Frækorn - 01.01.1900, Síða 7

Frækorn - 01.01.1900, Síða 7
FRÆKORN. 7 í því bara á helgidögum, en þegar hann var byrjaður, hafði hann svo mikia ánægju af því, að það leið eng- inn dagur án þess að hann læsi. Stundum varð hann svo hrifinn af lestrinum, að hann gat ekki hætt, þó lampinn væri að slokna. Á hverju kvöldi las hann, og því meira, sem hann las, því betur skildust honum kröfur guðs og hvernig hann átti að fara að því að lifa fyrir guð. Þá var það eins og stein hefði létt frá hjarta hans. Fyr, þegar hann var háttaður, lá hann lengi þunglyndur og gat ekki annað en hugsað um drenginn. Nú lá hann stiltur og sagði aftur og aftur með sjálfum sór: „Guð, þér sé eilíft lof! Verði þinn vilji! “ Frá þeim tíma var Marteinn allur annar maður. Áður hafði hann eins og sumir aðrir haft þann sið að fara á veitingahúsin á sunnudögum og drekka te eða brennivín, eftir því sem á stóð. Sérstaklega gladd- ist hann, þegar hann hitti kunn- ingja sína, sem hann gat setið með og drukkið. Og þó hann drykki sig ekki útúr-fullan, þá var hann þó oft það mikið kendur, að hann gat talað yfir sig. Og það gat einnig komið fyrir, að hann næmi staðar á göt- unni og talaði til alveg ókunnugra manna. Nú var hann hættur þessu og það var komin ró og gleði yflr hann. [Framh.] ^onfucius, jBuddfia og ^risfuij. Kínverji, er snúist hafði til kristni, lýsir Konfucius-trú, Buddhatrú og krist- indómi á þennan hátt: Maður nokkur var fallinn í djúpa gröf, og iá kveinandi á hinum óhreina botni hennar án þess að geta hreyft sig. Konfucíusar-prestur gekk þar fram hjá, leit manninn og sagði: „ Anmi maður, eg kenni í brjósti um þig. Því varstu svo heimskur að steypa þér niður þarna? Lof mér að gefa þér gott ráð. Ef þú nokkurn tíma kemst upp, þá farðu aldrei þang- að aftur". -— „Ég get ekki komistupp," kveinaði maðurinn. — fetta er Konfu- cíus-trúin. Því næst kom Buddha-prestur þar fram hjá og sagði: „Aumi maður, það hryggir mig að sjá þig þarna. Gætir þú sjálfur komist svo sem tvo þriðjunga af veginum upp eða að eins hálfa leið, þá held ég, að ég gætí náð þér og hjálpað þér.“ En mað- urinn í gröflnni var alveg hjálpar- laus og gat ekki hreyft sig. — Þetta er Buddha-trínn. Þar á eftir kom frelsarinn. Hann heyrði hróp mannsins, gekk fram til hans, rótti hönd sina niður og lyfti manninum upp, um leið og hann sagði: „Farðu, og syndgaðu ekki framar." — Éetta er kristindómurinn.

x

Frækorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.