Frækorn - 03.10.1902, Page 4

Frækorn - 03.10.1902, Page 4
FRÆKORN 124 lifandi sambandijvið guð. Og í þessu sambandi megum vér vera. Hann hefur kennt oss að segjaí: »Faðir vor, þú sem ert á himnum«. Og vér vitum, að vér erum »guðs ættar«; »í honum lifum, hrærumst og erum vér«. »Hann megnar öilu framar að gjöra fram yfir það, sem vér biðjum eða skynjum, eftirþeim krafti, sem í oss verkar.« Ef, 3,20. »Hans guðdómlegi máttur hefur af dýrðlegri gæzku sinni veitt oss með þekkingu þess, sem oss hefur kallað, allt það, sem með þarf til (sannar- legs) 1/fs og guð- ræknis«. 2. Pet. 1. 3- Sál, fargnaðu, því guð er faðir þinn. Erfðir þín- ar frá »breyskum, syndugum mönn- um eru ekkert að jafnavið þetta. Guð er faðir þinn. Líffhans er almættiskraft- ur. Og »hann er nálægur hverj- um einum af oss.« Hann er vor nánasti ættingi, vor faðir, sem cr oss nærri en þeir, er vér köll- um foreldra hér á jörðu, því orð hans vitnar, að þó móðirin gæti gleymt brjóstbarni sínu þá getur drottinn þó ekki gleymt oss. Es. 49, 15. »1 honum lifum vér«. Er þetta ekki dýrðlegt ? Látum oss gleðjast yfir því, að guð hefur skapað oss eins og vér erum. Ekkert getur verið móti oss, þegar hann er með oss. E. J. Waggoner. — Kristindómurinn er æfilangt svar mannsins upp á kröfu guðs um að lifa heilögu líferni. Árni Garborg. Árni Evensen Garborg er fæddur 1851 á Jaðri á suðvesturströnd Noregs. Menntun fjekk hann nokkra í foreldrahúsum, Hér um bil 10 ára gamall fór hann að stunda barnakennslu, og var hann við það starf framan af til 1870; þá fór hann ákenn- araskóla til þess að búa sig betur undir kennarastöðuna. Að loknu námi hélt hann svo áfram skólakennslu í ýmsum smábæjum þangað til 1873, þá flutti hann til Kristjaníu . Frá þeim tíma gaf hann sig við rit- störfum og blaða- mennsku. Hann ritaði fyrst í ýms blöð um margs- konar efni og var sjálfur urii nokkur ár rit- stjóri blaðsins Fedraheimen og seinna Den 17. Maí. Arni Garborg er þó einkann- lega kunnur sem rithöfundur, og ba kur hans hafa vakið, og vekja, víða mjög mikla eftirtekt Af sög um hans skulum vér nefna: Ein fritenkjar,Bonde- stúdentar, Mann- folk, Hos Mamma og Hjaa Mor, Forteljingar og Sögur, og loks Den burtkomne Faderen, sem nú kemur í þýðingu í »Fræk». Hann hefur einnig ritað ýmislegt 1' bundnu máli, svo sem Haugtussa og í helheim, Og þykir hin mesta snild að þeim bókum. Garborg hefur áður fyrr þótt stækur vantrúarmaður. En seinni bækur hans, og sérstaklega »Týndi faðirinn« vitna ljóslega um það, að einnig hann hefur leitað föðursins og fundið hann, þótt ef til vill á annan hátt, en margur annar. ÁRNI OARBORO.

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.