Frækorn - 15.09.1905, Side 2

Frækorn - 15.09.1905, Side 2
FRÆKORN 138 Hróp til skyldunnar. Eýtir E. G. White. Sannarlega hefir frelsari vor, Jesús Kristur, ætlast til þess, að meira yrði unnið að andlegum framförum mann- kynsins, af hálfu mannanna, en hingað 1il hefir átt sér stað. Ekkert er viss- ara, en að það er móti hans blessaða kærieiksríka vilja, að svo margir, að því er virðist, skuli standa undir merki satans og vera þar af leiðandi upp- reistarmenn gegn stjórn og löguni drottins. Endurlausnari heimsins ætl- aðist ekki til þess, að hans dýrkeypta arfleifð skyidi lifa og deyja í synd- um sínuni. Hvers vegna er þá hið andlega ástand mannanna svo bágt og horfurnarsvo ískyggilegar? — Rað er af því að kristindómur svo margra er ekki nema nafnið tómt, og þar af leiðandi vanrækja þeir sína himnesku köllun. Reir mörgu menn, sem enn í dag ekki þekkja guð, gætu glaðst við kærleika hans, ef þeir, sem nefnd- ir eru erindsrekar hans, viidu starfa á sama hátt og Kristur gjörði. Sjá fyrirskipunina í 3. og 5. bók Mósesar, sem ísraelsmönnum var gef- in. Þótt þeir, sem voru guðs útvalið fólk, ættu að vera heilagir og skildir frá þeim, sem ekki þektu hann, áttu þeir þó að auðsýna hinurn útlenda kærleiksfult og bróðurlegt hugarþel. Peir áttu ekki að álíta hann sér minni, þó hann væri ekki af ísrael. Þar eð Kristur dó til þess að allir yrðu hólpn- ir, áttu ísraelsmenn að sýna hinum útlenda kristilega samhygð. Regar þeir, á þakklætishátiðum sínum, komu saman til að tala um kærleika ogvei- gjörðir guðs, átti hinn útlendi að vera velkominn meðal þeirra. Einnig áttu þeir, á kornskurðartímanum að skiija korn eftir á ökrunum handa út- lendingnum og hinum fátæka. Hinn út- lendi átti því einnig að verða hluthafi í náðargjöfum og blessunum drottins. Drottinn, guð (sraels, bauð, að þeir skyldu verða taldir sem sitt fólk, er gengju í félag með þeim, sem þektu og játuðu hann sinn drottin og herra. Rannig áttu þeir að komast til þekk- ingar á lögum Jehova og vegsama hann með hlýðni sinni. Rað er og enn þann dag í dag guðs góði vilji, að börn hans miðli öðrum af þeim gæðum, sem hann hefir veitt þeim, í andlegum og líkam- legum efnum. Öllum Krists lærisvein- um hafa á öllum tímum verið gjörð kunn þessi orð frelsarans: Úr kviði hans munu fljótastraumar lifandi vatns. Margur æskumaðurinn,einstök heim- ili og trúræknis-stofnanir hafa, sem kunnugt er, vikið útá braut glötunar- innar. Með ýmsri óhófsemi æskunn- ar er oft lagður grundvöllur æfilangr- ar vanheilsu, og taumlaus peningaelska, samfara margskonar syndsamlegu eft- irlæti, verður mörgum hrösunarhella. Heilsa og fagurt mannorð er að vettugi virt. Oft kemur til þeirra kasta, að efnilegur æskumaður í sínu villu- og ráðleysisástandi er rekinn úr borgara- legu félagi og fer þá einatt svo, að hinum fallna manni finst, sem hann sé án huggunar ogvonar, bæði þessa heims og annars. Foreldrar horfa oft | grátþrungnum augum á eftir börnum sínurn, þegar þau hrífast út í hringiðu spillingar og glötunar. Vor himneski faðir þekkir öli þau atvik, sem valda því, að maðurinn verður herfang freist- inganna, og það særir hans viðkvæma föðurhjarta. Hér er sannarlega verk til að vinna. Pað er ekki einungis æskulýðurinn, heldur menn á öflum aldri, fátækir og nauðlíðandi, hlaðnir synd og sekt, sem sannarlega þarf að leiðbeina og áminna. Rað er því ætlunarverk guðs verkamanna að leita að siíkum villu- ráfendum og leiða þá að fótum frels- arans. í liöfuðstöðum hinna svo kölluðu kristnu landa er eymdin og ógæfan og alskonar níðingsháttur oft í sinni hræðilegustu mynd. í þessum borg- um er fjöldi manna, sem er sýnd miklu minni hluttekning og meðlíð- un en hinum skynlausu skepnum. | Börn þessara manna ráfa fram og I aftur um strætin hungruð og klæð-

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.