Frækorn - 15.03.1900, Side 3

Frækorn - 15.03.1900, Side 3
FRÆKORN. 43 hina rnestu lotningu fyrir hinni æðstu veru. “ Presturinn ræddi þá um kærleika guðs, og það með slíkri mæisku, að greifinn tók hlýlega í hönd hans, þegar hann fór, og lét hann lofa sér því, að koma aftur innan skamms. Og honum var tekið mjög hjartanlega næst, þegar hann kom. „Hvaða um- ræðuefni eigum við nú að velja okk- ur í dag?“ spurði greifinn. Prestur- inn talaði þá um guðlega speki og almætti. Áheyrandi hans lót í Ijósi, að sannleikur þessi virtist sér fagur og háleitur mjög, en að öðru leyti hafði þessi ræða ekki sérstök áhrif á hann. Þegar presturinn í þriðja skiftið heimsókti hann, talaði hann um heilagleika guðs og leiddi rök að því, að hinn alheilagi guð gæti á engan hátt komist í samfélag við neinn þánn, sem ekki væri heilagur. Fjórða umræða hljóðaði um rétt- vísi guðs. Presturinn dvaldi um stund við þetta umræðuefni og lýsti hinni ósveigjanlegu réttvísi hins lifanda guðs. „Hættið, óg grátbæni yður!“ hróp- aði greifinn, „slíkar hugsanir yfirbuga mann; ef hinn aimáttugi er í sann- leika eins róttlátur, og þér lýsið hon- um, þá er ég glataður." Presturinn svaraði engu, en kvaddi og fór. Hann bað þess heitt og inni- lega, að hin andlegu áhrif, er vinur hans að lokum virtist hafa orðið fyrir, mættu festa rætur í sálu hans. Eftir nokkra daga fókk presturinn brýna orðsending frá greifanum, sem bað hann samstundis heimsækja sig. (Framh.) HtHugoverí. Biblían kennir hvergi með einu einasta orði, að það eigi að skíra ómálga hörn, heldur þvert á móti, að „si, sem trúir og verður skírður, mun hólpinn verða." Mark. 16, 16; Post. g. 2, 37. 38. Biblían kennir hvergi með einu einasta orði, að hvíldardagur drottins — hinn sjö- undi dagur vikunnar, gkipaður í tíu-boðorða- lögmálinu — sé afnuminn eða breyttur í surinudag, heldur þvert á móti, að „auð- veldaia er það, að himinn og jörð for- gangi, en að hið minsta atriði af lögmál- inu gangi úr gildi.“ Lúk. 16, 17; Matt. 5, 18. Biblían kennir hvergi með einu einasta orði flest af því, sem nú er við haft og álítið skuldbindandi við „guðsþjónustur“ heims-kirkjunnar, svo sem t. a. m. messu- skrúða, tón, skipaða hiblíukafla, ferm- ing, prestlegar athafnir við gifting, greftrun o. m. fl. Þegar svo Kristur segir í ritningunni, að „þeirra dýrkan er til einskis, með því þeir kenna þá lærdóma, sem eru manna boðorð“ (Matt. 15, 9) — er það þá ekki von, að guðfræðingar, sem halda dauðahaldi í þessar mannaskipanir, reyni að rýra gildi og álit heilagrar ritnngar? Líklega gera þeir það í einlægni — en villan verður ekki að sannleika, þó hún sé einlæg. „Hver, sem eyru hefir að heyra með, hann heyri!“

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.