Frækorn - 13.12.1907, Blaðsíða 6
386
FRÆKORN
að sér í ölluni bindindismálum og
er að því leyti víst, að það borgar sig
að lesa blaðið. Til tryggingar því, að
blaðið verði fjölskrúðugt og skemtilegt,
má geta þess, að ritstj. hefir útvegað sér
ágæta hjálp við blaðið.
»Frækorn« mæla hið bezta með þessu
nýja fyrirtæki. — Stórstúka Islands gefur
blaðið út.
•»Reykjavíkin«
skiftir um ritstjóra nú um áramótin.
Jón Ólafson mun gefa sig við að semja
íslenzka orðabók, sem hann fékk styrk
til á síðasta þingi, — enda mun hann
þreyttur af að rita Reykjavíkur-»sannsögli.«
Fyrirlestra um spádóma biblíunnar
hefir D. 0stlund flutt í Bétel í seinni
tíð. Fundirnir hafa verið mjög vel sóttir,
húsið troðfult. Næsta sunnudag talar
hann um »þúsundáraríkið«.
Nýti samkomuhús í Hafnarfiröi.
Hjálpræðisherinn hefir keypt hús í
Hafnarfirði, sem verið er að byggja, og
verður það fullsmíðað fyrir miðjan jan.
næsta ár.
Húsið verður hér um bil 12 x 10 ál.
að stærð, og rúmar þannig eitthvað á
annað hundrað manns. Auk samkomu-
salsins verða í húsinu 3 herbergi og
eldhús (\>. e. á loftinu).
Húsið kostar um 3,500 kr. og eru
borgunarskilmálarnir mjög góðir. Verðið
virðist vera Iágt,
Eru þetta tniklar framfarir fyrir Hjálp-
ræðisherinn. Líklega má því telja víst,
að Herinn festi fastan fót í Hafnarfirði
úr þessu.
Bœjarstjórnarkosningarnar
væntanlegu eru þegar orðið mikið um-
hugsuna- og skraf-efni hér í bæ. Kven-
fólkið setur heldur en ekki líf í tauið.
Aukaútsoörin í Reykjavík.
Niðurjöfnunarskrá fyrir allan bæinn er
prentuð.
Rrjú hæztu útsvörin eru þessi;
Kr. 2,000. Thomsens magasín.
— 1,800. Edinborgar-verzlun.
— 1,600. Brydesverzlun.
Kina-kristniboðsfundur 14. þ. m. ki.
5 síðd.
Opinn fundur
verður haldinn í st. »Hlín« no. 33. á
mánudagskvöldið kl. 9 e. h.
Umrœðufundur um aðflutningsbanns-
málið.
Margir merkir templarar taka þátt í
umræðunum.
Utan-félagsmenn jafnvelkomnir og stúku-
meðlimlr,
i
Agætar Jólagjafir.
Opinberun Jesú Krists.
Útlegging eftir J. G. Matteson. Kr. 2.50.
Ljóðmæli Matthíasar Jochumssonar.
1. —5. bindi. 10 og 15 kr.
Æfiminning Matth. Jochurnssonar.
1 kr.
Vegurinn til Krists
eftir White. 1 kr. 50 au.
Bernskan
eftir Sigurb. Sveinsson. 75 au.
Ferðaminningar
eftir Guðni. Magnússon. 3 kr.
Nýja testamentið
á 50 au.