Frækorn - 20.09.1907, Qupperneq 3
FRÆKORN
287
Dýrðleg von.
Rað er hin dýrðlega von guðs
barna, að þau muni fá að sjá Jesúm
eins og hann er, og verða honum
lík, þegar hann opinberast. 1. Jóh.
3, 2. Ressi von er bygð á guðs ó-
endanlega kærleika íjesú Kristi. »Sjáið,
hvílíkan kærleika faðirinn hefir oss
auðsýnt, að vér skulum guðs börn
kallast.« 1. vers.
Vonin er eftirvænting tilkomandi
gæða. Hin dýrðlegasta von kristins
manns er endurkoma Krists, þegar
hann kemur til að gefa öllum guðs
vinum eilíft líf. Guðs börn þrá þenna
dýrðlega dag. Hans vegna eru oss
gefnir allir aðrir dagar; þá mun það,
sem hér er sáð óásjálegt, upprísa í
vegsemd, það, sem sáð er í veikleika,
upprísa í krafti, og það, sem sáð er
í forgengilegleika, mun upprísa ófor-
gengilegt. (1. Kor. 15, 41. 42.)
Pá mun Jesú almættis- og kæi leiks-
orð hljóma frá hæðum, blítt og há-
tignarlegt, eins og þegar hann kallaði
Lazarus fram af gröfinni og gaf ást-
vinum hans hann aftur; von þeirra
hafði myrkvast um stund, en hún
fékk að skína með endurnýuðum
Ijóma á framtíð þeirra, og vitna um
hinn undraverða eilífa kærleika frels-
arans og föðursins á himnum.
Hugsið yður, þegar allir guðs vinir
þannig fá von sína uppfylta, þegar
hinir endurleystu drottins koma fram
með fagnaðarsöng, og eilíf gleði verð-
ur yfir höfðum þeirra! Fögnuður
og kæti skal falla í þeirra skaut, en
hrygð og andvarpan á burtu víkja.
(Es. 51, 11.)
Að hugsa sér, þegar Jóhannes og
allir hinir postularnir fá að sjá Jesúm
eins og hann er og verða líkir hon-
um; þegar Páll, sem lagði höfuð sitt
undir böðulsöxina, skal stíga frá hinu
myrka fangelsi grafarinnar upp til
dýrðarsala himinsins til að meðtaka
kórónu réttlætisins, sem hinn réttláti
dómari hefir lagt afsfðis handa honum
— kórónu, sem er 10,000 sinnum
meira verð heldur en allar kórónur
heimsins konunga. Hjarta mitt berst
af gleði, og eftirvæntingartár streyma
niður kinnar mínar, þegar þessi dýrð-
lega von guðs barna ljómar fyrir sálu
minni með unaðsgeislum sínum.
Hugsaðu þér, þegar allur skari písl-
arvottanna kemur fram, göfugir menn,
konur og börn, sem fúslega hafa
gefið líf sitt fyrir Krists sakir. Fjötr-
ar þeirra verða breyttir í hvít klæði,
og í stað hinna myrku fangelsa fá
þeir dýrðlega bústaði við guðs hægri
hönd. Hin fölu afmynduðu andlit
þeirra bera ekki lengur vott um mis-
þyrmingu og ósegjanlegar þjáningarí
því þau ljóma eins og sólin, er hún
skín í krafti sínum, lýsa eins og stjörn-
urnar í fegurð sinni. Guð mun þerra
hvert tár af augum þeirra, og lambið
mun leiða þá að lindum lifandi vatns
í guðs eilífa ríki. Einn einasti dagur
hjá drotni er fult endurgjald fyrir
heila mannsæfi fylta sffeldri sorg og
baráttu. Hvað skulum vér þá segja
um þúsund sinnum þúsund ár, já
um alla eilífðina í dýrð hjá drotni?
Hvers vegna ert þú niðurbeygö,
mín sál, hvers vegna ganga sorgar-
bylgjur veraldarinnar yfir þig? Líttu
augum trúar og vonar upp til frels-
ara þíns, varpaðu akkeri vonarinnar
inn fyrir fortjaldið, þangað, sem Jes-
ús, æðsti prestur vor, er inngenginn.
Láttu guðs dýrmætu fyrirheit vera
þinn fasta grundvöll, sem þú getur
öruggur bygt á. Haltu fast við fyrir-
heitin, guðs framboðnu náð, mittíöll-
um breytingum og óeirðum þessa