Frækorn - 03.10.1902, Qupperneq 1

Frækorn - 03.10.1902, Qupperneq 1
f Heimilisblað með myndum • ©'OC* <x>© • RITSTJÓRI: DAVID ÖSTLUND. 3. ársfangur. Seyðisfirði, LÍFSOÁTAN. Eftir Alfred Tennyson. Úr „In Memoriam". Að einhverntíma bíði bót á böli lífs, vér treystum þó; að borgist tár og banaspjót, að borgist því, sem leið og dó; Að til sé ekkert tílgangslaust, né týnist fyrir slys og morð, né gleymist eins og grýtt fyrir’ borð þá Guð hefur sett hvert skip í naust; Að óhelg falli' ei minsta mus, né maðkur neinn, sem kerskin þjóð án sakar hefur hent á glóð, að hvað eitt eigi föðurhús. Vér rekjum eigi ragnaspor, en rökin þræðum oss i vil: að loksins sjáist sólar til, að sérhver þorri geymi vor.— En hvað er ég með flug og fát? Sem fundið barn við mararós, er nakið heimtar hús og ljós — og hefir fyrir tungu grát. Að æðra líf sé öllu geymt, og engu haldi botnlaus gröf: er það ei andans æðsta gjöf að oss hefir slíka furðu dreymt? :. okt. 1902. 16. tölublað. En, neitar því ei neyð og kíf? I náttúrunni tegund hver er treind og geymd í heimi hér, en hjóm og strá er einstakt líf, En þá í rökin rýna fer og reiknar bezt mín sálin þreytt: af fimtíu kornum finn ég eitt, sem frjófgan nær og ávöxt ber, f>á verða köld mín vonar-skjól, en vex og magnast efans farg, svo himininn snýst í heljarbjarg sem hylur mína trúar-sól, Eg fálma, hrópa, flý til hans, sem finst mér þó sé Drottinn alls, og styð mig, þótt sé stutt til falls, við stærstu von í brjósti manns. Að „tegund hver sé treind"! Nei, nei! f>á talar annað steindýrs urð; á tegundum varð þrot og þurð víst þúsund sinnum. Alt er hey. Náttúran kennir: „Sjáðu sann: Ég sel ei dýrra líf en hel; ég andardrátt þinn anda tel og ekkert meir ég veit." En hann, þinn yngsti son, með andans traust, sem ótal fánýt reisti hof

x

Frækorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.