Frækorn


Frækorn - 15.11.1907, Side 3

Frækorn - 15.11.1907, Side 3
FRÆKORN 351 Una$5enul baimsins. Kaupandi etnn í Vestnrheimi hefir sent Frækornum kvæðið, sem hér fer á eftir. Það er kveðið a þakkardegin- um (The Thanksgiving Day) 29. nóv. ’05. Þakkardagur hcitir þjóðhátíðardagur Vesturheimsmanna. Það er í tilefni af lokinni uppskeru. að þeir halda hann, og þakka gjafaranu allra hluta fyrir blessun hans á ár- inu og gióðann, sem hann hefir veitt þeim af jöiðunni. Unaðsemd haustsins er horfin og heilagra sólgeisla skraut; friður þess fylti vorn anda og færði oss blessun í skaut. Friður þess, fegurð og blíða er fagnaðarefni í dag. Er ekki sjálfsagt vér syngjum nú samhuga þakklætislag? Hefir ei höfundur tíinans hjálpað oss jafnan í neyð, ótalmörg gefið oss gæði og gætt vor á æfinnar leið? Hann hefir hörðu í ári hugrekki veitt oss og ró, blessað vorn bjargræðisforða og brauð látið æ verða nóg. Hörð þsgar hretviðri dundu og hagsældin virtist ei nein, hógvær hann hastaði’ á storminn og hérvistar bætti vor mein. Sorgin, ef sál vora stundum sveipaði' í gráskýjum kífs, í andanum osslét hann skoða endurskin dýrðlegra lífs. Vor mentamál erfið ef eru og uppfræðsluvöntun hjá lýð, hann sér um og sjálfur tilhagar, að sól andans vertni þar blíð. Vér hugsum ng hugfangir dáumst að handleiðslu drottins á oss. Mildri með miskunnarhendi hann mýkir vorn daglega kross. Þess skal með þakklæti mi.nnast að þrenging oss bugar ei nein, herrann þvi sjálfur er hjá oss og hérvistar bætir vor mein. Því skal nú þakka og kveðja, þakka þá unaðartíð, þakka og sætlega syngja um sífögur haustkvöldin blíð. K. D. J. Upprisdn. „Frækornum" hefir borist svolátandi fyrir- spurn: Hvað er átt við f síðasta tbl. „Frækorna", þegar sagt er, að „kirkjan geri lítið úr uppris- unni"? - Hvernig er hægt að segja þetta, þareð hún þó játar, að hún „trúi á upprisu holdsins og eilíft líf"? — Athugull lesari. Svar vort er á þessa leið: Vér þekkjum vel, að kirkjan viðhefur þessi orð í trúarjátningunni, og að því leyti, sem hún heldur trygð við þau, gerir hún ekki\'ú\ö úr uþþrisunni. Sainkvæmt þeim er eilift líf komið undir upprisu holdsins. Annan skilning er ekki vel hægt að leggja í þau. Enda er kenning guðs orðs hin sama. Ef dauðir rtsa | ekki upp, þá er Kristur ekki upprisinn; „þá eru ogþeir, sem sofnaðir eru i Kristi, glataðir." 1. Kor. 15, 16-18. En spurningin er þessi: Er kirkjan alment á vorri tíð trú játning sinni og guðs orði í þessu tilliti? Þegar kirkjan kennir, að þeir dauðu, sem orðið segir að „sofi í Kristi", - alls ekki sofi, heldur njóti fullsælu himinsins þegareftir dauðann, á undan upprisu, - hvaða þýðing fær svo upprisan? Hvers vegna mætti þá ekki alveg sleppa henni úr kenningunni? Og er það ofsagt, að kirkjan á þennan hátt geri lítið úr upprisunni ? Það er fleira, sem fær minni þýðing en vera ætti, ef afneitað er kenning ritningarinnar um ■ svefn framliðinna til dómsdagsins: Ef hinir trúuðu dauðu lifa í sielu himinsins enda þótt dauðir séu, og það á undau uppris- unni, þá hlýtur það að fá minni þýðingu,sem guðs orð lofar viðvíkjandi endurkomu Jesú Krists og endurgjaldinu, sein hann þá muni veita þeim, er hafa lifað í honum, eins og hann segir: „Sjá, eg kein skjótt, og hefi með mér endurgjaldið handa sérhverjum, eftir því sem hans verk verða." Op. 22, 12. — Ef þeir fá endurgjald sitt undir eins við dauðann, hvað á þá endurkoma Krists að þýða? Ef óguðlegir menn fara í „vonda staðinn" þegar við dauðann, og þeir þá fara að líða fyrir verk sín, hvers vegna eiga þeir svo að fá líkama á efsta degi, kallast úr hegningarstaðn- um, dæmast til sömu hegningar og þeir þeg- ar hafa iiðið milli dauðans og upprisunnar og sendast í hegningarstaðinn aftur? — Hinsvegar fær alt þetta rímilega þýðingu, ef farið er eftir kenningu guðs orðs uin svefn framliðinna, um að Kristur komi til þess að

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.