Frækorn - 24.12.1902, Qupperneq 4
JOLABLAÐ FRÆKORNA.
gleði! En það skar mig í hjartað í hvert
sinn, er einhver þeirra óskaði mér gleði-
legra jóla. Það hljómaði eins og kuldaspott
í eyrum mínum. — Eg heimilislaus ognú
vinalaus útlendingur! Aleinn í hálfan mán-
uð, sjá og heyra gleði, en sakna hennar
sjálfur.
Svo tók eg skíðin mín og flúði til skógar.
Ikorn og smáfuglar hoppuðu og stukku
milli trjágreinanna. Frostperlur glóðu eins
og gull og gimsteinar. Tungsljósið titraði
yfir snjónum, trjáskuggarnir teygðu trölls-
loðna arma eftir mér á allar hliðar. Stjörn-
urnar blikuðu. Bláskær brosir Vega hátt
í suðri, og Ca|3ella skín eins og logaskært
jólakerti í heiðsal himinsins. I suðaustri
leiftrar hið rauða og flóttalega auga Uxans
sem og er von, því hinn voldugi veiðimaður
Oríóneltir hann miskunarlaust. Harðia lang-
stígur er hann og gyrtur gullbelti með
sverð við hlið og hunda sína tvo í hælun-
um, Prókýron og Síríus, hinn litla og hinn
stóra. En Karlsvagninn ekur hægt fram
yfir himininn á hinum fjórum gullhjóluin
sínum eftir sinni eilífu hringbraut kringum
Pólstjörnuna. Og hugur minn fær ókeyp-
isfar. Norður, norður! — Norður við heim-
skaut í svalköldum sævi ,nemur hann staðar.
- En nú var eg á heimleið. í heil-
an tíma hafði eg heyrt kirkjuklukknahljóm-
inn bylgja dauft í velrarköldu loftinu, og
nú ögnuðu þær allt í einu; seinustu
tónarnir dóu skjálfandi langt út í frosthörðu,
fannbörðu skógarhlíðunum. O, hæ og hó,
Hve það var kalt! Það tísti og ýlfraði í
snjónum undir skíðunum. Og arnarklær
og rándýrstennur vetrarins læstu sig inn í
hold og blóð. Nei, eg varð að fara heim
í hlýja, notalega herbergið mitt, breiða
þykka stólteppið á gólfíð fyrir framan ofn-
inn, leggjast niður á það, eins og eg var
vanur í rökkrinu, Ijúka upp ofnhurðinni og
horfa dreymandi inní eldslogana, sem leika
sér að viðarskíðunum. — — —
Og svo lá eg hálfgert á hliðinni fytir fram-
an ofninn minn og starði hugstolinn inn
í eldslogaleikinn, sem lifði ogbreyttist í ótal
undramyndir. — Eg heyrði ekkert og sá
ekkert nema þetta eina stóra eldauga, sem
dáleiddi mig og dróg mig til duldra heima.
Helgi Valtysson.
Yfir krossi Krists eg fagna.
(„In the cross of Christ 1 glory.")
Eftir Sir John Bowring.
(Frægur enskur sálmur).
Yfir krossi Krists eg fagna,
kærleiks undri Quðs’ og manns;
hundruð ljósin helgra sagna
hverfa fyrir geislum hans.
Eftir því, sem fleiri’ og fleiri
fölna lífsins stundarhnoss,
eftir því er meiri og meiri
meinaléttir Drottins kross.
Þó að völtu vinaskjólin
veiti fró um stundarbil,
krossinn er hin sanna sólin,
sem þeim gefur ljós og yl.
Fögnuð vorn og grát í geði
göfgar jafnt hinn helgi kross;
þýðing lífs í þraut og gleði
þaðan fegurst skín við oss.
Yfir krossi Krists eg fagna,
kærleiks undri Quðs og manns;
hundruð ljósin helgra sagna
hverfa fjrir geislum hans.
Matth. Jochumsson.
Jóladaginn
kl. 12 á hádegi verður haldin norsk
guðsþjónusta íBindindishúsinu á Fjarð-
aröldu. Sungið verður í Landstads
Sálmabók.
Jóladaginn kl. 5. síðd. fslenzk guðsþjónusta
í sama húsi.
CP/CI/nRN heimilisblað með myndum,
■ ■■ **ll, 24 blöð á ári auk jólablaðs, -
kostar hér á landi 1 kr. 50 au um árið; til Vestur-
heims 50 cents. Borgist fyrir 1. okt. Ursögn ógild,
nema komin sé til utg. fyrir 1. okt. og.blaðið sé að
fullu borgað fyrir það ár. D. Ostlnnd. útg.
Prentsmiðja Seyðisfjarðar.