Frækorn - 27.03.1902, Page 7
39
Heilbrig'ðisboðorð.
—o—
1. Sjáðu til að vera ætíð gætinn.
2. Borðaðu reglulega, aldrei meir t:n
3 máltíðir á dag,
3. Háttaðu á reglubundnum tíma.
4. Vertu reglusamur með vinnu þína.
5. Hættu að vinna áður en þú crt
orðinn of þreyttur.
6. Borðaðu að cins, þegar þú ert
svangur, og drekktu ekki, nema þegar
þig þyrstir.
7. Láttu matarlystina koma af sjálfri
sér, og vektu hana ckki með óeðlilegum
meðölum.
8. Farðu ekki svettur út í kulda.
6. Þvoðu þér sem oltast úr köldu vatni;
sá scm gcrir það að vana að þvo sér
daglega um allan líkamann, fær sjaldan
eða aldrei kvef.
10. Drckktu aldrei áfengi, og scm
miiínst af kaffi og te. Sbl.
Við aðsvifum er gott að leggjast
niður undir eins; komi það fyrir þar, sem
hætt getur verið við, að maður detti,
t. d. í fjallhamri, á hæð, eða í tröppum, á
maður að halla sér aftur á bak og
leggjast niður, cða setjast og loka aug-
unum þangað til aðsvifið er liðið hjá. Ef
maður fær það við að ganga upp stiga
eða hæð, er gott að líta upp.
Auðmanns heimili.
Dyrunum rekinn er fátækur frá,
fá mun ei hógvær þar dýrðina sjá,
auðugur skipa þar öndvegi má, —
innbrýzt hann Dauði þeim stórmennnm hjá.
J. D.
Líisrtak (hjá fátæklingi).
Auðkýfingur hrokahár,
hrúgar í mauraskrínu,
fátæklingur fellir tár,
firrtur brauði sínu. j jy
Kapitula- og versaskiftinir nýjatestament-
isins er ekki gömul. Kanítulaskiftingin er
fyrst gerð af Stephen Langton, erkibiskupi af
Canterbury, sem dó 1228. Versaskiftingin
er eftir prentarann Stefanus, frá árinu 1551.
Fréttabálkur
Alfonso XIII., spánveriakonungur, sem er
18 ára í maí næstkomindi, á nú að taka við
st|órn ríltisins í vor. En áður en hann tekur
við því vandasama starfi, á hann að ganga
undir fullnaðar-menntunarpróf, sem á að vera
innifalið í því, að hann heimsæki-alla stjórn-
endur i Norðurálfunni. Það virðist nú ekki
vera þungt próf eða vandasamt verk að leysa
af hendi, en- þó má mikið vera, ef eitthvað
verður ekki að fundið.
Páfinn hefur nýlega skipað nelnd manna
til að athuga ritninguna og ákveða, að hve
miklu leyti kaþólskum mönnum sé leyfilegt
að mynda sér sjálfstæðar skoðanir um inni-
hald hennar. En þar sem uefnd þessi er
skipuð frjálslyndum mðnnum, þá er þess væust,
að þeir rýmki eitthvað um hugsunarfrelsi ein-
staklinga innan kirkjunnar.
Armenía. Tyrkir fara óttalega með Ar-
ineníumenn. Konur eru smínað.tr. m inndráp
og alls konar hryðjuverk eru þar frainin
daglega. Oft éru börnin tekin úr vöggunni
og spjóti stungið í gegn um þau og þeiin
haldið á lofti morðingjuuuin til skeinmtunar.
Það er og verður einhver hinn svartasti
blettur vorra tíma, að hin svokölluðu » kristriu«
ríki skuli ekki koma sér saman um að
stöðva þetta atterli, sem þau þó hafa nægilegt
vald til, ef þau bara vildu.
Kiðtpundlð á 010 kr. Stúlka ein í Chi-
cago höfðaði nýlega mál á móti unnusta sínutn
fyrir tryggðrof. Hún kvaðst hafa liðið miklar
áhyggjur hans. vegna og léttst við það um 30
pund, kvaðst hún meta hvert pund á 610 kr.
og gerði því 18500 kr. skaðabótakröfu á hendur
honum. Dómararnir virtu pundið í stúlkunni
á 185 kr. og tildæmdu- henni því að eins
5550 kr. skaðabætur.
Innra-trúboðið í Reykjavik, Ástva'dur
Sigurbjörn Gíslason, sem var í Danmörku í
fyrra og fékk þar styrk hjá félagi innritrúboðs-
manna, kom í haust er leið til Reykjavíkur
og hefur þar byrjað að starfa með ræðuhöklum
fyrir alþýðu og fundum með unglingum. Hann
talar ými,«t í dómkirkju eða í Goodtemplara-
húsinu í Rvík. Séra Friðrik Friðriksson prest-
ur að holdsveikraspítalanum og ungfrú Olavía
Jóhannsdóttir aðstoða Astvald við fundar-
höldin. Mun það vera i fyrsta skifti að kona
á íslandi heldur trúmálaræður, en slíkt er
engan veginn sjaldgæft í útlöndum.
Áskorunin til albingis um aðflutnings- eða
vínsölubann gengur mjög greiðlega, að því er