Frækorn - 01.01.1900, Blaðsíða 3

Frækorn - 01.01.1900, Blaðsíða 3
FRÆKORN. 3 (irú og vÍBÍndi. Margiv álíta, að vísindi og kristin trú geti ekki samrýmst; að vitnis- burður ritninganna stríði á móti niður- stöðum vísindanna. Það væri því á réttum stað hér að tilfæra fáein orð eftir nokki'a menn, sem bæði voru lærðir og sannkristnir: Nikolás Koperníkus orðaði sjálfur grafskrift sína. Hún er þannig: „Drott- inn, ég bið ekki um trú eins og þá, er þú gafst Páli; ekki um fyrirgefning eins og þá, er þú gafst Pétri; en ó drottinn, gefðu mér þá náð, er þú gafst ræningjanum á krossinum — það bið ég þig um.“ Karl von Linné, hinn mikii grasa- fræðingur, skrifaði: „Ég hefi séð spor- in af hinum óendanlega guði; með undrun hefi ég horft eftir honum, þegar han fór fi-am hjá mér í nátt- úrunni.11 Karl Ritter, landfræðingurinn, skrif- aði í dagbók sína sem aðalinntak skoðunar sinnar viðvíkjandi heiminum: „Himnarnir segja frá guðs dýrð, og festingin kunngerir verkinhanshanda. “ CSi’ú dn aflurfivarfg. Trúboði nokkur á eyjunni Ceylon segir svo frá: í bæ einum á Ceylon var haldm einföld, evangeiísk prédikun. Eftir ræðuna byrjaði samtal á milli trúboðans og innlendra manna. Hann spyr þá að: „Trúið þér nú því, sem yður hefir verið frá sagt?“ „Já!“ svara allir í einu hljóði. „Trúið þér, að biblían sé guðs orð?“ „Já!“ „Trúið þér, að guð hafi sent sinn son til heimsins til að frelsa syndar- ana?“ „Já!“ „Trúið þér, að drottinn Jesús sé viljugur og reiðubúinn að frelsa yðar sálir?“ „Ó, já!“ „Yiljið þér þá líka taka á moti bonum sem frelsara yðar og friðþægj- ara?“ „Já, það viljum vér.“ Eftir þessu leit alt út fyrir að vera í góðu lagi. En trúboðinn hélt spurningunum áfram og sagði: „Éar sem þór eruð kristnir, verðið þér að skilja við syndina; viljið þér það?“ Svarið var ekkert, því aliir þögðu. „fér verðið að kasta lyginni", sagði hann enn fremur. Nú kom í ljós smá-bros á hinum dökku andlitum. „Það getum vér ekki“, muldruðu margir af þeim. „Éér getið ekki þjónað hinum sanna guði“, sagði trúboðinn, „og jafnfiamt haldið áfram að ljúga, stela, og vera hneigðir fyrir alls konar óhreinleika, þjónað afguðum, og í einu orði verið þrælar syndarinnar. Eruð þér nú vilj- ugir og reiðubúnir að skilja við alt

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.