Fréttir

Tölublað

Fréttir - 29.07.1918, Blaðsíða 4

Fréttir - 29.07.1918, Blaðsíða 4
4 FBETTIR Raflýsin { mítorbáta, Jisktskip, verzlunarhðs, verksmiðjur, sveitaheimiti o. jl. er bezt frá hinu stóra heimsfræga firma Watermann motor Oo., Detroit. Ljósvélarnar framleiða 500—800 kertaljós og eyða ca. */* kg á klukkustund. Vélar þessar \inna án rafgeymis, eru einfaldar, þurfa enga volt- eða amper-mæla og eru mjög fyrirferðalitlar. Aths. Umboð á nefndum vélum fékk eg árið 1916, en pantaði þær fyrst í ár, eftir að hafa látið þektan íslenzkan fagmann skoða vélarnar en honum virtust þær góðar og hentugar. Vélarnar eru seldar ódýrt. — Uppsetningu annast fagmaður. Aðalumboðsmaður fyrir ísland og Færeyjar O. ELLINGSEN. Hljóðfærahús Reykjavíkur Sími 656. Hornið á Pósthússtr. og Templarasundi. Sími 656. Fyrirliggjandi birgðir: I. flokks Píanó og Orgel-Harmonium, Fiðlur, Gítarar, Spiladósir, Taktmælar, Nótnamöppur, Hljóðfærastrengir. Mörg þúsund nótnabækur, mesta úrval. Brúkuð hljóðfæri keypt og tekin í skiftum. V ö rur sendar um alt land gegn póstkröfu, Simi 656. ^Ijiðjxrahú« Reykjavíkur. sw 656. Guy Boothby: Faros egypzki. Nýútkomið: íslenzku símamennirnir eftir IX. de Vere Staepoole. III bœkur, hver annari skemlilegri. I. bókin gerist i Japan, hinar 2 á Islandi. Höfundurinn varð frægur á Englandi fyrir þessa bók. Ný bók! Dýrlingurinn saga eftir Conrad Ferdinand Meyer þýtt hefur Bjarni Jónsson írá Vogi. Bókin er sögulegs efnis, sbr. Sturlungu og Biskupa- sögur og getur þar Tómasar helga af Kantaraborg og Ríkarðs ljónshjarta. Bókaverzlun Guðm. Gamalíelssonar. Afgreiðsla „Fretta” er 1 Austurstræti 18,. síuii 310- -A.«glýseníliir geri svo vel að snúa sér þangað. Kaupendnr geri svo vel að snúa sér þangað. Par er tehið við nýjuin áskrifendum. „dTrétíiru eru Bezía aucjlýsingaBlahié. Prentsmiðjan Gutenberg 260 ið þér að hlusta á mig. Og hvers vegna get- ið þér það ekki? Þér eruð góð kona og eg vona, að eg sé heiðarlegur maður — hvers- vegna skyldi eg þá ekki elska yður? Svarið mér því?« »Vegna þess að það er hreinasta fásinna«, svaraði hún í örvæntingu sinni, »og það sit- ur sízt á okkur að vera að hugsa um þess háttar hluti eins og högum okkar er komið. Æ. eg vildi að þér hefðuð farið að ráðum rnínum og farið burt frá Neapel þegar eg bað yður þess — þá hefði þetta ekki komið fyrir«. »En eg get nú ekki þakkað það eins og vert er«, svaraði eg. »Eg sagði yður þá, að eg ætlaði ekki að yfirgefa yður og það skal eg heldur aldrei gera, fyr en eg veit með vissu, að lífi yðar er engin hætta búin. Pér hafið nú heyrt játningu mína, Valería, en viljið þér nú ekki svara mér jafneinlæglega? Þér hafið ávalt sýnt mér vinarhót, en ætlið þér að láta það sitja við vináttuna eina?« Eg vissi vel við hvern eg átti — vissi vel, að einlægni hennar og hjartagæzka var meiri en svo, að þar gæti nokkur fordild eða upp- gerðar-tepruskapur komið til greina. »Það væri rangt af mér að blekkja yður, herra Forrester, jafnvel þótt það, sem þér þráið mest, geti ekki komið til neinna mála. 261 Eg ann yður eins og þér verðskuldið og hafið til unnið — og meira get eg ekki sagt. Pér verðið nú að fara héðan og reyna að gleyma því, að þér hafið nokkurn tíma fyrir- hitt jafnvesala manneskju og eg er«. »Það geri eg aldrei!« svaraði eg. Eg kraup á kné, þrýsti hönd hennar að vörum mér og mælli ennfremur: »Þér hafið nú játað mér ást yðar, Valeria, og héðan af færekkertað- skilið okkur. Eg mun aldrei yfirgefa yður, hvað sem fyrir kann að koma, og sver eg þess eið í þessari gömlu kirkju. Eg sver það við hinn heilaga kross á altarinu þarna. Eins og við höfum verið saman á tíma neyðar- innar og mótlætisins, eins munum við lifa saman í ást og eindrægni, og hið eg guð að líkna okkur báðum og veita okkur blessun sína«. »Amen« svaraði hún hátiðiega. Hún settist niður og tók eg mér sæti við hlið hennar. »VaIería«, sagði eg. »Mér gekk tvent til að fylgja yður eftir í morgun. Fyrst og fremst var tilgangurinn sá, að játa yður ást mína, og í öðru lagi að segja yður frá þvf, að eg hef ásett mér að taka ákveðna stefnu upp frá þessu. Hvað sem öðru líður, þá verðum við að reyna að sleppa frá Faros og fyrst 262 þér hafið kannast við það, að þér elskið mig, þá reynum við það í sameiningu«. »Það er ekki til neins«, svaraði hún ang- urvær. »Það er ekki til nokkurs skapaðs hlutar«. »Þei-þeil« sagði ég, því að nú gengu þrír menn inn í kirkjuna. »Við getum ekki talað saman hérna og verðum að leita okkur að einhverjum öðrum stað til þess«. Við stóðum þá upp og gengum út úr kirkjunni. Þegar við komum út á götuna, náði eg í vagn og bað vagnstjórann aka okkur til Baumgarten. Átti eg kærar endur- minningar frá lystigarði þeim frá þeim lím- um, er eg hafði verið í Prag áður, en þær endurminningar voru þó hverfandi í saman- burði við þá sælu, að koma þangað nú með unnustu minni. Pegar við höfðum komið okkur fyrir á afviknum stað, hófum við aft- ur samræðu þá sem við urðum að hætta við í kirkjunni. »Þér segið, að það sé ekki til neins að reyna að sleppa frá þessum manni«, sagði eg, »en eg segi yður satt, að það er vissu- lega reynandi, og við verðum að freista þes* hvað sem það kostar. Við vitum nú, að við unnum hvort öðru, eða að minsta kosti vei* eg hvað þér eruð mér. Hvernig getur yður þá komið til hugar, að eg láti yður vera £

x

Fréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.