Frækorn - 08.10.1908, Qupperneq 3

Frækorn - 08.10.1908, Qupperneq 3
hjálpar nema Jesúm Krist og hann krossfestan.”- Eg elska frelsara minn, sem gaf líf sitt út til að frelsa mig, og mig langar til að gjöra vilja míns himneska föður. Fyrir guðs náð er eg endurfædd til lifandi von- ar með guðs ævarandi orði. Sem barn lærði eg, að guðs orð stend- ur stöðugt til eilífðar, þó himinn og jörð forgangi, óg að biblían er guðs orð. F*etta er enn í dag sann- færing mín, og oss er boðið að vaxa í náð og þekkingu drottins vors og frelsara Jesú Krists, en Jesús og guðs orð eru eitt, því orðið varð hold og bjó með oss, fult náðar og sannleika, og að svo miklu leyti, sem vér höfum tekið á móti guðs orði með lifandi trú, höfum vér tekið á móti Jesú sjálf- um. Þetta er mér ekki annara frá- sögn, heldur eigin sannfæring og reynsla. Margir hafa sagt við mig, að vér getum vel komist af með þá trú og þekkingu á Kristi, sem vér fengj- um sem börn, en guðs orð segir: »Vaxið í náð ogþekkingu.« 2. Pét. 3, 18. Jesús segir: »Rannsakið ritningarnar.« Jóh. 5, 39. Og þekk- ing á guðs orði og vilja hans leið- ir til þess að hreinsa oss frá synd. Pví ef vér erum aðeins orðsins heyr- endur, en ekki gjörendur, svíkjum vér sjálfa oss. Ekki svo, að vér réttlætumst fyrir verkin, heldur eru verk hlýðninnar ávöxtur trúarinnar hjá endurfæddum manni. Sumir halda, að guði standi á sama, þó maður t. d. haldi annan hvíldardag en þann, sem guðs orð til tekur, en Jesús segir, að »þang- að til himinn og jörð forgangi, muni ekki minsti titill eða bókstaf- ur lögmálsins líða undir lok.« Matt. 5, 18. Mig langar til að hlýða því. Endir lögmálsins er Kristur, FRÆKORN til réttlætingar sérhverjum sem trúir. Eg þakka guði innilega fyrir, að hann er orðinn þetta fyrir mig, en það leysir mig ekki frá hlýðms- skyldunni við guðs heilögu, ævar- andi boð, heldur veitir mér lifandi löngun til að fylgja þeim æ betur, því Jesús hefir tekið sér bústað í hjarta mínu, og hann er í dag og í gær og að eilífu einn og hinn sami. Heb. 13, 8. En afstaða Jesú til lögmálsins var sú, að hann kom ekki til að afnema heldur stað- festa það, og í Heb. 10, 6. 7. og Sálm. 40. kveður Messías svo að orði: »Mig langar til að gjöra þinn vilja, minn guð, og lögmál þitt er inst í mínu hjarta«, og eins verður hjá oss, ef Jesús hefir tekið sér bústað í hjörtum vorum. Yður þykir máske, að vér leggj- um of mikla áherslu á að sýna mönnum fram á, að þeir syndgi með þvf að brjóta hvíldardagsboð- orðið; en sama myndi t. d. hinum ósannsögla máske þykja, ef haldið væri fram 8. boðorðinu. »Guð myndi ekki taka það svo strangt«, myndi hann hugsa, ef hann bara leitaðist við að sýna mannkærleika í framkomu sinni. Pannig vilja menn afsaka hverja synd, sem holdi og blóði þykir ervitt að sleppa. En vér höldum ekki fremur fram einu, heldur én öðru guðs boð- orði. »Réttsýn eru öll hans boð- orð. Þau eru óbifanleg um aldur og eilífð, gjörð með sannleika og einlægni.« Sálm. 111. »Og þó ein- hver héldi alt lögmálið, ef hann verður brotlegur í einu boðorði, þá er hann sekur við þau öll.« Jak. 2, 10. Pað er nóg til af því í heiminum, að vilja syndga upp á náðina. En Jesús kom »til að frelsa sitt fólk frá þess syndum«, og gefa oss kraft til nýs lífs, en 187 ekki til að afsaka syndina og lifa í henni, en það gera þeir, sem sjá, hvað guð býður, en hugga sig við, að hann muni ekki taka það svo strangt með hlýðni í einstökum at- riðum, t. d. með að halda þann hvíldardag, sem guð hefir boðið, ef maður bara heldur annan, en slíkt er ljós viðurkenning fyrir því, að þeir brjóta móti betri vitund. Oetur endurfædd mannéskja gjört það? Vissulega ekki. Eg efast ekki um, að þér séuð svo einlægar og alvarlegar ítrúyð- ar, að þér viljið þekkja af guðs orði, hvort er réttara að halda heilagan fyrsta eðasjöunda daginn. Fyrir guðs börn er ekkert atriði í Orði hans of lítilfjörlegt til þess að gefa gaum að því. Eg fór að rannsaka þetta til þess að réttlæta sunnudagshelgihaldið hjá sjálfri mér, héft það væri hægðarleikur; svo tók eg upp alla þá texta í nýja testamentinu, sem tala um guðs boðorð, og alstaðar, sem nefndur er fyrsti og sjöundi dagurinn. Lesi maður þetta í gegn, sést Ijóslega, að sjöundi dagurinn hefir verið haldinn heilagur svó langt, sem nýja testamentið nær; þetta kom yfir mig alveg eins Og reið- arslag, en eg fann, að eg hafði enga heimild til að halda annan hvíldar- dag en þann, sem postularnir og hinir fyrstu kristnu höfðu haldið; eg sá, að eg hlaut að byrja strax að halda hvíldardag biblíunnar, og eg vildi fylgja guðs orði, hvað sem það kostaði, og hvað sem fjöldanum leið'; og mér sárnaði líka, að hafa þannig (þótt óvitandi) brotið boðorð míns elskuríka himn- eska föður. Til frekari fullvissu fór eg til guðfræðings, sem eg vissi var trúaður maður, til þess að fá leiðbeiningu hjá honum, ef nokk.

x

Frækorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.