Frækorn - 27.03.1902, Blaðsíða 8

Frækorn - 27.03.1902, Blaðsíða 8
40 spurst hefir .Svo virðist sem bindindismenn hafi almenningsáiit með sér. Af blöðum lands- ins, er enn að eins eitt, sem hefur tjáð sig þessu máli mótfallið, sem sé Bjarki. íslenzk pðlitik. Vonandi er. að stjórnmála- stríð landsins fari að linna úr þessu. Konungs- boðskapurinn, sem svo að segja leggur úrslit málsins í hendur alþingis, vekur gleði um land allt. OII blöð landdns eru samdóma um að taka á móti því, sem hann býður: óháða stjórn búsetta í Reykjavík. Margt gott mun friður- inn væntanlegi án efa hafa í för með sér. lVIörg velferðarmál þjóðarinnar hafa stjórn- málastríðsins vegna orðið að sitja áhakanum; svo sem atvinnumál, kirkjumál, bindindismál, o. fl. Nú kemur vonandi þeirra tíð. Politiski friðurinn mun þó ef til vill verða sumum blöðum að tneini, sem ekkert annað líf eða anda hafa heldur en pólitískt þras. Og þegar búið er að þræta u n það um tíma, hvort hin góðu leikslok munu vera Valtýingum eða and- Valtýingum að þakka, er líkast til, að sum þeirra »gefi upp andann. Safn af Ljóðmælum séra Matth. Jochums- sonar ætlar D. Östlund yirentcmiðjueigandi að gefa út Kig'a kvæðin að koma í 4 bindum og á hið fyrsta þeirra aá koma út í haust. Áfenids-verzlun. Krfingja Uöeplner'sverzl- unar á Akureyri synjað um áfengissölu-leyfi af fmitmanni ePir till. bæjarstjórnar. Blöndu- óss-kaupm. ha ttu áfengissölu urn síðastl. nýár. Hótelinu á Akureyri var synjað um endurnýjun á áfengisveitingaleyfi í vetur, - A ísafirði hafa borgararnir synjað Sölva Thorsteinsmi um endurnvjun áfengisveitinga-leyfis (69 : 56 atkv.>. Sölvi hetír lögsótt Helga Sveinsson, i'erzl.m. þar, tíl 8000 kr. skaðabóta fyrir at- vinnumissi, liakaðan sér ineð ósæmdarorðuin við undirbúning atkvæðagreiðslunnar í málinu. Spitala ætla Kajiólíkar nú að reisa í Reykja- vík, stórhýsi mikið, 60 álna langt og 15 áína breitt og tvíloftað, og á að rúma 40 sjúklinga, segir ísaf. Trúboð’ð ka])ólska hefur anga sína út um allan heim og er ekki nema eðli- legt, að það sc koinið til Reykjavíkur, og það hefur auðvitað sama lag þar, sem annarstaðar nú, að byrja með skólum og spítölum, sem eru í sjálfu sér góðir og enginn finnur trúar- keim að, en gerir þeim sigurinn vísariað lokum., enda hefur |>'Jð farið svo, að þeir hafa nálega um allan heiin orðið yfirsterkari Lúterstrúar- mönnum, þar sem þeir tveir hafa keppt. Fiallkonan færir í seinustu blöðuin lesend- um sínum þær fréttir, að hún nú sé »með öllu laus við þær persónulegu illdeiiur og ókvæðis skammir, sem önnur blöð gerast stór af,« Gleðilegt. Misprentast hefur eitt orð í nið- urlaginu af greininni »Svar til Þorst. ritstj. Gislasonar« í síðasta tbl.: » . . . að vinra »á allan lögleyfðan hátt« að útrýmingu þeirra úr landinu«; en ætti að standa: ». . . að vinna »á a I 1 a n lögleyfðan hátt« að útrvmingu áfengra drykkja úr Iandinu.« G uðsþjónustur á páskunum í Bindindishúsinu: Föstudaginn langa og páskadagana kl. 5 síðdegis. D. Östlund. Kostaboð. Útg., sem ekkert vill láta sparað til þess að fjölga kaupendum blaðsins, gerir hér með eftirfylgjandi tilboð: 1. Hver nýr kaupandi að Fræk. ,5-árg., 1902, sem borgar fyrir þetta ár fyrirfram, fær ókeypis til sin sendan allan 2. ár«. og enn fremur myndir af 103 helztu mönnum 19. aldar. Mvndunuin fylgja skýringar. 2. liver nýr kaupandi, sem lofar að borga næsta árg. fyrir 1. okt. 1902, fær mynda- blaðið nú bearar og auk þess jólablaðið skrautprentaða 1901. Fessi tilboð giída að eins meðan upplögin endast. Verð blaðsins er að eins 1 kr. 50 árg. Borgun má senda í óbrúkuðum frímerkjum. Útsölumenn óskast. I). Östlund. 8 krautbindi, Ijómandi falleg, til að binda í 2. árg. »Frækorna«, fást fyrir 50 au. bjá D. Östlund. Hjeraðsmenn Mælið með »Frækornum< til vina og kunningja. mega borga »Frækorn« við verzlun Sig [ohansen eða aðrar yerslanir á Seyðisfirði. D. 0stlund F._ __ 1, _ heimilisblað með I æ K O l n 5 myndum. ketnur út um miðjan og lok hvers mánaðar. Kostar hér á landi 1 kr. 50 au., í Vesturheimi 60 cents. Borgist fyrir 1. okt. Úrsögn ógild, nema komin sé til útg. fyrir 1. okt. og úrsegjandi sé skuldlaus fyrir bíaðið. Prentsmiðja Seyðisfjarðar.

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.