Fréttir

Issue

Fréttir - 02.08.1918, Page 4

Fréttir - 02.08.1918, Page 4
4 FRETTIR Es. Lagarfoss fer héðan I kvöld kl. 10 um Halifax til New York. Hf. Ejm$kipaféla3 í$larid$. N ýútkomid: Islenzku síraamennirnir eftir II. (le Vere Staepoole. III bækur, hver annari skemtilegri. 1. bókin gerist'i Japan, hinar 2 rí Islandi. Höfundurinn varð frægur rí Englandi fyrir þessa bók. Afgreiðsla „Frétta” er í Austurstræti 18, sími 3X0. ,A.iiglýseiicliii* geri svo vel að snúa sér þangað. Iíallpel^<I^lr• geri svo vel að snúa sér þangað. Par er tekið við nýjum áskriíendum. Nýkomið: Bækur hins heimsfræga Indverja Rabindranath Tagore: Gitanjali, Sahana, Nymánen, Chitra, Postkontoret, Frukt- plockning, 0rtagardsmastaren, Farande fáglar, Konungen av det mörka rummet, De rovlystna stenarna. Deyendranatli Tagore (faðir hins fyrnefnda): Min levnad. Strindberg, Engström, Selraa Lagerlöf o. fl. Ennfremur allar Heimshringlusögur, AV. Menn hraði sér að ná í þessar bækur, því það komu aðeins fáar af hverri, og óvíst, hvenær tekst að ná í þær aftur. Sendi út um land gegn póstkröfu. jjókaverslun fcssis ýrnasonar, Reykjavík. Sæt Saft fæst í Verzlun Ásgrlms Eyþórssonar, Austurstræti 18. Sími 316. Prentsmiðjan Gutenberg Marteinn málari. Eftir Cliavles Garvice. (Frh.) Marteinn brosti þegar hann vafði pappírn- um aftur um þessa óvanalegu gjöf og stakk henni í vasa sinn. En honum datt ekki í hug að hæðast að þessu, því að hann var þakklátur í hjarta sínu fyrir það, að það var þó áreiðanlega ein manneskja, sem lét sér ant nm hann og mintist þess, að hann var nú að leggja út í Iífsbaráttuna — til sigurs og frægðar? Já, vissulega — ef forlögin vildu haga því svo. II. Marteinn Dungal hailaði sér fram á hand- riðið á brú einni yfir Arnófljótið og horfði sér til gamans á nokkra dökkeygða og hrokkinhærða ítalska krakka, sem vóru að dansa eftir fiðluslætti á þröngu stræti þar skamt frá. Petta var nokkru eftir komu hans til Flórens og hafði Marteinn nú tekið sér að- setur í hinni fornfrægu borg og vann af kappi. En þetta kvöld hafði eitthvert eirð- arleysi gripið hann, svo að hann gat ekki snert á nokkurri vinnu; hafði hann því kevpt sér kvöldverð í matsöluhúsi þar skamt frá í þeirri von, að það mundi létta af sér, svo að hann yrði þeim mun hressari og afkastameiri þegar hann tæki aftur til vinnu sinnar. Hann dvaldi í veitingahúsinu fram á kvöld, en gat þó ekki fengið sig til að ganga aftur til vinnustofu sinnar. Reikaði hann þvi um bæinn hingað og þangað i þeirri von að þetta rjátlaðist af sér, og að hann kynni um leið að hitta fyrir sér nýja fyrirmynd eða einkennilegan dyra-umbúning, sem vert'væri að máia. í>á sá hann hvar börnin voru að dansa, og stóð hann nú á brúnni og horfði á þau og gleymdi öllu öðru um stund. Hann hafði staðið þar stundarkorn þegar hann tók eftir mönnum nokkrum, sem fóru um brúna með allmiklum hávaða og voru dökkir og skuggalegir yfirlitum. I sömu andránni gerði einn þeirra athuga- semd, sem auðsjáanlega átti við Martein sjálfan, en þó að hann hefði nú dvalið það lengi á Ítalíu, að hann skildi málið nokkurn veginn, þá botnaði hann þó ekkert í mál- lýzkum alþýðunnar, einkum þegar ört var borið á; auk þess þess talaði maðurinn hljóðlega eins og hann vildi ekki láta Mar- tein heyra til sín, en hann sá það glögt af tilburðum hinna, að við sig var átt. Þá tók einn þeirra ofan í kveðjuskyni og þekti Marteinn þegar að það var eigandi hússins, sem vinnustofa hans var í- Hann tók undir kveðjuna og héldu þeir svo áleiðis. Þetta var nú ofur hversdagslegur atburður, en hafði þó talsverða þýðingu, sem Marteini var hulin. Er það oft svo, að hinir alvarleg- ustu viðburðir lífsins eiga rót sína að rekja til einhverra smá-atvika. Morguninn eftir var Marteinn enn ófúsari til vinnu og gat ekki á heilum sér tekið fyrir deyfð og leiðindum. Jafnskjótt sem hann kom til Flórens, hafði hann farið á fund mikils metins listmálara eins, sem stofnað hafði fyrir skömmu mál- araskóla þar í borginni og Marteinn hafði ávalt þráð að fá tilsögn hjá. Sá hann þá fyrst í raun og veru, hversu mikið hann vantaði alla nauðsynlega fræðslu og leiðbein- ingu, í öllu því sem listina snerti. Þó hafði kennari hans sagt honum, að hann hefði góða hæfileika og þyrfti að eins að gefa sig allan að náminu til þess að ná takmarkinu' (Frh.)

x

Fréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.