Frækorn


Frækorn - 05.07.1906, Blaðsíða 4

Frækorn - 05.07.1906, Blaðsíða 4
212 FRÆKORN 1. Taktu ekki þátt í neinni skemt- un, sem þú ert ekki viss um að sé j teyfileg. Regar þú, í þessu efni, ert í óvissu, áttu að láta það ógert, sem um er að ræða. Margar eru þær skemtanir, sem engin vafi getur leik- ið á að séu leyfilegar. »Sá, sem er efasamur, er dæmdur, því að alt það, sem ekki er af trú, það er synd.« (Róm. 14, 32). Margur kristilega sinn- aður æskumaöur mun segja: »Eg er ekki viss um, að þessi skemtun sé syndsamleg.« En ertu viss um, að hún sé leyfileg ? Ef ekki, þá sleptu henni. 2. Taktu ekki þátt í neinni skemt- un, sem þú hyggur að ekki muni vera guði til dýrðar. »Hvort sem þér þessvegna etið eða drekkið, eða hvað sem þér gjörið, þá gjörið alt guði til dýrðar.« (1. Kor. 10, 31). Pegar þú ert í efa um einhverja skemtun, þá ættirðu að spyrja sjálfan þig: »Get eg gert þetta guði til dýrðar?« 3. Taktu ekki þátt í neinni skemt- un sem dregur úr áhrifum þínum hjá einhverjum. Þær skemtanir eru til, sem ef til vill eru saklausar í sjálfu sér, en oss er eigi unt að taka þátt í þeim án þess að missa þau áhrif, sem vér getum haft á einhvern mann. En það er innilegasta ósk og þrá hins sannkristna manns, að líf hans hafi hin víðtækustu áhrif á alla. Pað er svo margt *em þarf að vinna, en verkamennirnir eru fáir. Þess vegna óskar hver kristinn maður, að hann gæti haft öfflugustu áhrif á samferða- menn sína á lífsleiðinni. Verði ein- hver skemtun til þess að draga úr þeim áhrifum, sem mundu á einhvern hátt verða til blessunar og guðs ríki til eflingar, er sannarlega gefið of mik- ið fyrir hana. Legg ekki té þitt, sem guð hefir gefið þér, út fyrir slíka j skemtun. Ung og alvarlega trúuð kona þráði að geta leitt menn til Krists. Hún ásetti sér að tala við ungan vin sinn um að koma til Krists, og meðan hún tók sér hvíld á danz- skemtun einni, sagði hún við þenna unga mann, er hún danzaði með: »Georg, ertu kristinn maður?« »Nei«, svaraði hann, »það er eg ekki, eruð þér það?« »Já« svaraði hún, »það er eg.« »Hvernig getið þér þá tekið þátt í þessari danzskemtun?« svaraði hinn ungi maður. Pað er víst, að börn heimsins á- líta, að margar skemtanir hans séu guðs börnum ósæmilegar, hvort sem þau hafa rétt fyrir sér eða ekki. Vér megum ekki láta slíkt draga úr þeim áhrifum, sem vér getum haft á aðra, Krists ríki til eflingar. Peim skemt- unum, sem heimsins Lörn skoða oss ósamboðnar, skulum vér ganga fram hjá. 4. Taktu ekki þátt í neinni skemt- un, sem þú getur ekki helgað með bæn, þ. e. sem þú getur ekki beðið guð að blessa. Bið þú guð að blessa þér skemtanir þínar, eins og þú bið- ur hann að blessa þín daglegu störf. 5. Sæktu enga þá skemtun, sem þú getur ekki ímyndað þér að Kristur hefði tekið þátt í. Kristur fór til skemtana, meðan hann var hérájörð- unni. Hann fór í brúðkaupið í Kana (Jóh. 2.), og hann gjörði sitt til að auka gleðina þar. En þær skemtanir nútímans eru án efa margar, sem Krist- ur mundi ekki taka þátt í. Mundi hinn heilagi, sem vér köllum »Herra« una sér í hinu andlega lofti sumra skemtana nútímans? 6. Taktu ekki þátt í neinni þeirri skemtun, sem þú getur ekki með ró- egri samvizku verið staddur í, þeg- I ar Jesús kemur. — Blessaður er sá,

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.