Frækorn - 01.04.1901, Blaðsíða 7
FEÆKORN.
55
Hitt og þetta.
Settur í'rá jjrestskap í dönska
kirkjunni var séra Anton Jensen á
Harboeyri liin 28. jan. síðastl. Vór
höfuin áður stuttlega skýrt frá því
í þessu blaði, hvernig^honum var
hótað með að verða settur frá, ef hann
.vildi ekki taka áminningu biskupa-
ráðsins til greina, um að ráðast eigi
á útskúfunarkenning kirkjunnar. En
það hefur hann gjört eftir sem áður,
bg þykist vera, sannfærður um órétt-
mæti þessarar kenningar. Hann hefur
verið prestur á Harboeyri 2 ár. Óvíst
mun vera hvort hann fái eftirlaun,
en hitt er víst, að vinir hans gjöra
það, sem þeir geta, til þess að fá hann
sem fríkirkjuprest á staðnum. — Rétt
áður, en hann var settur frá, kom út
lítil bók eftir hann, sem nefnist:
„Kristendom for mig“. Talar hanní
henni allhart móti ýmsum af kenning-
um kirkjunnar. Framsetning og með-
ferð efnisins lýsir miklum glöggleika
og sjálfsagt getur sá maður enn orðið
þjóðkirkju Dana til talsverðs hnekkis.
Séra Björn B. Jónsson ritar í
grein um „Biblíufræðina nýju“ í „Sam-
einingunni'1 fyrir jan. 1901 meðal
annars nokkur orð um stefnu V. ij. í
þversagna-málinu, og sér hver mað-
ar, að einnig hann lítúr á málið eins
og gjört hefur verið í „Frækornum“.
Hann segir meðal annars:
„Prestaskólakennari séra Jón Helga-
son hefur síðustu missirin í blaði sínu
„Verði ljós!“ og á annan hátt gjört
sór mikið far um að út breiða meðal
landa sinna þekking á því, sem kall-
að hefur verið „Hinar nýju vísinda-
legu biblíu-rannsóknir.“ Hefur hann
viljað telja mönnum trú um, að úti
í menntaða heiminum hvervetna sé
„allir hinir trúuðustu og ágætustu
vísindamenn" fallnir frá þeirri gömlu
kenning, að öll ritningin sé innblásin
af guði og sé óskeikult guðs orð.
Hann hefur leitazt við að sýna fram
á, að mikið sé um „þversagnir“ og
„mótsagnir“ í bibliunni og að þessi
trúarbók kristinna manna sé rajög
ófullkomin og að ýmsu leyti óáreiðan-
leg.........
Hér fyrir vestan hefur framkoma
séia Jóns Helgasonar í þessu máli
orðið til að hneyksla fjölda fólks, og
hefur möi'gum verið það stórt sorg-
arefni, að einmitt sá maðurinn, sem
vinir kristindómsins væntu svo mik-
ils góðs af, skyldi snúast þannig á
móti einum aðal-lærdómi „orþodoxu"
kirkjunnar. Og lakast af öllu er, að
þessi háttvirti kennimaður hefur einatt
verið mjög óvarkár með staðhæfingar
sínar og sagt þau tíðindi af „biblíu-
rannsóknum“ í öðrum löndum, sem
ekki eru sönn, og er það ósamboðið
jafn-menntuðum og góðum manni
sem hann er.“
„Ljósið“, sem kom út í dag, kall-