Frækorn - 15.01.1903, Qupperneq 4
4
FRÆ KO RN.
Merkir bindindismenn.
i.
Næst kristindóminum er bindindismálið vafa-
laust eitthvert hið þýðingarmesta mál, sem er
uppi í heiminum. Og það er mjög gleðilegt,
að mál þetta einnig hefur náð fram til viður-
kenningar hér á landi og er orðið að mikils-
varðandi þjóðarmáli. Flest öll blöð landsins
leggja því liðsyrði, og sum þeirra skifta sér
af því með miklum áhuga. Löggjafarþing
þjóðarinnar hefur oft sýnt sig bindindismálinu
hlynnt, bæði með því að setja ýms lagaákvæði,
sem miða að því að
takmarka áfengissöl-
una , og eins með
því að veita Good-
templarreglunni styrk
af landsfé.
Ohætt mun vera að
fullyrða, að hin ís-
lenzka þjóð sé á góðri
leið til þess að losa
sig við alla áfengis-
nautn.
Hvenær hún muni
ná því takmarki, er
auðvitað ekki hægt að
segja, en svo mikið er
víst, að útlitið fyrir
algjörðurn sigri bindindismálsins er töluvert
betra hér á landi en í flestum öðrum löndum
í heiminum.
„Frækorn" ætla sér framvegis að flytja við
og við myndir af merkum bindindismönnum
ísl. og stuttlega benda á verk þeirra í þarfir
þessa máls.
Á þessu byrjum vér nú með því að flytja
mynd af
séra Birni Þorlákssyni á Dversrasteini.
Hér Austanlands mun bindindismálið varla
eiga betri talsmann en séra Björn er. Hann
er gamall og góður bindindismaður og hefur
um mörg ár verið einn helzti forvígismaður
bindindishreifingarinnar hér eystra.
Seinustu 10 árin hefur séra Björn verið með-
limur íslenzku Goodtemplarreglunnar. Hann
hefur líka setið á þingi hennar sem fulltrúi
af Seyðisfirði.
Séra Björn hefur tekið æðsta stig Reglunnar
(hástúkustigið) og fylgist með í öllu því, sem
félag þeetta gerir til útrýmingar áfengisnautn-
arinnar.
Starf séra Björns í Seyðisfirði og grennd,
til eflingar bindindi,
hefur verið svo trútt
og áhugamikið, að
það hlytur að koma
til greina, þegar saga
íslenzkrar bindindis-
hreifingar verður rit-
uð.
Mestmegn is fyrir
ötulleik hans og dugn-
að var það stórspor
stigið í hitteðfyrra, að
kaupmenn hættu hér
við vínsölu.
I fyrra safnaði hann
í sóknum sínum und-
irskriftuni undir áskor-.
un til alþingis um aðflutningsbann eða vínsölu-
bann.
Hverju því máli, sem hann beitir sér fyrir,
helgar han alla kratta sína. Hann er einn af
þeim, sem er eða er ekki. x.
— Hinn mesti lærdómur er vizkan, en
mesta vizkan er að vera góður.
— Gull þarfnast engrar gyllingar. Heil-
agt líf þarf eigi að auglýsa sig. Það
þekkist af öllum án þess.