Frækorn


Frækorn - 28.05.1907, Page 4

Frækorn - 28.05.1907, Page 4
160 FRÆKORN Þitt orð er lampi fóta minna og Ijós á vegum mínum, segir Davíð konungur. Gengur þú í því ljósi? Hugsaðu vel um hvort þú gjörir það. Vaknið allir vorið kallar! Víkur nótt en ljómar sól. Lífsins gjalla gígjur snjallar, gróður, þrótt, og von og skjól. Lifnar flæði laufgast svæðí leyst úr þröngum klaka hjúp Föður hæða feginskvæði flytur himin grund og djúp. Vonir glæðast ljósið ljómar. Lífið hlær í mildum blæ. Blómin fæðast ástin ómár yndi nærir fold og sæ. Fram til verka vorið kallar vakinn þrótt á morgunstund. Streymir fjör um æðar allar eftir kaldan vetrarblund. Tæp er stundin, stuttur skólinn starfið margt og skyldan há. Vökum meðan sumarsólin signir blómin veik og smá. Pegar haustið k'alda kallar: kvíða, elli, stríð og þraut fellur þá sem fis til vallar fegurð vorsins líf og skraut. Hörpur gjaila herrann kall^r heyrið vorsins mildi blæ! Tímans falla öidur allar í hinn mikla djúpa sæ, Bráðum strengir breyta hljómum bliknar fold og verður snauð, þá er seint að safna blómum, sem að liðna vorið bauð, M M. Bækur og rit Stutt matreiðslubók fyrir sveitaheimili. Útgefandi: Póra P. Grönfeldt. Bók þessari verður eflaust vel tekið; því konum er farið að skiljast hve afar- nauðsynlegt er að læra að búa til mat svo að hann sé bragðgóður, nærandi, og í einu og öllu svari tilgangi sínum. Peninga virði. Málfærslumaður F. þjáðist af hjartslætti ! og hafði óreglulegan andardrátt. Loks var hann tilneyddur að snúa sér til læknis, sem hann þekti. Læknirinn rannsakaði sjúklinginn og spurði síðan: »Brúkið þér tóbak? »Hvort eg brúka tóbak? Já, eg held það! Eg hef tuggið og reykt að heita má í sífellu síðastliðin 25 ár. Pegar eg hef ekki reykt, þá hef eg tuggið.* »Já, já«, sagði læknirinn, um leið og hann settist aftur við skrifborðið, »Pá get eg ekkert gjört fyrir yður hr. F. Hið eina, sem gæti hjálpað yður, er að hætta algjörlega við tóbaksbrúkun; en það gætuð þér ekki, þó líf yðar væri í veði«. »Svo, haldið þér það?« svaraði mála- færslumaðurinn. »Eg skal nú sýna yður það!« í sama bili tók hann upp úr vasa sín- um pípu, reyktóbakspoka og munntóbak af bestu tegund, kastaði því í ofninn og gekk snúðugt út. Tveim mánuðum síðar heimsótti hann læknirinn aftur. »Læknir« sagði hann, «eg vel biðja yður að rannsaka hvort nokkur breyting hefur orðið á hjartasjúkdómi mínum«. Læknirinn gjörði það. »Pað er ekkert að hjartanu í yður, hvað hafið þér gjört við það? Eg hef gjört það sem þér sögðuð eg

x

Frækorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.