Frækorn


Frækorn - 23.05.1906, Side 6

Frækorn - 23.05.1906, Side 6
166 FRÆKRON arivindur hafði nú tnarga undanfar- andi daga leikið um stóru fannbreið- urnar, sem smámsaman færðust nið- ur eftir hinum bröttu fjallshlíðum, niður að seljunum. Snjónum hafði hlaðið niður svo að hætta var af snjó- flóðum. Viktor hafði ferðast í næsta dal til að kveðja kunningja, áður en hann færi að heiman. A heimleiðinni fór hann um sel Cesariosar. Hann hafð: séð hvernig snjóbreiðurnar héngu fram af brúnunum og á pörtum voru stykki farin að losna og hrynja eitt eftir annað, svo hann flýtti sér heim alt hvað af tók. Þetta var um kvöld. Sólargeisiarnir féllu enn þá á fjalls- tindana, en hvíti snjórinn endurkast- aði birtunni, og tindarnir glóðu í sól- setrinu, en yfir dalnum hvíldi rökkur. Jakob sat fyrir utan selkofann og horfði niður í þorpið, sem óglögt sást í fjarlægð. Hann kallaði til Vik- tors og spurði hann hvort hann hefði tekið eftir hvernig snjóbreiðunum liði. »Já,« svaraði Viktor til að gjöra hann öruggan, »snjóbreiðurnar liggja fastar. Rað er engin hætta búin af þeim fyrst um sinn.« »Eg hefði annars farið heim í kveld«, sagði Jakob, »en verð nú kyr hér í nótt, og rek svo geiturnar út í fyrra- málið.« »Það getur þú ókvíðinn«, svaraði Viktor með háðsbrosi. »Við skulum láta hann eiga sig«, hugsaði hann með sér, þegar hann hélt áfram göngunni, »en mig hefði ekki langað til að vera hérna upp frá í nótt; það líður ekki á löngu, þang- að til snjóbreiða’n kemur.« Jakob lagðist öruggur til svefns á mosabeð í geitakofanum, og sofn- aði brátt. Um nóttina vaknar hann við voðalega skruðninga, brak og bresti eins og alt væri af göflum að ganga. Það var snjóbreiðan sem hafði losnað og ruddist nú niður fjallið með öllum þunga sínum. Stórir steinar hentust svo þúsundum skifti niður í dalinn eins og væru það jötnaherlið sem berðist. Snjóflóðið braust gegn um skóginn, allur skógurinn svign- aði og hundrað ára stofnar kubbuð ust sundur eins og tunnustafir, og það hélt áfram herjandi niður eftir. Þegar Jakob opnaði dyrnar og leit út í níðdimma nóttina, heyrði hann brak yfir höfði sér og hurðin skeltist aftur og hann varð innilokaður. Snjó- flóðið hafði farið yfir kofaræfilinn, sem hann var í og hafði grafið hann. Kofinn var bygður fast upp við klett, svo að snjóþyngslin höfðu ekki orð- ið svo mikil og kofinn stóð óskadd- aður ennþá. Enn hvað var við það unnið, hann var lifandi grafinn með aumingja dýrunum einum. Heima, mundi hans verða saknað, en skyldu þeir þá ná honunr lifandi út? Hann henti sér grátandi á bæli sitt og grét þar til hann sofnaði. Þegar hann vaknaði aftur undraði hann sig á þessu níða-myrkri, sem enn þá var í kofanum en loks mundi hann hinn sorglega viðburð næturinnar. »Viktor hatði vitað að snjóflóðið mundi bráðlega koma,« sagði hann, en hann vildi ginna mig til að vera kyr; nú man eg eftir undarlega háðs- brosinu á vörum hans, þegar hann yfirgaf mig.« Hann þreyfaði sig áfram um kof- ann. Hann var umkringdur af snjó á alla vegu, og önnur hliðin hafði brotnað inn, en kofinn stóð að öðru leyti uppi óskemdur. Hann mjólkaði nú geiturnar og drakk mjólkina.

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.