Fréttir - 23.09.1918, Page 3
FRETTIR
3
Fréttir.
Kosta 5 anra eintaklð í lausasölu.
Fyrir fasta kaupendur 1 kr. á mánuði.
Anglýsingarerð: 50 aura
hver centimeter í dálki, miöaö viö
Qórdálka blaðsíður.
Afgreiðsla í Anstur-
Htræti 18, MÍmi 31ö.
Við auglýsingnm er tekið á af-
greiðslnnni og í prentsm. Gutenberg.
Útgefandi:
Félag í BeyUiavík.
Ritstjóri:
Giiöm. Guðmuudason,
íkáld.
Sími 448. Pósthólf 286.
Viðtalstimi venjulega kl. 4—5virka
daga á Óöinsg. S B uppi á lofti.
(Framhald af 1. síöu.)
unar setjum vér hér samanburð
þann, sem nefndarmaður Jón Þor-
láksson gerði á síðasta fundi bæj-
arstjórnarinnar um kostnað við
raflýsingu samanborna við olíu-
og gasljós fyrir sama Ijósmagn.
Gas til Ijósa kostar nú kr. 1.88
teningsmeterinn úr gasstöð bæjar-
ins. Góðir gaslampar eyða 1 lítra
af gasi á klst. fyrir hverja ljósein-
ingu (sjá t. d. Hutte, II. bls. 816),
og eyðir þá 50 Ijósa gaslampi 55
lítrum á klst., en þeir kosta rúma
10 au. Beztu gasglóðalampar, áem
loga niður á við, eru taldir eyða
50 lítrum á klst. fyrir 50 Ijósein-
ingar, og verða það tæpir 10 au.
á klst. í ljósmetiskostnað með nú-
verandi gasverði.
Steinolíulampar í góðu lagi eyða
2,3 til 3 grömmum af steinolíu á
klst. fyrir hverja ljóseiningu; 50
ljóseininga olíulampi (svarar til 30
línu brennara) eyðir þá 125 til 150
grömmum af steinolíu á klst.
Einn lítri af steinolíu vegur um
800 grömm og kostar sem stendur
í smásölu um 60 au; samkvæmt
því eyðir 50 ljóseininga olíulampi
steinolíu fyrir 9x/a til 11 au. á
klst.
Rafmagnslampar þeir, sem nú
eru almennast notaðir, eyða einu
watti rafmagns fyrir hverja ljós-
einingu; 50 ljóseininga rafmagns-
lampi eyðir þá 50 wöttum eða */*•
úr kílówattstund á klst. Samkvæmt
rekstursáætlun fyrir 1. stöðvar-
stærð er meðal söluverð áætlað
17 1js au; fyrir kvst. eftir því eyðir
50 ljósa lampi rafmagni fyrir tæpl.
9/io eyris á klst.
Eftir þessu er ljósmetiskostnaður
rafljósanna einungis 710 af ljós-
metiskostnaði gaslampa og stein-
það til athugunar meðal annars.
— Enn er þess að gæta að því að
eins getur komið til tals að ráð-
ast í að byggja slíka stöð að lán
sé fáanlegt til byggingar hennar og
hljóta því ályktanir þær, sem
bæjarstjórnin gerir í því efni að
vera þeim skilyrðum bundnar.
Að öllu þessu athuguðu og
einnig með hliðsjón af því að ó-
umflýjanlegt virðist að bærinn
ráðist i einhver atvinnubótafyrir-
tæki sem talsverðu nemi á kom-
andi vetri, en slíkum atvinnubótum
hvergi betur fyrir komið en að
þær séu lagðar í arðvænlegt fyrir-
tæki, hefur nefndin komist að
þeirri niðurstöðu að ráða hinni
háttvirtu bæjarstjórn til að sam-
þykkja að ákveðið sé að byggja
rafmagnsstöð fyrir bæinn með afli
úr Elliðaánum á grundvelli lýs-
ingar- og kostnaðaráætlana verk-
fræðinganna Jóns þorlákssonar og
Guðmundar Hlíðdals, þó þannig,
að stöðin verði sett við Grafarvog
ef engir óvæntir erfiðleikar koma i
ljós við fullnaðarrannsókn, og að
byrjað sé á verkinu svo fljótt sem
því verður við komið, allt að því
áskildu, að fé fáist til fyrirtækisins
með þeim kjörum sem bæjarstjórn-
in telur aðgengileg. Ber nefndin
því fram svo hljóðandi tillögu:
1. Bæjarstjórnin ákveður að byggja
rafmagnsstöð fyrir bæinn með
afli úr Elliðaánum. Svo framar-
lega sem engir óvæntir erfiðleik-
ar koma í ljós við fullnaðar-
rannsókn, verði stöðin sett við
Grafarvog.
2. Til framkvæmdar þessu verki
ákveður bæjarstjórnin að taka
2 miljón króna lán og felur
borgarstjóra K. Zimsen að út-
vega lán þetta og undirskrifa
skuldabréf fyrir því.
3. Bæjarstjórnin ákveður að reynt
verði sem fyrst að útvega fram-
annefnt lán og að byrjað verði
á verkinu sem allra fyrst eftir
að lánið er fengið.
Rykjavík 19, september 1918.
Ólafur Lárusson
settur.
Jón Rorláksson.
Jörundur Brynjólfsson.
Sveinn Björnsson.
Bankaseðlarnir.
olíulampa með núverandi verði á
gasi og steinolíu.
Til þess að gasljós og steinolíu-
ljós verði eins ódýr og hin áætluðu
rafljós þarf verð á gasi til ljósa að
lækka niður i h. u. b. 18 au. á
teningsmetri og verð á steinolíu
viður í 6 au. fyrir lítirinn. Hvor-
ugt hefur orðið svo ódýrt hér
nokkru sinni áður.
Þess skal getið að einn af lækn-
um bæjarins, sem aðallega fæst
við geislalækningar, hefur í erÍDdi
til bæjarfulltrúanna, 10. sept. bent
á hve nauðsynlegt það er vegna
geislalækninga að bærinn fái sem
fyrst rafmagnsstöð og ber að taka
Hvað eftir annað befur verið
bent á það, hvað bankaseðlarnir
sem ganga manna á milli eru sóðá-
legir. Þeir eru svo út-ataðir, að
þrifnu fólki hreint og beint velgir
við því, að þurfa að snerta á þeim
og stinga þeim á sig.
Bankarnir kenna væntanlega ó-
þrifni fólksins um þetta, en sann-
leikurinn er sá, að bankarnir ráða
því algerlega sjálfir, hvort seðlar
þeirra eru hreinir eða ekki. Fyrst
og fremst eiga þeir alls ekki að
láta úti óhreina seðla, og svo eru
ýms ráð til að kenna fólkinu að
fara þriflega með þá.
Bankarnir þurfa að koma í veg
fyrir þann ósið, að menn hnoði
seðlum ofan i peningabuddur eins
og siður er til, og það væri hægð-
arleikur með því, að kaupa nokk-
ur þúsund ódýr seðlaveski — þau
mættu gjarnan vera úr pappír —
og útbýta þeim sem seðla-umbúð-
um meðal skiftavina bankans ó-
keypis. Dýrari seðlaveski og var-
anlegri þarf hver banki einnig að |
bafa til sölu, og mundu menn fljótt
læra að nota þau.
Það má alls ekki liðast héðan
af, að þessir skarnseðlar séu á
gangi meðal fólksins, fyrst og fremst
af þessum ástæðum:
Þeir bera sóttnæmi milli manna.
Þeir spilla smekkvísi og þrifn-
aðarkend.
Þeir eru augljósari auglýsing og
sönnunargagn fyrir íslenzkum ó-
þrifnaði en nokkuð annað, sem
innlendum manni eða útlendum
getur borist í hendur.
H.
Hvað er í íréttum?
Bíó-æðið.
Troðningurinn í Gamla Bíó í
gærkvöldi var hreint afskaplegur.
Kona ein tróðst undir á stigapall-
inum í útganginum og varð ekki
við reist fyr en mesti straumurinn
var kominn fram hjá, og var hún
þá all-mikið meidd og þjökuð að
sjá. — 1 göngunum með fram bekkj-
unum var svo mikill troðningur
af standandi fólki, að ómögulegt
var að haldast við í yztu sætunum.
Menn tróðu sér inn á milli bekkj-
anna skygðu á það fólk er hafði
sæti þar og lögðust ofan á það.
Sífeldar hrindingar voru, það hálf
leið yfir kvenfólkið af loftleysi og
ósköpum, en allir voru svo vand-
lega skorðaðir, að engum virtist
undankomu auðið.
Vér viljum nú benda lögreglunni
á, að það er veruleg bætta á ferð-
um, ef leyft er að láta kapptroða
svona í samkunduhús miklu meira
en þeim er ætlað að rúma. Hvernig
fer t. d. ef kviknar í? — Og ef
fólk verður snögglega veikt af loft-
eitrun, þá er nær ókleift að koma
því út, fyr en ef til vill seint og
um siðir.
Gullfoss
kom í gær fyr en nokkurn varði.
Hafði farið frá New York fyrra
miðvikudag, eða þrem dögum fyr
en frézt hafði að hann hefði farið.
Farþegar voru Emil Nielsen fram-
kvæmdarstjóri og beildsalarnir Jó-
hann Magnússon, Arent Claessen
og Friðrik Magnússon.
Ásgrímur Jónssoo
málari er nú kominn til bæjar-
ins. Hefur dvalið austur í Múla-
koti í Fljótshlið nokkrar vikur
fyrirfarandi.
Franoes Hyde
kom frá Englandi í gærmorguu.
Skipi sökt.
Landsverzlunin fékk skeyti um
það núna fyrir belgina, að einu af
skipum þeim sem eru í kol- og
saltflutningum fyrir hana, hafi
verið sökt.
Landaverzlunin
á von á mörgum skipum hing-
að með kol og salt. Eru það flest
seglskip og allstór, 2—3000 lestir.
Athygli
viljum vér vekja á auglýsingum
frá skóverzlun Stefáns Gunnars-
sonar í Austurstræti 3. Er þessi
verzlun orðin ein hin stærsta
í sinni grein, og vitum vér ekki
til, að annarsstaðar fáist betri skó-
fatnaður.
Lagarfoss
mun fara áleiðis til Ameríku um
miðja vikuna.
Bitstjóri »Vestra«
Kristján Jónsson frá Garðstöðum
kom frá Isafirði hingað til bæjar-
ins í gærkvöldi á v.b. »Þórði
kakala*.
Smjörlíki
2 ágætar tegundir og
bakarafeiti
nýkomið í
Verzi. 6uðm. Olsen.
Fagurt andlit
fá allir þeir sem nota hina
ágætu skeggsápu frá
Verzl 6ulm. Olsen.
„Hugfró”
Laugaveg 34. Sími 739.
Selur í fjölbreyttu úrvali:
Tóbaksvöriur. bælgætS,
Gosdrykki, Ol,
Rey kj arpípur,
Tóbakspungfa,
o. m. fl.
Verð hvergi lægra.
Vörur sendar heim.