Frækorn - 08.10.1908, Blaðsíða 6

Frækorn - 08.10.1908, Blaðsíða 6
190 um meðlimum þéss safnaðar, sem hún hafói verið í, eins og komið gætu, til þess að vera hjá henni á andlátsstundinni. Klukk- an hálf ellefu bað hún frú Ryle, konu prestsins, sem var bezta vinkona hennar, að taka í vinstri hönd sér og láta allar konur, sem inni voru, haldasf í hendur. Eg stóð hinum megin við rúm- ið, og tók í hægri hönd henn- ar, en hinir karlmennirnir héldust í hendur við mig og slógum við þannig, 38 alls, liring eftir bæn konu minnar og svo sungum við mjög lágt: »Þú Jesús, sem sál mín elskar, láttu mig fljúga að brjósti þér.« Regar við fór- um að syngja: sPú, ó Kristur, ert það eina, sem eg þarfnast*, sagði kona mín í veikum en þó skærum róm: »Já, það er það eina, sem eg þarfnast, það eina, sem eg á; komdu, blessaðiJesús og taktu mig heim til þín«, og hún sofnaði. Sonur minn vildi ekki vera við greítrunina, og að því er eg frekast veit, hefir hann aldrei farið til grafar móður sinnar. Hann hefir ekki heldur kallað mig föður, og ekki svarað neinu af bréfum mínum, síðan eg sner- ist, og þó hef eg þrisvar sinn- um farið yfir Átlantzhafið frá Ameríku til Þýzkalands og reynt að hitta hann og sættast við hann, en hefir alt af mistekist, því hann vildi ekki sjá mig. En það hefir eingöngu kallað fram öflugri bænir fyrir sáluhjálp hans, að hann líka megi losna undan þrældómi hinnar gyðinglegu hjá- trúar og megi í Jesú »sjá það guðs lamb, sem burt ber heims- ins syndir.* Fjórða ferðin til Þýzkalands, FRÆKORN í júlí, 1887 hefir styrkt og stað- fest trú mína, því að sonur minn samþykti ekki éinungis að hitta mig, heldur feldi líka bit- ur tár, er hann hugsaði til um- liðna tímans og lýsti því strax yfir, að hann hefði ákveðið að hitta systur sína í Ameríku. Niðurlag næst. þarf eg að werSa ðömul? »Hvað þarf eg að verða gömul, áður enegverð sannkristin?« spurði lítil stúlka móður sína einu sinni. Móðirin var skynsöm og svaraði barninu ekki beinlínis, heldur spurði: »Hvað ætlar þú að verða gömul, áður en þú getur elskað mig?« »Mamma mín, eg elska þig og hef altaf gjört það, og mun altaf gjöra það, en segðu mér það, sem eg spurði þig að.« Móðirin hélt áfram: »Hvað ætl- arðu að verða gömul, áður en þú trúir mér fullkomlega fyrir þér?« »Pað hef eg altaf gjört, elsku mamma nún«, sagði litla stúlkan hálf óþolinmóð og vafði handleggj. unum um háls móður sinni, »en segðu mér nú þetta, sem mig lang- ar til að vita.« Móðirin spurði enn einu sinni: »Hvað ætlar þú að verða gömul áður en þú getur gjört það, sem eg bið þig að gjöra?« Þáfór barnið að skilja, hvað móð- irin fór, og hvíslaði: »Eg get það nú þegar, því þú heimtar ekki af inér nema það, sem eg er fær um.« Nú sagði móðirin: »Rá getur þú líka nú þegar orðið sannkristin, því það er ekki annað en að elska guð föður, sem var svo góður að gefa oss son sinn oss til frelsunar; það er ekki annað en að treysta honum í Jesú nafni og gjöra alt, sem hann býður oss. Viltu gjöra þetta?« »Já«, svaraði barnið. Svo féllu þær á kné og báðu til guðs; móðirin fól guði litlu stúlkuna sína í Jesú nafni; svo hún væri hans barn og sannur Jesú lærisveinn. Jfdscnt. í 3. tbl. Óðins þ. á. er getið nokkurra af vorum góðkunnu tón- skáldum, þar á meðal Péturs heit. organista Guðjohnsens, sem er ekki hvað síztur þeirra er þar eru talin. Pó segir í nefndri grein: »En sönglög samdi hann þó ekki sjálfur.« Petta hygg eg ekki rétt hermt. Væri gott, ef greinarhöf. vildi leið- rétta slíkt, sé hann ekki búinn að því. H. P. fllbcrti-bncyk$1ið. »Frækorn« skýrðu í síðasta tbl. frá því eftir símfréttum, að fyrv. dómsmálaráðgjafi Dana, Alberti, hefði 8. f. m. gefið sig fram við lög- regluna í Kaupmannahöfn fyrir fjár- svik og fals. Fjársvikin nema um 15 miljónum króna. Pað er sem formaður Sparisjóðsins sjálenzka, að flest þessi svik eru gjörð, og þau koma helst niður á sjálenzka bændur. Menn halda, að Álberti hafi eytt þessu fé að miklu leyti í gullnámu-bralli í Ameríku, og auk þess hafi mikið fé farið í mútur og blaðarekstur (Dannebrog). — Falsanir Albertis hafi meðal ann- ars farið þannig fram, að hann hafi í heimildarleysi selt og ráð-

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.