Frækorn - 27.03.1902, Page 6

Frækorn - 27.03.1902, Page 6
38 mín. Eg heyri ekki til undir neins manns þaki og í einskis manns hjarta á eg nokk- urt rúm. Það sem eg eignaðist þar úti í fjar- tegðinni, var tekið frá mér. En það sem eg átti hér heirra, hefur fyrirfarist. Eg var að heiman og gætti þess ekki. Vindur og væta hafa eytt því, nöðrur og nagandi tsnnur hafa upp-etið það. Enginn minnist mín, og jafnvel bróðir minn er mér frásnúinn. Sjáltur svifti eg mig hæli mínu og heimili, og heimilislaus verð eg í fram- tfðinni. Eg geld þess nú, að eg fór mínu íram, án þess að hlýða á fortölur föður míns eða grátstunur móður minnar; eg fór að ráði mínu eins og synir þínir, Gunnar. Æ, — graf þú mig, Gunnar; grafðu mig langt niður í jörðina*. IX. Það var einnmorgun, eftir óværa nótt, að mér kom til hugar : hvernig væri nú að fara í kirkjuna? Sé föðurinn nokkursstaðar að finna, þá er hans þó að líkindum helzt þar að leita, á meðal hinna annara helgu bernsku- menja. F.g fór í kirkjuna. Og eg fann þar hina fornhelgu menjagripi og á meðal þeirra: — guð minnar bernsku. En, — nú var hann að eins sem skuggi horfinnar hátignar. Hann var andvana. Hér var hann ekki í orði og athöfn. Oiðin voru hljómfögur sem fyr, ■— en innihaldslaus og tóm. Eg hugsaði með mér: hér sitja menn að erfi föðursins. Eg fór heim aftur með síðustu von mína slökkta. En ennþá vaknaði ný von í brjósti mínu. Mér kom til hugar að leita til Meistarans. Eg tók blblíuna og fann Meistarann og spurði hann: hvað á eg að gjöra til þess að geta tíleinkað mér b'fið?" Hann svaraði: Breyt þú eftir boð- orðunum; og síðan sagði hann: trú þú. Eg spurði á hvern eg ætti að trúa? Hann svaraði: Að eins eir.n er til, sem cr góður, og það er guð. Og enn frem- ur sagði hann: A mig áttu að trúa. Eg spurði : Ert þú þá guð? Hann svaraði: Drottir.n vor guð er einn. Og enn íremur: Eg og faðirinn erum eitt. Og enn sagði hann : Faðir- inn er mér meiri, eg er að eins sá, er hann útscndi. Mörg af orðum hans voru dýrðlegjog stundum virtist mér sem eg sæi þar föð- urinn. En svo varð faðirinn að dómara og skelfdur las eg um konunginn, sem hélt brúðkaup sonar síns. Gestir voru boðnir, en þeir komu ekki. Sendi þá konungurinn þjóna sína út um götur og stræti og bauð þeim að færa inn hvern þann, er þeir hittu fyrir, þvi að fullur áttl veizlusalurinn að vera. Þar varð líka húsfylhr. En á meðal gestanna sá kon- ungurinn einn, sem ekki var í hátíða- búningi. Að þessum manni sneri hann sér og mælti: Heyr þú maður minn, því ert þú hingað kominn, án þéss að vera í hátíðabúningi ? En maðurinn svar- aði engu. Og honum var kastað á dyr. Eg lagði bókina frá mér. Hér er um tvo guði að ræða, hugssði eg, og um tvo vegi til lífsins, — og tvo Meistara: æðsta prestinn frá Nazaret og einhvern óþekktan dulspeking frá austri eða vestri. Nei, um þetta er bezt að múnkarnir glími; eg verð að halda mér að því, sem eg hef einhvern botn í. Og þar með var mín allra síðasta von útkulnuð. Meira. Ókyrð í gröfum hirrna framliðnu — o— »Friður hvíli yfir moldum hans«. Svo er jafnan að orði kveðið, við leiði hinna framliðnu. En út af þeirri reglu er nú brugðið í stórum stíl á Egyptalandi. Smurðu líkin, sem þar hafa varðveitst í grafhvelfingunum í margar þúsundir ára. eru nú ekki einasta send á gripásöfn út um allan heim, heldur nota Egyptar þau til eldsneytis og til áburðar á jarðir sín- ar, og heilir skipsfarmsr af likklæðum þeim, er lík þessi hafa öldum saman ver- ið hjúpuð í, eru iú sendir til Evrópu og Ameríku til pappírsgjörðar.

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.