Frækorn - 15.03.1901, Blaðsíða 4
44
FRÆKOEN.
í
Frjáls úr flærðarglaumi.
Frjáls úr flærðarglaumi
flýgur bænin mín
hátt á helgum vængjum,
hei'ia guð, til þín.
Bænir blítt þú heyrir,
bliði faðir kær.
Barn þitt vil eg vera.
Ver mér, faðir, nær. d. ö.
Hómverskar söaur.
Færðar í letnr af Viktor Rydberg,
% Rómaborg 1874.
[Eftirfaraudi sögur eru þættir af hinu
meistaralega söguriti „Romerska dagar“
eftir hinn sænska ritliöfund R}Tdberg. Sög-
urnar eru sagðar eins og þær hafa verið
fram bornar á liðnum öldum mann frá
manni. Auðvitað getur verið, að sumt
kunni að hafa breytzt í þeim og sumu bætt
inn í at' ýmsum mönnum, og um það skal
hér ekki talað. En svo margt göfugt og
fagurt er í þeim, að vér erum sannfærðir
um, að lesendur „Frækorna“ munu lesa
þær með mestu ánægju. I þýðingunni
höfum vér að nokkru stytt sögurnar. Utg.]