Frækorn - 31.05.1906, Síða 7
FRÆKORN
175
bætt úr þessu með því að troða drusl-
um í götin, gólfið svignaði undir þeim,
er á það stigu, og veggirnir höfðu ekki
seinasta mannsaldur verið ónáðaðir með
því sem vér köllum ræsting. Hjarta Viktors
sló hratt þegar hann kom að dyrunum.
Var það mögulegt að það gæti verið
Jakob þá hlyti eitthvert kraftaverk að hafa
frelsað hann. Oæti hann nú mætt augna-
tilliti Jakobs? En samt sem áður varð
hann að sannfærast um hver það var.
Hann vildi svo gjarna hugsa að það
væri hinn gamli leikbróðir hans, en þorði
það þó ekki.
Loks áræddi hann að ganga inn í hús-
ið; á tötralegu bæli úr hálmi og drusl-
um lá veik og mögur vera. Það gat
enginn annar verið en Jakob. Veiki
drengurinn sneri höfðinu við og horfði
undrandi á Viktor, þannig mættust þeir
og athuguðu hver annan þegjandi.
^Rað ert flú þú samt sem áður«, byrj-
aði Viktor. »Eg þekti apann þinn þarna
uppi í búðinni.«
»Pú hefir haldið mig vera kominn
undir græna torfu fyrir löngu. Eg er
að vísu ekki kominn þangað enn þá,
en þess verður víst ekki langt að bíða.
Eg kem aldrei framar heim til pabba og
mömmmu.«
Við þessa athugun fór aumingja dreng-
urinn að gráta.
»Ouði sé lof fyrir að þú ert lifandi !<
sagði Viktor, og grcip hönd hans.« »Nú
máttu ekki deyja, eg skal gæta þín og
hjúkra þér!«
»Þú,« varð Jakob að orði. Hann varð
svo hissa á þessum skyndilegu vinahót-
um.
»Já, eg! Við erum landar og nú
skulum við verða vinir.«
»það er víst um seinan,« svaraði Ja-
kob.
Framh.
Fórn drykkjumannsins.
»Hér eru peningarnir mínir — gefðu
mér eitt staup ! Hér eru fötin mín,
maturinn og eldiviðurinn, sem kona mín
og börnin áttu að fá — gefðu mér cog-
nac! Hér er mentun barna minna og
heimilisfriðurinn, — gefðu mér dálítið af
púnsi! Hér eru peningarnir, sem áttu
að fara í húsaleigu, og peningar sem eg
skulda skólanum og ýmsum verzlunar-
mönnum, — gefðu mér ögn af whisky!
Skenktu meira á, eg skal borga það!
Hér er líkami minn, heilsa og sálarfrið-
ur, hér er mannorð mitt og trúarjátning,
eg sleppi þessu öllu saman — gefðu
mér vín ! Eg hef fleira að gefa burtu !
Hér er arfleifð mín í himnaríki og vin-
átta hinna endurleystu; hér er vonin um
frelsun ! Eg sleppi guði og frelsara mín-
um ! Eg sleppi öllu, sem er gott, há-
leitt og dýrðlegt í alheiminum. Eg gef
þetta alt frá mér, til þess að geta drukk-
ið mig ölvaðan!«
■pFcui/i- oq smawqi5.
Erindrekar Bandarikjanna
safna verkamönnum í Austurríki og
senda vestur um haf til þess að endur-
reisa San Francisco.
Varakonsúll Bandamanna
myrtur á Rússlandi.
Kuldarigningar
óvenju miklar síðastliðna viku á Bret-
landi og um vestanverða álfuna; einnig
víða tjón af vatnagangi.
Kvennaskóli Reykjavikur.
Stofnandi og forstöðukona kvenna-
skólans frú Thóra Melsted, sagði af sér
starfi í vor. Ungfrú Ingibjörg H. Bjarna-
[ son er kosin forstöðukona framvegis.