eins mun hún sætta sig við, að þingið var kvatt saman nú, að hún sjái ekki framan í þingmenn sína aftur fyr en þeir geta fært henni a. m. k. siglingafánann i sumargjöf. Hvað ætlar þingið að gera í því máli? Ætlar það að bíða og bíða, eltast við »Fata Morgana« nýrra danskra samn- ingaumleitana og vafninga ennþá einu sinni, eða ætlar það nú að sýna rögg af sér og koma sér þegar niður á aðalatriðin í þeim kröfum, sem þingið veit, að lands- menn bæði vilja og verða að gera um samband landanna? Ef þingið ver tímanum þangað til danska nefndin væntanlega kemur, til þess að gera sér Ijósa afstöðu vora, þá verður þeirri nefnd hægara um vik að átta sig á hvað þingið vill, og þarf þá þingið ekki að tefja tímann, eftir að nefndin er komin, með einhverju nýju samninga- makki. Pá geta þingmenn farið heim til sín í friði og með særnd, — en fyr ekki. Angantýr. Mord. Jón Magnússon á nú að eins eftir síðustu hríðina til þess, að vinna fullan sigúr í sjálfstæðis- málum vorum. Honum ríður á að þingið standi nú fast við hlið hans. En þá koma nokkrir menn úr hans eigin flokki, og vilja láta fresta þinginu, sem er auðvitað byrjun á fullkomnum svikum við málið og foringja þeirra. Flokkurinn myfðir foringja sinn, sviftir hann siguVvon í stórmálum vorum, og sviftir hann kjósanda- fylgi. Flokkurinn myrðir foringja sinn á laun. Hjó sá er hlífa skyldi. Illa munu Norður-ísfirðingar kunna slíku, og einhvern tíma mundi Þórsnesþing hafa greitt þung gjöld fyrir slík verk. Hvað er í tréttum? Yeðráttan. Um alt land stilla. Hitinn 7 stig á Akureyri og ísafirði, 6 í Rvík, 8 í Vestmannaeyjum. — I Færeyj- um sv. kaldi. Botnia fór frá Hófn á þriðjudagsmorgun síðasta. Á alþingi er til umræðu í dag í efri deild bæjarstjórn í Vestmannaeyjum og Siglufirði, mótak, útibú í Vest- mannaeyjum, útsæði og sjóvátrygg- ing, í neðri deild bæjarstjórn á Ak- urevri, löggilding Hvalsíkis, lcola- nám í Gunnarsstaðagróf, biðlaun Metúsalems, rannsókn mómýra, reglugerða sparisjóða, námsstyrkar háskólasveina.harðærisuppbótorða- bókahöfunda, sala á salti, og dýr- tíðarhjálp. Sparisjóðareglugerð. Menn hafa nú um stund orðið að búa við mjög þunglamalega og að því leiti heimskulega reglugerð um bókfærslu við sparisjóði, þar sem ætlast er til að 11 bækur séu haldnar en sama upphæðin bók- færð 4—6 sinnum. Þessi miljóna- reikningsfærzla á tæplega við okk- ar litlu sparisjóði. Nú flytja þeir Stefán Stefánsson, Einar Árnason og Pétur Ottesen tillögu til þings- ályktunar um að þessu bókunar- fargi sé létt af. Saltsala. Fyrirspurn flytja þeir Hákon Kristófersson og Pétur Ottesen til landsstjórnarinnar svohljóð- andi: Er það með ráði eða samþykki landsstjórnarinnar, að útlend fiskiskip, sem stunduðu fiskiveiðar hér við land síðastliðna vetrarvertið, hafi fengið hér salt og aðrar nauðsynjar til útgerðarinnar? \

x

Fréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.