Frækorn


Frækorn - 23.05.1906, Qupperneq 1

Frækorn - 23.05.1906, Qupperneq 1
VII. ÁRG. REYKJAVÍK 23. MAÍ 1906. 21. TBL. Kærleiki Krists til föðursins. Eftir dr. Torrey. Ef vér spyrjum eftir, hvað kemur mest fram í persónuleika Jesú, mundu margir svara: kærleikurinn. Spyrjum vér aftur: kærleikurinn tíl hverra ? mundu margir svara: kærleikurinn til .mannanna; en þannig var það ekki í raun og veru með Krist. Rað finst mikill kærleikur til mann- anna hjá honum — eins og vér munum sjá við nánari athugun — aðdáanlegur kær- leikur til mannanna, en bak við kærleika hans til þeirra og enn innilegri var kær- leiki hans til guðs föður. Flettu upp í biblíunni og les hina að- dáanlegu ritningargrein, í fegursta kapí- tula biblíunnar 14. kap. hjá Jóh. 31. v.: »En svo að heimurinn viti að eg elska föðurinn, og að eg gjöri eins og faðir- inn hefir mér boðið.« I þessum ein- földu, aðdáanlegu orðum segir Jesús, að hið eina, sem hann óskar, að heimurinn skyldi vita um hann, var: að hann eísk- aði föðurinn — »svo að heimurinn viti að eg elska föðurinn.« Hefðir þú farið ti! jesú og spurt hann : >Hvað er nú hið eina sjálfum þér viðvíkjandi, sem þú óskar, að heimurinn viti, eftir að þú ert farinn ?« Rá mundi hann hafa svarað: j Að eg elskaði föðurinn.« Ef þú hefðír spurt hann: »Hvað er leyndardómurinn við líf þitt?« mundi svar hans hafa ver- ið: »Eg elska föðurinn.« Þetta er það | dýpsta í persónúleik og meðvitund Krists I — »eg elska föðurinn«, og viljir þú læra að þekkja, hvað kærleikur til guðs þýðir í hreinleik og fyllingu, þá seztu niður og virtu Jesúm fyrir þér. Hversvegna yfirgaf Kristur himininn ? Kærleiki Krists til föðursins kemur fram á svo mörgum mjög eftirtektaverð- um stöðum. Látum oss fyrst lfta á hið fyrnefnda vers Jóh. 14, 31. Hann sýndi kærleika sinn til föðursins með því að gjöra það, sern hann bauð honum. Retta sama kemur fram í Jóh. 15, 10. »Ef þér haldið mín boðorð, munuð þér halda minni elsku, eins og eg held boðorð föður míns og held hans elsku.« Petta er aðferðin á hvern hátt hann sýndi kærleika sinti — að hlusta á, þeg- ar faðirinn talaði, og svo að gjöra hans vilja. Þetta er hinn fyrsti vottur uin kærleika við öll tækifæri. Rað er sagt t. d. í l.Jóh. 5, 2. um kærleika vorn til guðs: »1 því sýnir sig elskan til guðs, að vér höldum hans boðorð.« Á þenna hátt sýndi Jesús frá því fyrsta kærleika sinn til föðursins, — að heyra hvað fað- irinn sagði, og svo að framkvæma það, sem faðirinn hafði boðið honum. Retta er kærleiki Krists til föðursins. Jesús yfirgaf dýrð himinsins og kom til jarð- arinnar i allri hennar niðurlæging. Fað- irinn sagði við soninn : »Stíg niður til heimsins, hann er glataður, eg vil frelsa hann. Hann getur einungis frelsast með friðþægingu, Yfirgef himininn og alla

x

Frækorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.