Frækorn


Frækorn - 31.05.1906, Síða 3

Frækorn - 31.05.1906, Síða 3
FRÆKORN 17Í Eg fyltist ósegjanlegri gleði, þakk- iæti og lofgjörð stigu upp frá hjarta mínu, fyrir að hafa reynt svo dýrmæta írelsun, fætur mínir voru dregnir upp úr leirnum og settir á klett, að eg, sem áður hafði verið án vonar, hafði nú hlotið fullvissu um fyrirgefning og velþóknun, það var náð, sem ekki gat gleymst. Frá þessum tíma leitaði eg guðs hjálpar, og af gæzku sinni gaf hann mér heilsuna aftur. Pá varð eg fær um að syngja og lota nafn hans, sem j lifir til eilífðar. Hinn heilagi andi, sem eg áður hafði hafnað, var mér nú gefinn til að kenna mér og leiða mig á friðarins veg. Upp frá þessu var hjarta mitt, vegna svo mikillar náðar auðmjúkt og fúst til daglega að taka á sig Krists kross, og fylgja honum á hinum þrönga vegi sjalfsafneitunarinnar. Eg var hlýð- inn, og hann gaf mér náð til að hafna mínum hégómlegu lifnaðarháttum, og öllum holdlegum skemtunum sem hon- um voru á móti. Hann leiðbeindi mér nú í öllum hlutum og sýndi mér skýldur mínar, og gjörði mig færan um að framkvæma þær, á þann hátt, sem honum var þóknanlegt. En ef eg nokkru sinni fylgdi mín- um eigin vilja, misti eg kraftinn, og sá ekkert gagn af verkum mínum. Af þessu lærði eg, að eg gat ekkert gert guði til dýrðar án hjálpar heilags anda. Pannig fann eg stöðugt nauðsyn á, | að snúa mér til hans og láta hann leiða mig; og hann leiddi mig á lífs- ins veg, er leiðir til eilífs friðar, hvern sem fylgir honum.< Þetta er reynzla Davids Ferris, sem lifði í Ameríku fyrri hluta 19. aldar. Fimtíu árum síðar stóð hann einnig stöðugur í að trúa á drottinn Jesúm sem frelsara sinn. Vort andlega stríð er ýmislegt, og guð leiðir oss á ýmsan hátt, en ef vér óskum að standa meðal hinná endurleýstu frammi fyrir guðs hásæti, þá hljótum vér allir að hafa, »þvegið skikkjur vorar og hvítfágað þær í blóði lambsins.« Opinb. 7, 14. Lesari minn! hefir þú fengið synd þína fyrirgefna ? Hefir blóðið Jesú Krists hreinsað þig af allri synd ? Biður þú guð án afláts um leiðsögh heilags anda, og hjálp hans til að sigra sérhverja freistingu? »Komið síðan og eigumst lög viðy segir drottinn, þó yðar syndir væru sem skarlat, þá skyldu þær verða hvítar sem snjór, og þó þær væru rauðar sem skarlatsormur þá skyldu þær verða sem ull.« Es. 1, 18. En guð friðarins, er uppvakti af dauða drottinn vorn Jesúm Krist, hinn mikla hirðir sauðanna, fyrir blóð hins eiiífa sáttmála, hann fullkomni yður í öllu góðu verki til að gjöra hans vilja. Hebr. 13, 20-21. Hjálp við biblíurannsókn. (Þýtt.) Von guðs barna. Guðs orð talar að eins um eina von fyrir hina heilögu. Ef. 4, 4. Þessi von er ekki, að ódauðleg sál fari til himins þegar maðurinn deyr, heldur að guðs sonur muni í dýrð opin- berast, uppvekja þá heilögu og safnaöll- um sínum til sín, sem þá munu öðlast eilíft líf. Job. 19, 25. 26. Sálm. 17,15. Es. 26, 19. Dan. 12, 2. Matt. 13, 39. 43.; 25, 31. 32. 34. Lúk. 14, 14. Jóh. 5, 28. 29.; 11, 24. 25.; 6,27.39. 40.; 14, 1-3. Filipp. 1, 6. 10.; 2, 16.; 3, 11. 20. Kól. 3, 4. 1. Tess. 2, 19.; 3, 13.; 4, 13-18.; 5, 23. 2. Tess. 1, 7.-10.; 2, 8. 1. Tím. 6, 14.

x

Frækorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.