Frækorn - 15.08.1910, Side 6

Frækorn - 15.08.1910, Side 6
102 F R Æ K O R N þorra alþýðunnar. Þegar Good- Templarar héldu 25 ára afmælishá- tíð sína þar í landi þann 10. janúar 1909., þá veitti biskup landsins þeim leyfi til þess, að nota kirkjurlands- ins til hátíðahaldsins, og þær voru notaðar. Þá voru sungnir fagnaðar- og sigursöngvar. og það af gildum ástæðum. Þann 10. september 1908 bað íslenzka þjóðin með opinberri atkvæðagreiðslu alþingi sitt um, að lögleiða algert vínbann í landinu. Slík lög samþykti alþingi þann 1. maí sl., og konungur staðfesti þau með undirskrift sinni samkvæmt til- mælum ráðgjafa íslands. Framtíðarhorfurnar eru góðar, það er nú sýnt og sannað, að landið er rrviklu auðugra, en menn höfðu ætl- að fyrirnokkrum árum. Gull, kopar, járn og aðrir málmar hafa fundist á síðasta ári. Fiskistöðvar landsins eru mjög auðugar, en hafa verið lítið notaðar af landsmönnum þar til á allra síðustu árum. Tekjur landsins eru nú 6 sinnum meiri en þær voru fyrir 30 árum, og fram- tíðin felur mikið í skauti sínu handa landi miðnætursólarinnar. Ecrð til Bandaríkja. Frh Andlegt líf er með mörgu móti íBandaríkjunum. Fjöldi mannaskiftir sér ekkert af andlegum málum. Að- eins röskur þriðjungur Bandaríkja- manna tilheyrir einhverju kirkjufé- lagi. Allir hinir eru fyrir utan allar kirkjur. Trúflokkarnir eru »legio«, nóg er úr að velja. Ekki skal eg eltast við allar trúr, sem þar eru í veldi, en fara skal eg fáum orðum um sitt- hvað í trúar-lífinu í Bandaríkjunum, sem þykir einkennilegt. Andatrúin er þá fyrst að telja. Hún á að sumu Ieyti Bandaríkin fyrir heimland. Að vísu er anda- trúin æfagömul í heimi. En í nú- verandi mynd hennar er hún að- eins rúmlega sextíu ára að aldri og upp runnin í Rochester í New-York ríki í Ameríku. Eg bjóst við að finna hana mjög svo volduga í þessu ættarlandi henn- ar. En í því skjátlaðist mér mjög. Andatrúin er aðallega trú margra þeirra, sem fallnir eru frá kristindómi. Flest er það ómentað og illa upp- lýst fólk, sem fylgir henni. í Detroit eru nokkrir andatrúar- söfnuðir. Allir þó fremur smáir. Enginn þeirra telur meir en 200 manns, og sumir fyrir innan 50. Og er þetta ekki mikið íborg, sem telur um 500,000 íbúa. Samkomurandatrúarmannannaeru mun ver sóttar en annara kirkna. Eg kom á nokkrar þeirra og skal eg því lýsa þeim stuttlega. Samkomurnar byrja með söng, og oftast eru það söngvar kristinna manna, sem notaðir eru, þótt þess sé vandlega gætt, að hvergi komi fram trú á Jesúm Krist sem frelsara og friðþægara. Því að andatrúar- menn trúa ekki á Krist á þann hátt. Hann er í þeirra augum aðeins maður, og var »mikill miðill«, er hann var hér á jörðu. Tvo söngva heyrði eg oftast hjáandartrúarmönn- unum, sem sé: »Hærra, minn guð, til þín,« og: »Mæturnst vér á Ijóss- ins !andi?« Eftir söng er haldin nokkurskon- ar bænagjörð. Það er bæn til »höf- undar ljóssins,« »hins mikla anda« og auk þess áköllun til »andanna« um að koma og sýna mönnum »sannleikann«, o. s. frv. Hjá einum söfnuði varð eg var við, að biblían var notuð ofurlítið, kafli lesinn á undan ræðu. Eg tók tilefni af því að spyrja kvennprestinn eftir á, hvernig stæði á því, að hún notaði biblíuna við andatrúarsamkomur sín- ar, þar sem það þó vitanlega sé bannað í ritningunni að »Ieita frétta af fram!iðnum.« Svar hennar var blátt áfram: »Vér vitum, að biblían bannar það, en auk þess er margt gott í biblíunni, og af því að fólk trúir alment á hana, notum vér hana.« Það var þá greinileg játning um hræsni. Ræðan á samkomum þeirra er oft- ast fremur ómerkileg. Hún er fram- setning af hugmyndum andatrúar- manna og lítið gætir þar mælsku eða ræðusnildar. Oftast eru það konur, sem tala. En það, sem aðal- lega dregur menn að samkomunum, er »eftirspilið.« Eftir ræðuna gefa miðlarnir »anda-vitnisburði« handa áheyrendunum. Einhverjir andar látinna manna eru sagðir nálægir, og þessir andar tala (að því er trú- aðir halda) fyrir miðlanna munn til skyldmenna og vina meðal áheyr- endanna. Þessi »anda-boðskapur« er fluttur f fullri birtu. Og á miðl- unum er yfir höfuð mjög litlabreyt- ingu að sjá. Helzt »gretta« þeir sig eitthvað, er »andarnir fara í þá«, en tala hér um bil eins og þeir eiga venju til. Ekki höfðu miðlarnir fyrir því, að breyta röddinni, eins og sagt er að Reykjavíkur-miðillinn helzti gjöri, er hann talar í milli- bilsástandi. En svo talar hann líka í myrkri, svo ekki er hægt að sjá á honum hermikráku-merkin. Hvernig voru svo »anda-vitnis- burðirnir«? munu lesendur mínir spyrja. Oft og einatt þannig, að ómögu- legt var nokkuð á þeim að byggja. Miðillinn sagðist sjá einhvern fram- liðinn í salnum meðal áheyrendanna, en þeir sáu ekki neitt. Hann sagðist heyra eitthvað, sem »aðskota-and- inn« segði, en áheyrendur heyrðu ekki neitt. Stundum virtust þessir »anda-vitnisburðir« vera all-einkenni- legir; sagt var frá, að einhver hætta hefði borið við, einhver óvinurhefði gjört einhvern ófagnað o. s. frv. En um all-flest gildir, að »ljósið« var æði blandað þoku eins og fram- setning spákerlinganna, sem menn þekkja eitthvað til. Oft og tíðum bar það við, að andarnir sögðu miklar fjarstæður, og er áheyrandi, sem talað var til, sagði, að þetta eða hitt væri ekki rétt, sagði mið- illinn, að þó svo virtist, þá gæti þetta komið fram engu að síður, eða það ætti við eitthvað fyrir löngu liðið, svo að hægt væri að halda trúnni. En hins vegar ber ekki að neita, að ýmislegt, er miðlarnir sögðu, virðist vera yfirnáttúrlegt, og gæti eg fært nokkur dæmi þessu til sönnunar. En samt sem áður er langt frá því, að slíkt sanni að andar framliðinna séu þar með í spilinu. Það er alls enginn efi á einu,

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.