Fréttir

Tölublað

Fréttir - 29.07.1918, Blaðsíða 2

Fréttir - 29.07.1918, Blaðsíða 2
2 FRETTIR Marteinn málari. Eftir Oharles Garvice. (Frh.) Þetta bænarandvarp \ar gamla manninum svo óeiginlegt, að hann hnykti sér upp, rétti úr sér, þreif pennann og hélt áfram að skrifa. ★ ★ * Vorsólin skein í heiði og sendi geisla sína gegnum trjálimið í Greymere-skóginum, en Marteinn beygði út af þjóðveginum og gekk eftir mjóum stíg til þess að stytta sér leið til herragarðsins. Hann hafði verið að heimsækja einhverja nágranna sína og þótti honum gott að koma undir bert loft frá margmenninu. Hann vildi líka helst vera einn með hugsanir sínar, en hann hafði ekki gengið nema spölkorn eftir stígnum þegar hann kom auga á unglings- stúlku fram undan sér. Hún laut niður og var að tína blóm, en leit upp þegar hún heyrði laufbrúgurnar skrjáfa undir fótum Marteins o£ horfði á hann. Hún hafði hengt hatt sinn á trjágrein þar nálægt og hárið, sem var fremur stutt, féll í lokkum um höfuðið. Hún var öllu einkenni- legri en hún var fríð, og líktist helst ein- hverjum álfadreng, af því að hárið var svo stutt og þar á ofan voru föt hennar ekki ó- svipuð drengjafötum í sniðinu. Hún horfði á Martein bláum og gletnum sakleysisaugum og sagði: »Jæja-þá, meistari Marteinnl Hvað ert þú að gera í mínum skógi?« »Eg ætlaði nú einmitt að spyrja þig hins sama«, svaraði hann brosandi. »í*að er ekki þinn skógur«, sagði hún og laut niður eftir sérlega fögru blómi, sem hún rak þá augun í. »Nú — en það er áreiðanlega ekki þinn skógur heldur«, sagði hann. »Við höfum þá líklega bæði jafnan rétt til þess að vera hér«, sagði hún viðstöðu- laust. »Það veit eg nú ekki vel«, sagði hano ertnislega. »Ef þú spyrðir, þá mundi eg svara, að eg ætti meira með hann en þú, fyrst faðir minn á hann«. »Hvernig líður honum?« spurði hún og raðaði blóinunum í körfuna. »Ágætlega«, svaraði Marteinn, »en hann er ekki í vel góðu skapi«. »Og hvernig gengur málarastarfið?« spurði hún skyndilega. Hann svaraði ekki undir eins, en bylti til laufhrúgunni með staf sínum. Hann gat ekki almennilega fengið sig til að segja ungu stúlkunni, að hann vær^ á förum, þó að ástæðan væri honum ekki vel Ijós, því að þau voru beztu vinir, þó að aldursmunur væri mikill; var Rósamunda Fielding ennþá á skólaárunum. »Því svararðu mér ekki, Marteinn?« spurði hún mynduglega, eins og unglingum er títt, og honum þótti gaman að. »Þú hefur nú verið heilan klukkutíma að róta í laufhrúg- unni og bora í jörðina með stafnum þínum, og það,þykir ekki kurteisi, að láta kvenfólk bíða svars, skal eg segja þér«. »Ef satt skal segja, þá var eg að hugsa um, hvernig eg gæti svarað þér bezt«, sagði hann alvarlega. (Frh.) f Lloyd Georg'e. Eftir Frank X>ilnot. (Frh.) Hin mesta andstæða í lífi Lloyd George er samt enn þá ónefnd. Næst sjálfum sér átti hann Asquith að þakka gengi sitt. Lloyd George er eins og Rretum er títt tilfinningamaður mikill og mun haun, án efa, hafa verið Asquith mjög þakk- látur. En samt sem áður hikaði hann ekki hið minsta við að víkja honum frá völdum og taka sjálfur forystuna, þegar honum þótti nauður reka til fyrir sakir ríkisins. XII. Lloyd George verður forsætisráðlierra. í fljótu bragði virðist það all-óviðfeldið, að Lloyd George skyldi verða þess valdandi, að Asquith fór frá, og varð svo sjálfur for- sætisráðherra í hans stað. Asquith var hinn mesti atgervismaður um flesta hluti. Hann hafði verið forsætisráð- herra í átta ár samfleytt, og á þeim tíma höfðu umbætur miklar orðið á flestum hlut- um á Englandi — umbætúr, sem ávalt mun minst verða i sögu brezka ríkisins. Hann hafði verið vinur mikill Lloyd George, og undir hans stjórn hafði George aukist æ að tign og metorðum. Og svo er Asquith á í sem mestri vök að verjast, þá verður Lloyd George honum að falli. Þegar lesin er þannig röð viðburðanna, virðist Lloyd George eigi hafa farið drengi- lega að ráði sínu. Eg hygg og að þeir menn muni til vera á Englandi, sem aldrei muni fyrirgefa Lloyd George aðgerðir hans gegn Asquith. En þess ber að gæta, að menn þessir hafa verið of nærri, er atburðir þessir fóru fram og eru þess vegna of þröngsýnir. Menn munu eigi færir að dæma óvilhalt um þetta stórmál, fyr en að mörgum árum liðnum.— Enn þá leitast þeir við að vega á bréfavog sál þess manns, sem er meiri atgervismaður um flesta hluti, en allir samtíðarmenn hans. Þess ber að gæta, að einn þeirra stór- menna, sem koma að eins fram meðal þjóð- anna einu sinni eða tvisvar á öld hverri, var hér að verki. Eigi tjáir að fylgja venjum hins daglega lífs, er heill milljóna mannkynsins liggur við. Er svo ber undir, starfa stórmenni þann veg, að smælingjarnir bera eigi skyn á verk þeirra. Eg er eigi einn þeirra manna sem halda að Lloyd George hafi beitt brögðum til þess að hefja sig upp i hásætið, þótt eg þykist þess fullvís, að hanu muni það séð hafa, að sá timi hlyti að koma, að hann yrði forsæt- isráðherra. Eg hygg, að upp frá þeim tíma er honum varð það Ijóst, að ófriður væri óumflýjanleg- ur, þá hafi hann beitt til þess öllu starfs- þreki sínu og hyggjuviti að gera Bretum sig- urinn vísan. Og enn fremur hygg eg, að allir þeir sigrar, er hann vann á starfssviðum sín- um, hafi dregið upp fyrir sjónum hans mynd þess, hvern veg nauður rak til að háður væri heimsófriðurinn. Mun enginn meðstjórnenda hans hafa eygt þá mynd, þótt hún væri skýr og að öllu hin glöggvasta fyrir sjónum hans. Hann mun hafa titrað af ákafa og eftir- væntingu, er hann sá, hve mörgu þurfti fram að koma til þess að vel ætti að fara. Eg hygg að hann hafi aldrei hugsað um sjálf— an sig. Hann gerði sér mikið far um að blása meðstjórnendum sínum og þjóðinni hinum eldlega áhuga í brjóst, og gerðu menn ýmist að dá hann eða óttast. Er honum þótti all-lítt áfram miða, þá varð honum það ljóst, að eigi mátti svo.bú- ið standa; hann hlaut að taka sjálfur for- ystuna. Eg hygg að þar hafi hann eigi látið stjórn- ast af illum hvötum, heldur tók hugsun þessi sál hans traustum tökum, svo sem títt er að trúarbrögð taki mennina, og þess vegna lét hann sig engu skifta, hvað aðrir sögðu um atgerðir hans. En hvað var það þá, sem hann réð á? í brezku stjórninni er hver ráðherra sjálf- stæður forystumaður síns ráðuneytis. Þegar eigi er ófriður, þá lætur forsætisráðherrann sig engu varða störf hinna annara ráðherra,. nema um sé að ræða stórmál, er varða miklu heill ríkisins. Asquith hafði skipað stjórn sína afburða- mönnum. Hann var sjálfur hinn atgervis- mesti forystumaður, en treysti samt ráðherr- um sínum sem sjálfum sér. En aldrei voru þeir svo afkastamiklir eða hagsýnir, að þá skorti eigi á við funa-fjörtök Lloyd George á öllu er að framkvæmdum laut, en þó eink- um í þvi að sjá hvað þurfli að gera, til þess að öllu lyki sem fyrst og sem bezt. Meðstjórnendur hans fóru eigi rasandi að ráði sínu. Þeir gerðu áætlanir af gætni mik- illi og fyrirhyggju, en voru seinir til atgerða allra. En Lloyd George leit svo á, sem öll störf þeirra væru ófullkomin og ónóg. Hon- um leizt alt vera all-hægfara, og aldrei virt- ist honum bann sjá ærlegt handtak, eða skjót- leik þann og dirfsku í framkvæmdum öllum, sem honum þótti nauður reka til. Marga mánuði var Lloyd George sem á glóðum. Stórblöðin »Daily Mail« og »Times«,. studdu hann all-ötullega. Blöð þessi nefndu Asquith öldung elskulegan og heiðvirðan, sem væri eigi fær til forystu, er stórþjóð berðist fyrir tilveru sinni. Menn voru alls ekki sann- gjarnir í Asquiths garð, en ófriðurinn olli því, að jafn vel stillimenni hin mestu gerð- ust óþolinmóð og heimtuðu dugandi stjórn. Erfiðleíkar þeir sem Asquith átti við að striða, munu síðar verða lýðum ljósir. Hann var forystumaður samsteypustjórnar og allir voru á einu máli um það, að honum hefði tekist prýðilega að halda þar upþi eindrægni og samúð. En fylgismenn Lloyd George kváðu menn verða að krefjast meira af forsætisráðherra á ófriðarlímum, heldur en að hann héldi stjórninni sáttri ogsammála, og Lloyd George virtist þar hafa verið á sama máli. Að lokum þótti honum sem eigi gæti hann lengur látið þetta án afskifta. Dag nokkurn setti hann Asquith tvo kosti. Hinn fyrri var sá, að hann veldi fjóra menn til þess að hafa á hendi yfirumsjón hermál- anna. Skyldu þeir einráðir. Asquith mátti eigi skipa sjálfur sæti í nefnd þessari, nefna þá einungis til málamynda. Síðari kosturinn var sá, að Lloyd George segði af sér. Asquith freistaði að miðla málum. Lloyd George var hinn erfiðasti. Ef Asquith vildi eigi láta skipast við orð hans, þá kvaðst hann mundu segja af sér. Aflurhaldsmenn stjórn- arinnar veitlu honum að málum. En Asquitb og fylgismenn hans vildu eigi undan láta. (Frh.) ✓

x

Fréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.