Frækorn - 13.12.1907, Blaðsíða 4
384
FRÆKORN
Bækur 09 rit.
Bogi Th. Melsteð:
Stutt kenslubók i
íslendinga sögu.
2. útg. með
44 myndum og
ágripi af þjóðfé-
lagsfræði. R.vík
1907.
BogiMelsteð
hefir gert ís-
lenzkri þjóð
mjög þarft og
gott verk með
því að rita þessa bók og gefa hana
út. Bókin er að voru áliti mjög góð
kenslubók í íslendinga sögu og eina
skólabókin í því efni, sem hægt er
að tala um. Höfundtrinn kann að
rita fýrir börn. Sagan verður þeim
skiljanleg og kær.
Hinar mörgu ágætu myndir gera
þessa 2. útgáfu enn eigulegri en hin
fyrri útg. var. Allur frágangur er
hinn vandaðasti. Og bandið er eink-
ar-snoturt. A framhlið bindisins er
titillinn gyltur og auk þess gylt mynd
af Fjallkonunni. — Bók þessi er hin
bezta jólagjöf og ágæt sem verð-
launabók handa börnum.
Breiðablik og Bjarmi.
Einstakir af lesendum vorum hafa
spurt oss, hvers vegna >Frækorn«
skyldu flytja greinarstúfinn eftir séra
Fr. Bergmann um »Bjarma* í síðasta
tölublaði.
Tilefnið er það, að »Bjarmi« íupp-
hafi vega sinna bar það af sér, að
hann mundi verða heimatrúboðs-
blað, — eins og »Frækorn« héldu
fram.
Grein séra Fr. Bergmanns tekur at
öll tvímæli í þessu máli og sýnir, að
ummæli vor viðvíkjandi »Bjarma«
hafa verið rétt.
Mennirnir, sem urðu að víkja úr rit-
nefnd »Bjarma«, líta þannig á málið,
og þeim er það kunnugt. »Ogverk-
in sýna merkin.« Blaðið ber það
nógu greinilega með sér, hver er
stefna þess. Andinn í því hefir ekki
látið sig án vitnisburðar.
Að nokkru leyti hefir blaðið haldið
rétta, kristilega stefnu, t. d. í spurn-
ingunni um innblástur ritningarinnar.
í öðru tilliti hefir það farið ver:
sýnt sig t. d. andmælt aðskilnaði rík-
is og kirkju hér hjá oss, og farið ó-
bróðurlegum orðum um trúaða menn,
sem hafa haft aðrar og biblíulegri
skoðanir.
Pað, sem síður er í heima-trúboðs-
stefnunni, virðist þannig farið að skipa
öndvegi í blaðinu, og er það sorg-
legt. Því að einnig í þessari stefnu
er til það, sein gott er, það, sem gæti
orðið að gagni, fengi það aðeins að
njóta-sín.
Biblíurannsókn
9. Lexía. Starf guðs ríkis.
1. Hverjum hefir guð falið að boða frið-
þæginguna? 2. Kor. 5, 18. 19.
2. Hvað verða þeir nefndir, sem rækja þetta
starf? 20. vers. í hvers nafni biðja þeir menn-
ina að sættast við guð?
3. Hvers þjónar og meðstarfendur eru þeir
á þenna hátt? 1. Kor. 3, 9.
4. Hvernig .eiga þeir að koma fram gagnvart
söfnuðunum? 2. Kor. 6, 3; 1. Pét. 5, 2. 3.
5. Hvaða reynslu verða þeir að mæta? 8-
10. vers.
6. Hvaða sérstök hvöt er til þess að sýna
því meiri áhuga til að vinna menn fyrir guðs