Frækorn - 29.03.1906, Síða 7
FRÆKOKN
103
F/ étií.
Frakkland.
Ráðaneytisskifti eru orðin á Frakklandi.
Rouvier sagði af sér vegna þess, að þing-
ið feldi 267 atkv. gegn 234 ánægjuyfir-
lýsingu yfir því, hvernig stjórnin hefði
snúist við kirkjuuppþotunum. Sarrien,
gamall stjórnmálamaður úr sama flokki
og Rouvier, myndar nýtt láðaneyti.
England.
Flingað til hafa enskir þingmenn engin
iaun fengið fyrir þingsetuna. En nú er
komið þar fram lagafrumvarp um breyt-
ing á þessu og talið víst, að það gangi
fram. Stungið er upp á 5400 kr. árslaun-
um handa þingmönnum.
Berklaveiki
í allri Norðurálfunni deyja árlega af
lungnatæringu meir en ein milljón manns,
eða hérumbil 2 á hverri mínútu.
Meðal hvers þúsunds lifandi manna
:yja árlega af Á Englandi berklaveiki: 1,35
- Skotlandi 1,72
í Noregi. 1,73
á Ítalíu. . 1,87
í Danmörku 1,91
á íslandi . 2,02
í Sviss 2,03
á Pýzkalandi 2,24
í Svíþjóð 2,31
á Frakklandi . . . , 3,01
í Austurríki 3,68
á Rússlandi 3,98
Drukknun.
12 þ. m. drukknuðu 4 menn af fiski-
bát frá Vestmannaeyjum. Enskir botn-
vörpumenn af skipinu »Helíos«, sem áð-
ui hafa bjargað róðrarbátum þar við eyj-
arnar, ætluðu að hjálpa þessum bát inn
og tók hann aftan í sig, en báturinn var
of mikið hlaðinn og sökk. 14mennvoru
á bátnum og gátu botnverpingar bjargað
10, en 4 fórust: Högni Árnason frá
Qörðum í Mýrdal, ísleifur Jónsson frá
Skálhoiti (báðir um tvítugt), Ól. Heiga-
son frá Norðfirði eystra (á fertugsaldri)
og Sig. Sigurðsson frá Túni í Vestmanna-
eyjum (á fimtugsaldri).
Mannalát.
16’. þ. m. andaðist Ólafur læknir Guð-
mundsson á Stórólfshvoli úr tæringu.
Hann fékk í fyrra lausn frá embætti sök-
um heilsuleysis
Ólafur var talinu með beztu og dug-
legustu læknum landsins.
Mdtorbátur.
1. maí á mótorbátur Kjalnesinga og
Mosfellinga að byrja fastar ferðir frá Rvík
og hér inn nm flóann. Báturinn er 12
tonn (nettó) og hefir 8 hesta afl. Ráð-
gert er, að hann verði milli föstu ferðanna
leigður til skemtiferða.
BETEL
Samkomur verða haldnar framvegis eins og
hér segir :
Sunnudaga :
Kl. 2 e' h. Sunnudagaskóli.
Kl. 64/2 e. h. Fyrirlestur.
Miðvikudaga :
Kl. 8 e. h. Bibliusamtal.
Laugardaga:
Ki. 11. f. h Bœnasamkoma og biblíulestur.
Stórt íbúéarhús,
sem rentar sig betur en flest önnur hús
hér, er af sérstökum ástæðum til sölu
með góðu verði og vægum borgunar-
skilmálum. Húsið er hér um bil nýtt,
og liggur á bezta stað í bænum. Einar M.
Jónasson málaflutningsmaður, Aberdeen,
gefur allar upplýsingar því viðvíkjandi og
semur um kaupin.
w. BRÚKUÐ ÍSLENZK V,
1$ FRiMERKI OG
^ £ BRÉFSPJÖLD ^
^ kaupir
D. ÖSTLIUND.
»FRÆKORN« koma út vikulega og
kosta 1 kr. og 50 aura um árið.