Frækorn - 08.10.1908, Síða 7
FRÆKORN
191
Alberti (situr fyrir framan dómaraborðið).
stafað verðbréfum Sparisjóðsins í
peníngaútveganir hatida sjálfum sér.
— Til þess að klóra yfir þetta
hefir hann logið því upp, að geymd
væri í Privatbankanum óveðsett
verðbrét’ sparisjóðsins að upphæð
9 miljónir kr. Yfirlýsing frá Pri-
vatbankanum falsaði hann og sef-
aði með henni stjórnendur og end-
urskoðendur Sparisjóðsins — í bráð.
— En þegar blöðin dönsku — að-
aUega Politiken, fóru að drótta því
að Alberti, að margt væri ekki tneð
feldu í fjárniálarekstri hans, og
heimtuðu rannsókn, kaus Alberti
þann kostinn að gefa sig fram við
lögregluna.
Hann situr nú í varðhaldi. Mynd-
in fyrsta hér á þessari blaðsíðu er
af honum, meðan á rannsókninni
stendur. Hann ber við minnis-
leysi, og dómarar hans hafa feng-
ið ærinn starfa að reyna að botna
í skjalasyrpu Albertis, sem öll kvað
vera í mestu óreiðu.
Hinar myndirnar þrjár eru af I
mönnuin, sem helst hafa fengið að
kenna á afleiðingunum af fjársóun
Albertis. Til vinstri er mynd af
Raben-Levetsau, utanríkisráðherra,
sem mun hafa mist stórfé af við-
skiftum við hann. Miðmyndin er
I af J. C. Christensen forsætisráðherra.
Hann hafði stutt Alberti á alla lund
og meðal annars upp á sitt ein-
dæmi lánað honum hálfa aðra milj-
ón kr. úr ríkissjóði. — Myndin til
hægri er af Ole Hansen fyrv. land-
búnaðarráðgjafa. Varð hann banka-
stjóri við Nationalbankann í sumar.
Samband hans við Alberti hefir
gjört hann að öreiga.
Haldið er, að Alberti rruni
verða dæmdur í 5— lOára fangelsi.
s''<2) (íp-5